Innlent
166 167 168 169 170 171 172 173 174 … 334 ›
Á fjórða hundrað hefur kosið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík Á fjórða hundrað manns hafa nú kosið utan kjörfundar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fer næstkomandi laugardag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Alls taka fimmtán frambjóðendur þátt í prófkjörinu, þar af allir átta núverandi þingmenn flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Innlent 7.11.2006 16:12
Íslendingar veiða minnst af hval innan Alþjóða- hvalveiðiráðsins Íslendingar eru atkvæðaminnstir í hvalveiðum af þeim þjóðum innan Alþjóðahvalveiðiráðsins sem á annað borð stunda hvalveiðar. Frá þessu er greint á vef Fiskifrétta. Innlent 7.11.2006 15:42
Marel tapaði 61 milljón króna Marel skilaði 674.000 evra tapi á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til 61 milljónar krónu taps samanborið við 1,2 milljóna evru eða ríflega 104 milljóna króna tapreksturs á sama tíma fyrir ári. Viðskipti innlent 7.11.2006 15:16
Hagnaður íslenskra lánastofnana yfir 136 milljarðar á síðasta ári Hagnaður íslenskra lánastofnana nam samanlagt ríflega 136 milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt skýrslu Fjármálaeftirlitsins um stofnanirnar sem birt var í dag. Innlent 7.11.2006 14:58
Björn ræddi orkumál við fjármálaráðherra innan EES Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sat í dag fund fjármálaráðherra aðildarríkja EFTA og Evrópusambandsins um orkumál í fjarveru Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra. Fundurinn fór fram í Brussel og lýsti ráðherra því í ræðu sinni hvernig Íslendingar stæðu að orkunýtingu og rakti sérstaklega aukin áhrif jarðhita í orkubúskapnum. Innlent 7.11.2006 14:37
Baugur ýjar að málssókn gegn Ekstra-blaðinu Baugur Group mótmælir harðlega þeim blaðagreinum sem blaðamenn danska Ekstra-blaðsins hafa skrifað um fyrirtækið að undanförnu og segir greinarnar fullar af villum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs. Innlent 7.11.2006 14:26
Nýta sér undanþágu vegna inngöngu Rúmena og Búlgara í ESB Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra tilkynnti á Alþingi í dag að ríkisstjórnin hefði ákveðið að nýta sér undanþágur um takmörkun á frjálsu flæði vinnuafls um næstu áramót þegar Rúmenía og Búlgaría ganga í Evrópusambandið. Innlent 7.11.2006 13:59
Vilja stuðla að jöfnum tækifærum til íþróttaiðkunar Vinstri - grænir hyggjast leggja fram tillögu á borgarstjórnarfundi í dag um að settur verði á fót starfshópur á vegum mannréttindanefndar, Íþrótta- og tómstundaráðs og menntaráðs sem hafi það að markmiði að stuðla að jöfnum tækifærum kynjanna til íþróttaiðkunar. Þar er meðal annars átt við aðgengi að aðstöðu, fjármagni, þjálfurum og stuðningi. Innlent 7.11.2006 13:43
Eldur á bifreiðaverkstæði í Keflavík Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var kallað að bílasprautunarverkStæði í Grófinni í KefLavík á ellefta tímanum í morgun vegna elds sem kviknað hafði í gömlum kyndiklefa inni á verkstæðinu. Innlent 7.11.2006 13:21
Allt að 66 prósenta verðmunur á smurþjónustu Allt að sextíu og sex prósenta verðmunur reyndist á smurþjónustu fyrir bíla í könnun sem Alþýðusamband Íslands gerði um síðustu mánaðamót. Verð var kannað hjá 17 þjónustuaðilum á smurningu á þremur stærðum bíla, fólksbíl, jepplingi og stærri jeppa. Innlent 7.11.2006 13:11
Mátti ekki vera að því að láta sekta sig Tæplega þrítugur karlmaður á yfir höfði sér 50 þúsund króna sekt eftir að hann var stöðvaður fyrir að aka á 140 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut um miðjan dag í gær. Fram kemur í frétt frá lögreglunni að maðurinn hafi beðið lögreglu á vettvangi um að líta fram hjá þessu broti því hann væri á hraðferð og hefði ekki tíma til að ræða við þá. Innlent 7.11.2006 12:20
Efnahagslífið enn berskjaldað fyrir höggum Davíð Oddsson seðlabankastjóri hótar enn meiri vaxtahækkunum í desember og segir bæði verðbólgu og spennu ennþá mjög mikla. Á fundi hjá Viðskiptaráði Íslands í morgun sagði Davíð íslenskt efnahagslíf enn þá berskjaldað fyrir höggum. Innlent 7.11.2006 12:12
Stórfellt tjón hjá Náttúrufræðistofnun Sex ernir, fimmtíu fálkar og ýmsir sjaldgæfir flækingsfuglar voru meðal þeirra tvö þúsund fuglasýna í eigu Náttúrufræðistofnunar sem fargað var á ruslahaugum í vor án vitundar stofnunarinnar. Innlent 7.11.2006 11:56
Nýr sýslumaður í Keflavík Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Guðgeir Eyjólfsson, sýslumann á Siglufirði, til þess að vera sýslumaður í Keflavík frá og með 1. janúar 2007. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. Innlent 7.11.2006 11:51
Hnífamaður á Húsavík úrskurðaður í gæsluvarðhald Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað manninn sem grunaður er um manndrápstilraun og íkveikju á Húsavík í gæsluvarðhald. Lögreglan fór með manninn til Akureyrar í gær þar sem hann mun sitja í fangaklefa til 20. nóvember næstkomandi. Innlent 7.11.2006 11:43
Hugsanlegt að gamli lækurinn verði opnaður á ný Hugsanlegt er að opnað verði á nýjan leik fyrir gamla lækin í Lækjargötu en tillaga þar að lútandi verður tekin fyrir á fundi borgarstjórnar í dag. Innlent 7.11.2006 11:30
Segja Björgólf standa á bak við kaupin á West Ham Hópur sem Eggert Magnússon, formaður KSÍ, fer fyrir og vill eignast enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur fengið aðgang að bókhaldi félagsins eftir því sem fram kemur á vef breska blaðsins Daily Telegraph. Þá kemur fram á vef dagblaðsins Independent að talið sé að Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans, standi á bak við kaupin. Innlent 7.11.2006 11:14
Faldo kannar aðstæður fyrir golfvöll á sandinum Stórkylfingurinn Nick Faldo sem var hér á landi í síðustu viku þar sem hann skoðaði aðstæður á söndunum við Þorlákshöfn en þar stendur til að byggja upp strandgolfvöll á heimsmælikvarða sem Faldo hannar. Innlent 7.11.2006 10:17
Sautján gefa kost á sér í forvali VG í NA-kjördæmi Sautján manns gefa kost á sér í forvali Vinstri - grænna í Norðausturkjördæm fyrir alþingskosningar, en framboðsfrestur rann út á sunnudag. Innlent 7.11.2006 09:46
Ingibjörg segir nýjan lista sterkan Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir nýjan lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi vera sterkan. Ingibjörg telur ástæðulaust að hafa áhyggjur af stöðu Suðurnesjamanna á listanum enda vinna þingmennirnir fyrir allt kjördæmið sama hvaðan þeir koma. Innlent 6.11.2006 22:35
Bílvelta á Svalbarðsströnd Fjórir voru fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir bílveltu á Svalbarðsströnd á sjötta tímanum í dag. Konan sem keyrði bílinn skarst lítillega en þrjú börn hennar, sem voru með henni í bílnum, sluppu ómeidd. Töluverð hálka var þegar slysið átti sér stað. Innlent 6.11.2006 22:15
Lúðvík endaði í öðru sæti Lokatölur hafa verið birtar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Gríðarleg spenna var um annað sætið en á endanum hafði Lúðvík Bergvinsson betur en Ragnheiður Hergeirsdóttir en aðeins munaði tuttugu og fimm atkvæðum á þeim. Innlent 6.11.2006 22:00
Ungliðar segja Frjálslynda ala á fordómum Forsvarsmenn ungliðahreyfinga í öllum stjórnmálaflokknum nema Frjálslyndum gagnrýna yfirlýsingar Magnúsar Þórs Hafsteinssonar um innflytjendamál í ályktun sem þeir sendu frá sér í dag. Þeir lýsa "vonbrigðum með þá ákvörðun nokkurra forystumanna í Frjálslynda flokknum að ala á trúarbragðafordómum og tortryggni í garð útlendinga í tilraunum sínum til að auka fylgi flokks síns." Í ályktuninni segir einnig að slíkur málflurningur sé meiðandi gagnvart hópi Íslendinga og stuðli að sundrungu í samfélaginu. Innlent 6.11.2006 21:44
Kviknaði í eldhúsi á Akureyri Slökkviliðið á Akureyri var kallað út á sjötta tímanum í dag þar sem reyk lagði úr íbúð í fjölbýlishúsi við Keilusíðu á Akureyri. Sjúkrabíll, dælubíll og körfubíll voru strax sendir á staðinn. Reykkafarar fóru inn í íbúðina og leituðu að fólki en íbúðin reyndist mannlaus. Talið er að kviknað hafi í út frá eldavél sem straumur var á. Innlent 6.11.2006 21:43
Ragnheiður kominn aftur í annað sætið Ragnheiður Hergeirsdóttir er komin aftur í annað sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Aðeins munar þremur atkvæðum á Lúðvíki og Ragnheiði í annað sætið. Lúðvík er nú í fjórða sæti en aðeins munar þrjátíu atkvæðum á honum og Róberti Marshall í þriðja sætið. Innlent 6.11.2006 21:22
Björgvin hlaut sterkari kosningu en hann átti von á Björgvin G. Sigurðsson hefur tryggt sér fyrsta sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. ,, Ég er ákaflega þakklátur fyrir þetta afgerandi traust sem ég hlýt. Ég fæ greinilega mjög góða kosningu í fyrsta sætið og mun sterkari en ég bjóst við" sagði Björgvin G. Sigurðsson þegar ljóst var að hann væri sigurvegari prófkjörsins. Innlent 6.11.2006 21:16
Lúðvík er búinn að ná öðru sætinu Lúðvík Bergvinsson er kominn í annað sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Ragnheiður Hergeirsdóttir er fallin niður í fjórða sætið en búið er að telja 4.400 atkvæði. Innlent 6.11.2006 20:40
Búið að telja 78% atkvæða Nú er búið að telja tæp 78% atkvæða í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi eða 4.000 atkvæði af 5.146. Lúðvíki Bergvinssyni vantar þrettán atkvæði til að ná Ragnheiði Hergeirsdóttur. Ragnheiður er með 1.203 atkvæði í 1.-2. sætið en Lúðvík er með 1.190 atkvæði í 1.-2. sætið. Þrjátíu og sjö atkvæðum munar á þeim Róberti Marshall og Lúðvíki í þriðja sætið. Innlent 6.11.2006 20:29
Lúðvík vantar aðeins fjögur atkvæði í annað sætið Búið er að telja 3.500 atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Lúðvík Bergvinsson vantar aðeins fjögur atkvæði til verða jafn Ragnheiði Hergeirsdóttur í annað sætið. Ragnheiður Hergeirsdóttir er í öðru sæti með 1.042 atkvæði í 1.-2. sætið en Lúðvík er með 1.038 atkvæði í 1.-2. sætið. Innlent 6.11.2006 20:09
Hægt að komast hjá vandræðum Prófessor í alþjóðastjórnmálum segir Íslendinga nú hafa tækifæri til að haga innflytjendamálum þannig að hægt verði að komast hjá vandræðum sem blossað hafi upp í grannríkjum. Hann segir málefni innflytjenda komin á borð sérfræðinga í öryggismálum og þau rædd á ráðstefnum Atlantshafsbandalagsins. Innlent 6.11.2006 19:18