Íþróttir
239 240 241 242 243 244 245 246 247 … 334 ›
Keflavík yfir í hálfleik Keflvíkingar hafa yfir 63-43 í hálfleik í þriðja leik sínum gegn Skallagrími í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfuknattleik, en leikurinn fer fram í Keflavík. Jafnræði var á með liðunum eftir fyrsta leikhlutann, en pressuvörn Keflvíkinganna virtist slá gestina út af laginu í öðrum leikhlutanum. AJ Moye hjá Keflavík hefur verið besti leikmaður vallarins og er kominn með yfir 20 stig í fyrri hálfleiknum. Sport 30.3.2006 20:13
Bolton kaupir Ísraela Úrvalsdeildarfélagið Bolton gekk í dag frá samningi við ísraelska miðjunanninn Idan Tal frá Maccabi Haifa og mun hann ganga til liðs við enska liðið í júlí í sumar. Tal þessi spilaði með Everton á árunum 2000-2002 og á að baki 58 landsleiki fyrir Ísrael. Sport 30.3.2006 18:05
Ronaldinho verðmætasti leikmaður heims Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Ronaldinho hefur verið útnefndur verðmætasti knattspyrnumaður heims í ítarlegri könnun sem gerð var á dögunum og skýtur þar köppum á borð við David Beckham og Wayne Rooney ref fyrir rass. Sport 30.3.2006 17:54
Óttast frekari seinkanir á Wembley Breska sjónvarpsstöðin BBC greinir frá því í dag að ýmis teikn séu á lofti um að nýi Wembley leikvangurinn verði jafnvel ekki tilbúinn fyrir leikinn um samfélagsskjöldinn síðaripart sumars, eftir að í ljós kom að rúgbýleikur sem halda átti á vellinum þann 26. ágúst gæti orðið færður annað - en leikurinn um samfélagsskjöldinn á að fara fram enn fyrr, eða þann 13. ágúst. Sport 30.3.2006 17:44
LeBron James loksins í úrslitakeppnina Cleveland Cavaliers tryggði sér í nótt sæti í úrslitakeppninni í NBA með góðum sigri á Dallas á heimavelli sínum 107-94. LeBron James hjá Cleveland hélt upp á að vera kominn í úrslitakeppnina í fyrsta skiptið á ferlinum með því að salla 46 stigum á Dallas í leiknum, en Dirk Nowitzki var stigahæstur gestanna með 29 stig. Þetta var í fyrsta sinn í vetur sem Dallas tapar tveimur leikjum í röð. Sport 30.3.2006 05:43
Óvæntur sigur Stephen Ames Kanadamaðurinn Stephen Ames sigraði örugglega á Players meistaramótinu í golfi sem lauk í kvöld á TPC Sawgrass vellinum en mótið var í beinni útsendingu á Sýn. Ames lék hringina fjóra á fjórtán höggum undir pari og lokahringinn lék hann á 5 höggum undir pari, 67 höggum samtals. Sport 26.3.2006 23:44
Haukar elta Fram eins og skugginn Haukar unnu góðan sigur á ÍR í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Þar með narta þeir enn í hælana á Safamýrarpiltunum í Fram sem hafa 36 stig á toppi deildarinnar en Hafnfirðingarnir koma næstir, stigi á eftir. Sport 26.3.2006 23:19
Bjarni og Hörður í tapliði Silkeborg Bjarni Ólafur Eiríksson og Hörður Sveinsson léku báðir allan leikinn fyrir danska liðið Silkeborg sem tapaði fyrir Bröndby. Með sigrinum tyllti Bröndby sér í efsta sæti deildarinnar með 51 stig, en FCK í Kaupmannahöfn kemur næst með 50 stig en þeir eioga einn leik til góða. Silkeborg er í svo 9. sæti með 23 stig. Sport 26.3.2006 22:34
Celtic einum sigri frá titlinum Celtic getur tryggt sér Skotlandsmeistaratitilinn eftir tíu daga en það þarf aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér titilinn. Leikurinn er þann 5. apríl gegn Hearts, sem er í öðru sæti deildarinnar en fastlega má gera ráð fyrir því að Celtic vinni þann leik eftir frábæra leiki undanfarið. Sport 26.3.2006 19:08
Real Madrid burstaði Deportivo Real Madrid vann öruggan sigur á Deportivo La Coruna í La Liga á Spáni í dag. Madrídingar færast þar með nær erkifjendum sínum í Barcelona sem verma toppsæti deildarinnar en þeir náðu þó aðeins markalausu jafntefli gegn Malaga í gær. Sport 26.3.2006 19:01
Bruce lætur deigann ekki síga Steve Bruce er enn ákveðnari að draga Birmingham upp úr ruglinu sem liðið er í þessa stundina. Lið hans er í þriðja neðsta sæti úrvalsdeildarinnar og hefur leikur liðsins að undanförnu aldeilis ekki verið burðugur. Sport 26.3.2006 18:06
Ólafur með fjögur mörk í sigri Ciudad Ólafur Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir Ciudad Real þegar liðið bar sigurorð af þýska liðinu Flensborg í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta. Flensborg sá aldrei til sólar í leiknum og Ciudad fór með öruggan níu marka sigur af hólmi, 31-22. Sport 26.3.2006 17:46
Öruggur sigur Manchester United Manchester United sáu til þess að vikan sem er að renna sitt skeið á enda er eins sú versta sem Steve Bruce, fyrrum United maður, hefur séð. Lið hans fékk á sig tíu mörk í vikunni en það tapaði 3-0 fyrir United í dag og 7-0 gegn Liverpool í ensku bikarkeppninni í vikunni. Sport 26.3.2006 16:52
KR-ingar teknir í karphúsið Njarðvík vann öruggan sigur á KR í fyrsta leik þeirra í undanúrslitaeinvíginu í Iceland-Express deild karla en leikurinn var í beinni útsendingu á Sýn. Herbert Guðmundsson þjálfari KR baðst afsökunar á slakri frammistöðu sinna manna sem töpuðu stórt, 101-65. Sport 26.3.2006 16:43
Man Utd yfir í hálfleik Manchester United er 2-0 yfir gegn döpru liði Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Ryan Giggs skoraði bæði mörkin, það fyrra með glæsilegri aukaspyrnu en hið seinna eftir lipra sókn og góða sendingu frá Wayne Rooney. Ruud Van Nistelrooy er ekki í byrjunarliði United sem hefur verið miklu mun betra í leiknum og á að vera komið lengra yfir í leiknum. Sport 26.3.2006 15:47
Njarðvík langt yfir í hálfleik Njarðvíkingar eru á góðri leið með að tryggja sér sigur í fyrsta leik undanúrslitaeinvígisins gegn KR í Iceland Express deild karla. Þeir hafa átján stigum fyrir í hálfleik, 47-29, og hafa borið höfuð og herðar yfir KR-inga sem þurfa að spýta verulega í lófana ef þeir ætla sér að stela sigrinum í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Sport 26.3.2006 15:44
Öruggur sigur Loeb Franski ökuþórinn Sébastien Loeb sigraði örugglega í Katalóníurallinu sem fór fram um helgina á Spáni. Loeb ekur Citroën Xsara fyrir Kronos-liðið en hann endaði 48,2 sekúndum á undan Spánverjanum Dani Sordo, sem einnig ekur um á Citroën Xsara. Í þriðja sæti varð Finninn Marcus Grönholm á Ford Focus, 1,45 mínútum á eftir Loeb. Sport 26.3.2006 15:21
Charlton vann Newcastle Charlton bar sigurorð af Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn fyrir Charlton og átti skínandi dag í hjarta varnarinnar, líkt og endranær. Sport 26.3.2006 14:34
Frábær sigur Boro á Bolton Middlesbrough vann frábæran 4-3 sigur á Bolton í stórskemmtilegum leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Þrátt fyrir tilraunir Howard Webb dómara til að vera hvað mest í sviðsljósinu var það skemmtanagildi leiksins sem stóð uppúr í lokin. Sport 26.3.2006 14:10
Njarðvík-KR í beinni á Sýn klukkan 15 Vísir.is minnir alla á beina útsendingu Sýnar frá stórleik Njarðvík og KR í undanúrslitum Iceland-Express deildar karla í körfubolta. Leikurinn hefst klukkan 15.00 en útsending Sýnar skömmu áður. Keflavík vann í gær góðan sigur á Skallagrímsmönnum í hinni undanúrslitaviðureigninni. Sport 26.3.2006 14:06
Allir vilja enskan landsliðseinvald Sam Allardyce stjóri Bolton telur að allir Englendingar vilji sá Englending stýra enska landsliðinu þegar Sven Göran Eriksson hættir með liðið eftir HM í sumar. Allardyce hefur verið sterklega orðaður við starfið sem hann hefur aldrei farið dult með aðdáun sinni á. Sport 26.3.2006 13:53
Vilja breyta Meistaradeildinni G-14 hópurinn, þar sem saman eru komin átján af stærstu knattspyrnuliðum heims, vilja breyta Meistaradeildinni í knattspyrnu á nýjan leik til að fá sautján leikdaga í stað þrettán eins og staðan er í dag. Sport 26.3.2006 13:33
Línurnar að skýrast í Vesturdeildinni Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Línur eru teknar að skýrast fyrir úrslitakeppnina í Vesturdeildinni, en Sacramento vann mjög mikilvægan útisigur á Utah Jazz 91-89 í beinni útsendingu á NBA TV í nótt og tók þar með stórt skref í að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Sport 26.3.2006 04:30
Góður sigur Lemgo Lemgo vann í dag mikilvægan sigur á Gummersbach á útivelli 29-27 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Áskorendakeppni Evrópu í handbolta. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 7 mörk fyrir heimamenn og Róbert Gunnarsson 1, en Logi Geirsson skoraði 4 mörk fyrir Lemgo, sem er nú með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn. Sport 25.3.2006 19:43
Þetta var hendi Framherjinn Didier Drogba viðurkenndi að hann hefði fengið knöttinn í höndina þegar hann skoraði annað mark Chelsea í sigrinum á Manchester City í dag, en Sylvain Distin leikmanni City var vikið af leikvelli fyrir kröftug mótmæli sín vegna atviksins. Sport 25.3.2006 19:14
Stúdínur lögðu Hauka Lið ÍS náði að jafna metin í 1-1 í rimmu sinni við deildarmeistara Hauka í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna í dag með góðum sigri í Kennaraháskólanum 83-71. Liðin þurfa því að mætast að Ásvöllum í oddaleik um hvort liðið mætir Keflavík í úrslitunum. Sport 25.3.2006 19:22
Gerrard lærir af mistökunum Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir að Steven Gerrard muni læra af mistökum sínum í dag þegar hann lét reka sig af velli í leiknum gegn Everton eftir aðeins 18 mínútna leik. Benitez var þó ánægður með að sínir menn skyldu ná að vinna leikinn þrátt fyrir að vera manni færri lengst af. Sport 25.3.2006 19:00
ÍBV í sterkri stöðu Kvennalið ÍBV stendur með pálmann í höndunum fyrir lokaumferðina í DHL-deild kvenna í handknattleik eftir að liðið sigraði Gróttu 28-24 í Vestmannaeyjum í dag. Á sama tíma töpuðu Íslandsmeistarar Haukar fyrir Val 28-25 og því hefur ÍBV eins stigs forskot á Hauka og Val fyrir lokaumferðina. Sport 25.3.2006 18:18
Keflvíkingar lögðu Skallagrím Keflvíkingar lögðu Borgnesinga í dag í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfuknattleik 97-82. Keflavík hefur því náð 1-0 forystu í einvíginu og næsti leikur fer fram í Borgarnesi. Sport 25.3.2006 18:14
Chelsea lagði Manchester City Chelsea gefur ekkert eftir í baráttunni um enska meistaratitilinn og í dag lagði liðið Manchester City 2-0 á Stamford Bridge með tveimur mörkum frá Didier Drogba á þriggja mínútna kafla í fyrri hálfleik, hið fyrra eftir sendingu Eiðs Smára Guðjohnsen. Sylvain Distin var rekinn af leikvelli í liði City á 45. mínútu. Chelsea hefur nú 14 stiga forskot á toppi deildarinnar og á leik til góða á Liverpool sem er í öðru sætinu. Sport 25.3.2006 17:15