Íþróttir
249 250 251 252 253 254 255 256 257 … 334 ›
Fylkir vann auðveldan sigur á ÍBV Fylkir vann í dag auðveldan sigur á ÍBV í DHL-deild karla í handbolta 27-18 á heimavelli sínum. Ingólfur Axelsson skoraði 10 mörk fyrir Fylki og Hlynur Morthens varði 20 skot í markinu. Ólafur Víðir Ólafsson skoraði 5 mörk fyrir ÍBV. Sport 11.3.2006 16:03
Beattie með tvö mörk í hálfleik Framherjinn James Beattie er í miklu stuði með liði sínu Everton gegn Heiðari Helgusyni og félögum í Fulham, en Everton hefur yfir 2-0 í hálfleik á Goodison Park. Bolton er að taka West Ham í bakaríið 3-0. Stelios Giannakopoulos hefur skorað tvívegis fyrir Bolton og Gary Speed einu sinni. Wigan hefur yfir gegn Sunderland 1-0 og markalaust er hjá Portsmouth og Manchester City. Sport 11.3.2006 15:58
Valsstúlkur í undanúrslit Handknattleikslið Vals varð í dag annað íslenska liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Áskorendakeppni Evrópu í kvennaflokki þegar liðið skellti svissneska liðinu Bruhl í síðari viðureign liðanna í Laugardalshöllinni 32-27, en Valur vann fyrri leikinn 25-21 í gær. Sport 11.3.2006 15:48
Ég vissi strax að þetta yrði mark Sigurmark William Gallas gegn Tottenham í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag var einstaklega glæsilegt og ekki á hverjum degi sem varnarmaðurinn knái skorar svona mörk. John Terry fyrirliði Chelsea sagðist hafa séð strax að skot félaga síns myndi hafna í netinu. Sport 11.3.2006 15:33
Erfiðið er að borga sig Michael Schumacher segir að þrotlausar æfingar og prófanir séu lykillinn á bak við góðan árangur Ferrari í tímatökunum í Barein í dag. "Það er orðið langt síðan maður var í þessari aðstöðu síðast og nú er allt erfiðið í vetur svo sannarlega að skila sér. Það er ekkert að marka þó hlutirnir líti vel út á æfingu, þú veist aldrei hvar þú stendur fyrr en á brautina er komið," sagði Þjóðverjinn. Sport 11.3.2006 15:05
Heiðar í byrjunarliði Fulham Fjórir leikir eru á dagskrá klukkan 15 í ensku úrvalsdeildinni. Heiðar Helguson er í byrjunarliði Fulham þegar liðið sækir Everton heim í leit að fyrsta útisigri sínum á leiktíðinni. Bolton mætir West Ham, Portsmouth tekur á móti Manchester City og Sunderland mætir Wigan. Sport 11.3.2006 14:51
Jafnt hjá Birmingham og West Brom Nathan Ellington var hetja West Brom í dag þegar hann tryggði liði sínu dýrmæt stig í botnbaráttu úrvalsdeildarinnar gegn Birmingham, með marki tveimur mínútum eftir að hann kom inná sem varamaður. Mikael Forssel skoraði mark heimamanna úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiksins. Bæði lið eru eftir sem áður í bullandi fallbaráttu. Sport 11.3.2006 14:45
Draumamark Gallas tryggði Chelsea sigur William Gallas tryggði Chelsea mikilvæg stig í titilbaráttunni í dag þegar hann skoraði glæsilegt mark með þrumuskoti þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma gegn Tottenham. Chelsea vann því leikinn 2-1 og er komið með aðra hönd á Englandsbikarinn. Sport 11.3.2006 14:38
Lakers lagði San Antonio Los Angeles Lakers vann í nótt óvæntan útisigur á San Antonio Spurs á útivelli 100-92. Meistararnir komust aldrei í gang í leiknum og virkuðu þreyttir eftir mikið leikjaálag síðustu daga og skoraði Tim Duncan t.a.m. aðeins 12 stig í leiknum. Kobe Bryant skoraði 29 stig fyrir Lakers. Sport 11.3.2006 14:09
Schumacher á ráspól Ferrari gekk allra liða best í tímatökunum fyrir Barein kappaksturinn sem fram fer á morgun. Það var fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher sem náði bestum tíma og verður því á ráspól í 65. skiptið á ferlinum á morgun. Hann jafnar þar með met Brasilíumannsins Ayrton Senna. Félagi Schumacher Felipe Massa varð í öðru sæti, Jenson Button í þriðja og heimsmeistarinn Fernando Alonso í fjórða. Sport 11.3.2006 13:48
Jafnt á Stamford Bridge í hálfleik Staðan hjá Chelsea og Tottenham er jöfn 1-1 þegar blásið hefur verið til leikhlés í Stamford Bridge. Michael Essien kom heimamönnum yfir strax á 14. mínútu, en Jermaine Jenas jafnaði metin fyrir Tottenham rétt fyrir lok hálfleiksins. Staðan í leik Birmingham og West Brom er einnig 1-1, en þar er skammt til leiksloka. Sport 11.3.2006 13:38
Spilað undir nafni ÍBV/Selfoss? Kvennalið ÍBV er í stökustu vandræðum með að finna stelpur til að spila fótbolta úti í Vestmannaeyjum. Svo gæti farið að ÍBV spili undir sameiginlegum merkjum liðsins og Selfoss undir nafninu ÍBV/Selfoss í Landsbankadeild kvenna í sumar. Sport 11.3.2006 01:01
Guðmundur með Malmö í undanúrslitin Guðmundur Stephensen og félagar hans í sænska borðtennisliðinu Malmö komust í gær í undanúrslit í sænsku úrvalsdeildinni þegar liðið vann Söderhamn með 5 vinningum gegn 3 í síðari viðureign liðanna í úrslitakeppninni. Sport 11.3.2006 00:54
Vill fara frá Þrótti til Fylkis Markmaðurinn knái Fjalar Þorgeirsson hefur mikinn hug á því að fara frá Þrótti og til Fylkis sem vill fá hann í sínar raðir. Fjalar verur samningslaus næsta haust og hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning sem Þróttarar hafa boðið honum. Sport 11.3.2006 00:04
Kominn aftur til heimalandsins Rússneski miðjumaðurinn Alexei Smertin hefur gengið til liðs við Lokomitov Moskvu í heimalandi sínu. Kappinn kom til Chelsea frá Bordeaux í Frakklandi fyrir síðasta tímabil, aðallega þar sem Roman Abramovich vildi hafa landa sinn í liðinu sínu. Sport 11.3.2006 00:42
Að verða til í slaginn? Miðjumaður Liverpool, Momo Sissoko, gæti óvænt komið inn í byrjunalið Liverpool eftir þrjár vikur en hann varð fyrir meiðslum á auga í fyrri leik liðsins gegn Benfica í Meistaradeildinni fyrir rífum tveimur vikum síðan. Sport 11.3.2006 00:34
Framlengir við Fulham Bandaríski sóknarmaðurinn Brian McBride hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Fulham um eitt ár. McBride hefði orðið samningslaus eftir tímabilið en honum hefur verið umbunað fyrir frábæra frammistöðu á tímabilinu. Sport 10.3.2006 23:40
HK lagði ÍR HK er komið í sjötta sæti í DHL-deild karla í handknattleik eftir sigur á ÍR á heimavelli sínum í Digranesi í kvöld 29-27. HK hefur hlotið 20 stig, en ÍR er í áttunda sæti deildarinnar með 19 stig. Sport 10.3.2006 21:55
Valur vann fyrri leikinn við Bruhl Kvennalið Vals vann sigur á svissneska liðinu Bruhl í kvöld í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Áskorendakeppni Evrópu í handbolta 25-21. Leikurinn fór fram í Laugardalshöll og sá síðari verður leikinn á morgun á sama stað, þar sem svissneska liðið seldi heimaleik sinn. Sport 10.3.2006 20:52
Nolan leikmaður febrúarmánaðar Miðjumaðurinn Kevin Nolan hjá Bolton var í dag kjörinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Nolan er 23 ára gamall og hefur skorað 10 mörk í deildinni á tímabilinu, sem verður að teljast gott af miðjumanni að vera. Sam Allardyce stjóri Bolton segist alveg eins búast við að sjá Nolan í enska landsliðinu fljótlega. Sport 10.3.2006 20:07
Pardew stjóri mánaðarins Alan Pardew, stjóri West Ham United var í dag kjörinn knattspyrnustjóri mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni, eftir að hann leiddi lið sitt taplaust í gegn um mánuðinn. West Ham lagði meðal annars granna sína í Arsenal á útivelli og vann örugga sigra á Sunderland og Birmingham á heimavellin sínum. Sport 10.3.2006 20:03
Það voru örlög mín að mæta Arsenal Patrick Vieira segist hlakka mikið til að mæta með nýja liði sínu Juventus á Highbury í Meistaradeildinni, þar sem hann spilaði með Arsenal í níu ár. Kaldhæðni örlaganna er nú sú að Vieira fór sumpart frá Arsenal til að reyna að vinna Evrópumeistaratitilinn annarsstaðar, en nú þarf hann einmitt að slá sína gömlu félaga sínu úr keppni til að ná því takmarki. Sport 10.3.2006 16:52
Blæs á gagnrýni Pardew Arsene Wenger, stjóri Arsenal, gefur lítið út á gagnrýni kollega síns Alan Pardew hjá West Ham sem fetti fingri út í það að fyrirsagnir enskra blaða töluðu um að Arsenal væri fulltrúi Englands í Meistaradeildinni. Pardew átti þar við þá staðreynd að fleiri enskir leikmenn hefðu verið í spænska liðinu Real Madrid en í Arsenal í viðureign liðanna í vikunni. Sport 10.3.2006 16:41
HK tekur á móti ÍR Einn leikur er á dagskrá í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld þegar HK tekur á móti ÍR í Digranesi. HK er í áttunda sæti deildarinnar með 18 stig, en ÍR-ingar sitja í sætinu fyrir ofan með einu stigi meira. Leikurinn hefst klukkan 20. Sport 10.3.2006 16:05
Vandræði hjá McLaren Forráðamönnum McLaren til mikillar skelfingar virðist þetta keppnistímabil ætla að byrja á sömu nótum og hið síðasta endaði, því bíll Kimi Raikkönen bilaði strax á 12. hring á æfingum í dag og félagi hans Juan Pablo Montoya kvartaði einnig undan því að vélin hefði verið að stríða sér. Sport 10.3.2006 15:31
Þjóðverjar geta orðið heimsmeistarar "Keisarinn" Franz Beckenbauer hefur nú skipt um skoðun og segir að Þjóðverjar hafi alla burði til að verða heimsmeistarar, þrátt fyrir að liðið hafi alls ekki verið sannfærandi að undanförnu. Beckenbauer er einn þeirra sem tók undir harða gagnrýin á liðið þegar það steinlá fyrir Ítölum á dögunum. Sport 10.3.2006 14:44
Rangers á yfir höfði sér refsingu Skoska liðið Glasgow Rangers á yfir höfði sér refsingu frá evrópska knattspyrnusambandinu vegna hegðunar stuðningsmanna liðsins í leikjunum við Villareal í Meistaradeildinni á dögunum. Stuðningsmennirnir veittust að rútu spænska liðið og grýttu hana, auk þess sem þeir hrópuðu fúkyrðum að mótherjunum á meðan á báðum leikjunum stóð. Sport 10.3.2006 13:54
San Antonio valtaði yfir Phoenix Það sýndi sig svart á hvítu í gær hve mikilvægur hlekkur Steve Nash er í liði Phoenix Suns, þegar það steinlá á heimavelli sínum fyrir San Antonio Spurs 117-93. Nash gat ekki spilað með Phoenix vegna meiðsla og þykir tap liðsins sýna af hverju talað er um að Nash verði annað árið í röð valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar. Sport 10.3.2006 14:13
Skrifar undir stóran bókasamning Framherjinn knái Wayne Rooney undirritaði í gær stærsta bókasamning sem sögur fara af þegar íþróttamaður er annars vegar, þegar hann samdi við Harper Collins útgáfuna um 5 bækur á næstu 12 árum sem gefa Rooney hvorki meira né minna en 5 milljónir punda í vasann. Sport 10.3.2006 13:43
Chelsea eina liðið í myndinni Nú virðist sem Englandsmeistarar Chelsea sitji einir að því að kaupa miðjumanninn Michael Ballack frá Bayern Munchen eftir að ítalska liðið Inter Milan lýsti því yfir í gær að félagið væri hætt við að reyna að klófesta hann í sumar. Sport 10.3.2006 13:31