Innlent
240 241 242 243 244 245 246 247 248 … 334 ›
Lögbrot að tilgreina ekki upprunaland hráefnis Dæmi eru um það á Íslandi að upprunaland hráefnis í matvörum sé ekki tilgreint á umbúðum. Talsmaður neytenda segir framleiðendum skylt að hafa þessar upplýsingar á umbúðunum. Innlent 20.9.2006 19:32
Lúðvík vill leiða Samfylkinguna í Suðurkjördæmi Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að sækjast eftir því að skipa 1. sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi í næstu alþingiskosningum. Lúðvík hefur setið á þingi í ellefu ár og var annar maður Samfylkingarinnar í kjördæminu í síðustu kosningum. Innlent 20.9.2006 17:28
Pétur sækist eftir öðru til þriðja sæti Pétur H. Blöndal þingmaður ætlar að gefa kost á sér í 2. til 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi þingkosningar. Pétur hefur setið á þingi frá árinu 1995 fyrir Sjálfstæðisflokkinn og er meðal annar formaður Efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Innlent 20.9.2006 17:21
Íslendingar komnir styttra í lagfæringum á slysastöðum Íslendingar eru óumdeilanlega komnir styttra en aðrar Evrópuþjóðir í lagfæringum á slysastöðum á þjóðvegum og innan þéttbýlis að mati höfunda skýrslu um umferðaröryggi vegakerfa hér landi sem unnin var fyrir samgönguráðuneytið. Innlent 20.9.2006 17:09
Forseti Íslands verðlaunaður fyrir forystu í umhverfismálum Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hlaut í gær verðlaun Loftlagsstofnunarinnar í Washington, Climate Institute, fyrir forystu í umhverfismálum. Innlent 20.9.2006 17:05
Samkomulag um skiptingu landgrunns í Smugunni Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sat í dag morgunverðarfund utanríkisráðherra Norðurlandanna, sem haldinn var í New York í tengslum við Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Í tengslum við fundinn undirrituðu utanríkisráðherrar Íslands, Noregs og Danmerkur, auk lögmanns Færeyja, samkomulag um afmörkun landgrunns í Síldarsmugunni. Innlent 20.9.2006 16:18
Hagþenkir úthlutar starfsstyrkjum fyrir árið Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, hefur úthlutað starfsstyrkjum til ritstarfa árið 2006. Alls var úthlutað 6,7 milljónum til 38 verkefna á þessu ári. Innlent 20.9.2006 15:49
ÞSSÍ og RKÍ vinna áfram saman í Mósambík Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Rauði kross Íslands skrifuðu í dag undir nýjan samstarfssamning um verkefni á sviði heilbrigðismála í Mósambík. Samtökin hafa starfað saman þar í landi frá árinu 1999 þegar ráðist var í byggingu heilsugæslustöðvar í Hindane í Maputo-héraði en hún þjónar nú 5 þúsund íbúum á svæðinu. Innlent 20.9.2006 15:16
Ófært um Emstruleið inn á Fjallabaksleið syðri Ófært er úr Fljótshlíðinni um Emstruleið inn á Fjallabaksleið syðri vegna vatnavaxta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þar er einnig minnt á að vegna vinnu í Hvalfjarðargöngum verða göngin lokuð yfir nóttina þessa viku, frá miðnætti til kl. 6 að morgni, fram á föstudag. Innlent 20.9.2006 15:08
Söfnuðu 300 þúsund fyrir Þroskahjálp á Suðurnesjum Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Fríhöfnin ehf. og Golfklúbbur Suðurnesja hafa safnað 300 þúsund krónum fyrir Þroskahjálp á Suðurnesjum. Innlent 20.9.2006 13:53
Pendúlhreyfing tók stjórnina af ökumanni Svonefnd pendúlhreyfing á hjólhýsi, sem jepplingur dró á eftir sér á Þrengslavegi í nótt, tók stjórnina af ökumanni jepplingsins og munaði minnstu að stórslys hlytist af. Margir ökumenn virðast hafa upplifað svipaða reynslu. Innlent 20.9.2006 12:40
Atorka kaupir enn á ný í NWF Atorka Group hefur bætt við hlut sinn í NWF Group og heldur nú utan um 19 prósenta hlut. Það var fyrst vorið 2004 sem Atorka tilkynnti til Kauphallarinnar í Lundúnum um fjárfestingar sínar í NWF og hefur frá þeim tíma verið að auka hlut sinn jafnt og þétt í breska framleiðslu- og dreifingarfélaginu. Viðskipti innlent 20.9.2006 13:52
Bilið á milli hinna launahæstu og launalægstu eykst Bilið á milli launahæstu og launalægstu félagsmanna VR hefur aukist á síðustu árum og engin breyting hefur orðið á launamun kynjanna í fjögur ár. Þetta sýnir ný launakönnun VR sem greint er frá á vef félagsins. Innlent 20.9.2006 13:37
Actavis orðað við yfirtöku á áströlsku lyfjafyrirtæki Actavis er orðað við yfirtöku á ástralska samheitalyfjafyrirtækinu Mayne Pharma í frétt Dow Jones. Viðskipti með hlutabréf í ástralska fyrirtækinu voru stöðvuð í gær vegna hugsanlegs 140 milljarða króna yfirtökutilboðs en ekki liggur fyrir frá hverjum. Innlent 20.9.2006 12:20
Á fimmta hundrað eiga von á sektum 420 ökumenn eiga nú sekt yfir höfði sér fyrir að virða ekki 60 kílómetra leyfilegan hámarkshraða á Hringbrautinni um síðustu helgi. Brot þeirra náðust á löggæslumyndavél lögreglunnar í Reykjavík. Sektir geta numið allt að 60 þúsund krónum en þeir sem óku á 110 kílómetra hraða á klukkustund og þar yfir, fá að auki punkta í ökuferilsskrá. Innlent 20.9.2006 13:26
Karl gefur kost á sér í forystusæti í Norðvesturkjördæmi Karl V. Matthíasson, prestur og fyrrverandi þingmaður, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta til annað sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Innlent 20.9.2006 12:35
Ábyrgðin hjá fjármálaráðuneytinu „Fjármálaráðuneytið verður að hysja upp um sig buxurnar,“ segir Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Hún segir sjúkraliða á Landspítalanum-háskólasjúkrahúsi vera langþreytta á álagi og manneklu á sjúkrahúsinu. Innlent 20.9.2006 12:11
Ofbeldismenn verði fjarlægðir tafarlaust af heimilum Frumvörp um nálgunarbann og meðferð sakamála sem dómsmálaráðherra kynnti í ríkisstjórn í gær ganga ekki nógu langt að mati Vinstri-grænna og talsmanna Samtaka um Kvennaathvarfs. Þeir vilja meðal annars að ofbeldismenn verði fjarlægðir tafarlaust af heimilum Innlent 20.9.2006 12:34
Íslendingar kusu Magna fyrir þrjár milljónir Íslendingar sendu SMS-skilaboð í símakosningum úrslitaþáttar Rockstar: Supernova fyrir tæplega þrjár millljónir króna, en eins og kunnugt er var Magni Ásgeirsson þar meðal keppenda. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag. Innlent 20.9.2006 11:48
Slys undirstriki mikilvægi Sundabrautar Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir umferðartafir sem urðu í gær vegna þess að vörubíll með tengivagn valt í Ártúnsbrekkunni, undirstika mikilvægi þess að Sundabraut komi án tafar og Öskjuhliðargöng verði forgangsverkefni fremur en mislæg gatnamót á Kringlumýrarbraut og Miklubraut. Innlent 20.9.2006 10:29
Meiðsl reyndust vera minniháttar Ekið var á unga stúlku á Háaleitisbraut nálægt Fellsmúla um klukkan átta í morgun. Stúlkan var flutt á slysadeild Landspítalans en meiðsl hennar reyndust vera miniháttar. Innlent 20.9.2006 10:23
SHÍ og FSHA starfa saman Stúdentaráð Háskóla Íslands og Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri hafa undirritað samstarfssamning. Meginmarkmið með honum er að sýna samstöðu innan háskólanna þegar unnið er að stórum málum er varða nemendur beggja háskólanna eftir því sem segir í tilkynningu frá félögunum. Innlent 20.9.2006 10:04
Nýtt afl og Frjálslyndir sameinast Forystumenn Nýs afls og Frjálslynda flokksins hafa komist að samkomulagi um að sameina flokkana. Hefur forysta Nýs afls ákveðið að samtökunum verði breytt úr stjórnmálaflokki og hvetur stjórnin félagsmenn í Nýju afli til að ganga í Frjálslynda flokkinn. Innlent 20.9.2006 10:00
Stefnir í hagnað hjá Sterling árið 2006 Almar Örn Hilmarsson, forstjóri Sterling, segir í viðtali við Markaðinn í dag, að allt stefni í það að félagið verði rekið með hagnaði í ár. „Árið 2006 stefnir í hagnað sem í reynd er ótrúlegur árangur á einu ári. Þetta var margfalt betra en þessi félög hafa gert nokkru sinni áður. Ég held að menn hafi verið búnir að gleyma því hjá Maersk að það hafi verið til plús í tölvunum.“ Viðskipti innlent 20.9.2006 09:12
Gefur kost á sér í sjötta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur hefur ákveðið að gefa kost á sér í sjötta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. Kolbrún var í níunda sæti á framboðslista sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir síðustu alþingiskosningar. Innlent 20.9.2006 09:12
Krefjast þess að kjör verði í samræmi við nýja samninga Trúnaðarmenn sjúkraliða við Landspítalann- háskólasjúkrahús krefjast þess að gerður verði nýr stofnanasamningur við sjúkraliða LSH. Trúnaðarmennirnir funduðu í gær og krefjast þess jafnframt að kjör sjúkraliða hjá LSH verði í samræmi við nýja samninga við aðrar starfsgreinar í félags- og heilbrigðisgeiranum. Innlent 20.9.2006 07:59
Búið að finna silfurberg til að húða Þjóðleikhúsið að utan Búið er að finna silfurberg til að húða Þjóðleikhúsið að utan en viðgerðir hafa staðið yfir á leikhúsinu um skeið. Bergtegundin var notuð þegar húsið var byggt en vegna þess hversu vandfundin hún er, var jafnvel talið að notast þyrfti við önnur úrræði. Samningar hafa tekist um kaup á fimm tonnum af silfurbergi af Braga Björnssyni, landeigand en silfurbergið verður sótt í Suðurfjall í Breiðdalnum. Það verður ekki átakalaust að ná silfurbergið því það er í talsverðri hæð og flytja þarf vélar upp í fjallið svo hægt sé að ná silfurberginu úr námunni. Innlent 20.9.2006 07:49
Skaut kött nágrannans Karlmaður á Egilsstöðum hefur verið kærður til lögreglu fyrir að skjóta heimiliskött nágranna síns í bakgarði eigandans í vor. Innlent 19.9.2006 22:01
Ekið á unga stúlku Ekið var á unga stúlku á Háaleitisbraut nálægt Fellsmúla um klukkan átta í morgun. Lögregla og sjúkrabíll eru komin á staðinn. Ekki er vitað um meiðsl stúlkunnar að svo stöddu en hún er með meðvitund. Innlent 20.9.2006 08:18
Refsivert að auglýsa vændi Refsing fyrir að stunda vændi fellur niður en í staðinn gert refsivert að auglýsa vændi. Þá verður refsing fyrir samræði og önnur kynferðismök við barn yngra en fjórtán ára þyngd, samkvæmt frumvarpi dómsmálaráðherra. Innlent 19.9.2006 22:01