Íþróttir
234 235 236 237 238 239 240 241 242 … 334 ›
Spáir meiri spennu á næsta tímabili Alex Ferguson segist vænta þess að baráttan um enska meistaratitilinn verði mun harðari á næsta keppnistímabili og spáir því að sínir menn ásamt Arsenal muni veita Englandsmeisturum Chelsea miklu betri samkeppni en í ár. Sport 8.4.2006 19:02
Maradona tilbúinn að taka við Argentínu Knattspyrnugoðið Diego Maradona segist vera tilbúinn að taka við argentínska landsliðinu eftir HM ef illa gengur hjá núverandi þjálfara liðsins Jose Pekerman á mótinu og segir nauðsynlegt að landar sínir læri af mistökunum í Kóreu og Japan fyrir fjórum árum þegar liðið komst ekki upp úr riðli sínum. Sport 8.4.2006 18:47
Öskubuskuævintýrið fest á filmu Öskubuskuævintýrið Wigan Athletic hefur unnið hug og hjörtu knattspyrnuáhugamanna víðar en á Englandi, því undanfarið hefur bandarískt kvikmyndafyrirtæki verið að mynda leikmenn liðsins með það fyrir augum að búa til kvikmynd um ótrúlegan árangur liðsins á undanförnum árum. Framganga smáliðsins í ensku úrvalsdeildinni í vetur þykir með ólíkindum og nú er stefnt að því að leyfa áhorfendum í Bandaríkjunum að njóta hennar á hvíta tjaldinu. Sport 8.4.2006 19:20
Jafnt hjá Real Madrid og Sociedad Real Madrid náði aðeins jafntefli við Real Sociedad á heimavelli í kvöldleiknum í spænska boltanum. Ronaldo skoraði sitt 100. mark fyrir Real snemma leiks en þurfti síðar að fara af velli meiddur. Það var svo Gonzales sem tryggði Sociedad jafntefli með marki á 62. mínútu eftir skelfileg mistök Casillas í marki Madridarliðsins. Guti fékk svo að líta rauða spjaldið skömmu fyrir leikslok. Sport 8.4.2006 19:51
Real Madrid yfir gegn Sociedad Real Madrid hefur yfir 1-0 í hálfleik gegn Real Sociedad í kvöldleiknum í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en leikurinn fer fram á Bernabeu heimavelli Real Madrid. Það var brasilíski framherjinn Ronaldo sem kom heimamönnum yfir á 26. mínútu. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 8.4.2006 19:10
Bremen burstaði Bayern Baráttan um Þýskalandsmeistaratitilinn í knattspyrnu opnaðist nokkuð í dag þegar Werder Bremen vann 3-0 sigur á meisturum Bayern Munchen á heimavelli sínum. Bastian Schweinsteiger skallaði boltann í eigið net eftir hálftíma leik og Daninn Daniel Jensen og Tim Borowski bættu við tveimur mörkum undir lokin til að fullkomna slæma viku fyrir Oliver Kahn, markverði Bayern. Sport 8.4.2006 18:39
Dunn tryggði Birmingham dýrmætt stig Lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni er lokið en það var viðureign nýliða Wigan og Birmingham á JJB Stadium í Wigan. Leiknum lauk með jafntefli 1-1. Andreas Johansson kom heimamönnum yfir með góðu skallamarki í upphafi síðari hálfleiks, en varamaðurinn David Dunn jafnaði metin á 77. mínútu og tryggði liði Birmingham gríðarlega mikilvægt stig í fallbaráttunni. Sport 8.4.2006 18:17
KA marði sigur á Aftureldingu KA vann í dag nauman sigur á Aftureldingu 29-28 í síðari leik dagsins í DHL-deild karla í handbolta, en leikið var í Mosfellsbæ. KA er í 7. sæti deildarinnar með 23 stig, en Afturelding í því 10. með 20 stig. Sport 8.4.2006 18:01
Öruggur sigur Njarðvíkinga Njarðvíkingar hafa náð 1-0 forystu í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla eftir öruggan sigur á Skallagrími 89-70 á heimavelli sínum í Njarðvík í dag. Brenton Birmingham skoraði 14 stig fyrir Njarðvíkinga og þeir Halldór Karlsson, Egill Jónasson og Jeb Ivey skoruðu 13 stig hver. Axel Kárason var stigahæstur í liði Skallagríms með 16 stig og George Byrd skoraði aðeins 10 stig. Næsti leikur fer fram í Borgarnesi á mánudagskvöldið. Sport 8.4.2006 17:35
Keppni frestað vegna veðurs Keppni á Masters-mótinu í golfi hefur nú verið frestað um ófyrirséðan tíma vegna hættu á þrumuveðri. Bandaríkjamaðurinn Chad Campbell hefur þriggja högga forystu á næsta mann og er á sex höggum undir pari þegar keppni var hætt. Sport 8.4.2006 17:29
Loeb í góðri stöðu Heimsmeistarinn Sebastien Loeb á Citroen er í góðri stöðu eftir annan keppnisdaginn í Korsíkurallinu og hefur tæplega 40 sekúndu forskot á Marcus Grönholm á Ford sem er í öðru sætinu. Loeb vann tvær af fjórum sérleiðum í dag, en hann vann hverja einustu sérleið í sama ralli í fyrra. Grönholm hefur hinsvegar fagnað sigri á tveimur fyrstu mótum ársins og hefur fyrir vikið ágæta forystu í stigakeppni ökuþóra. Sport 8.4.2006 17:17
Mayweather mætir Judah Bardagi Floyd Mayweather og Zab Judah verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í nótt og hefst útsendingin klukkan eitt eftir miðnættið. Mayweather hefur aldrei tapað bardaga og ætlar sér að hirða IBF-beltið af Judah, en Mayweather er almennt álitinn besti hnefaleikari heims í dag, pund-fyrir-pund. Sport 8.4.2006 15:49
Viðsnúningur í Njarðvík Njarðvíkingar hafa snúið dæminu við í fyrsta leiknum við Skallagrím í úrslitum Iceland Express deildarinnar, því þeir hafa nú 11 stiga forystu þegar flautað hefur verið til hálfleiks 43-32. Skallagrímur skoraði aðeins 9 stig í öðrum leikhluta. Jeb Ivey er stigahæstur heimamanna með 11 stig, en Axel Kárason og George Byrd hafa skorað 8 stig hvor fyrir gestina úr Borgarnesi. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 8.4.2006 16:38
Fram rótburstaði ÍR Fram tók ÍR í sannkallaða kennslustund í DHL-deildinni í dag og vann 20 marka sigur á heimavelli sínum 44-24 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 23-9 Fram í vil. Jóhann Gunnar Einarsson skoraði 11 mörk fyrir Fram og þeir Guðjón Drengsson og Sergei Serenko skoruðu 6 hvor. Lárus Ólafsson var besti maður ÍR í leiknum og varði 16 skot í markinu og kom þar með í veg fyrir að ÍR hlyti enn verri útreið gegn sjóðheitu toppliðinu. Sport 8.4.2006 16:27
Skallagrímur yfir eftir fyrsta leikhluta Skallagrímur hefur yfir 23-19 eftir fyrsta leikhluta í fyrsta leik úrslitaeinvígisins við Njarðvík í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn þar sem Svali Björgvinsson og Friðrik Ingi Rúnarsson lýsa leiknum af mikilli innlifun, dýpt og þunga. Sport 8.4.2006 16:18
Tap í lokaleiknum Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði lokaleik sínum á æfingamótinu í Tékklandi fyrir Úkraínu í dag 26-25 og tapaði þar með öllum leikjunum á mótinu og hafnaði í neðsta sætinu. Úkraínska liðið hafði fyrir leikinn tapað öllum sínum viðureignum á mótinu. Sport 8.4.2006 16:14
Portsmouth og Blackburn skildu jöfn Portsmouth nældi sér í mikilvægt stig í botnbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið gerði jafntefli við Blackburn 2-2 á heimavelli sínum. Craig Bellamy skoraði bæði mörk gestanna en þeir Lua-Lua og Svetoslav Todorov skoruðu fyrir heimamenn, sá síðarnefndi tryggði Portsmouth stigið með marki á 78. mínútu. Blackburn varð hinsvegar af mikilvægum stigum í baráttunni um Evrópusæti. Sport 8.4.2006 16:06
Hamburg og Kronau/Östringen í úrslit bikarsins Óvænt úrslit urðu í undanúrslitum þýska bikarsins í handbolta í dag þegar Krönau/Östringen lagði sterkt lið Kiel 33-31 og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Þar mun liðið mæta Hamburg sem sló Íslendingalið Magdeburg úr keppni 31-30. Úrslitaleikurinn fer fram strax á morgun. Sport 8.4.2006 15:42
Fram að valta yfir ÍR Topplið Fram í DHL-deild karla í handbolta er að taka ÍR-inga í bakaríið á heimavelli sínum og hefur yfir 23-9 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Jóhann Gunnar Einarsson hefur skorað 7 mörk fyrir Fram og Haraldur Þorvarðarson hefur skorað 5 mörk. Það er því greinilegt að Fram ætlar ekkert að gefa eftir í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Sport 8.4.2006 15:38
Óviss með að landa Ballack Jose Mourinho, stjóri Englandsmeistara Chelsea, segist hreint ekki viss um að félagið nái að landa stórstjörnunni Michael Ballack frá Bayern Munchen í sumar, en talið er víst að Þjóðverjinn fari frá Bayern og fram að þessu hefur Chelsea verið talið öruggt með að landa honum. Sport 8.4.2006 15:16
Jafnt í hálfleik hjá Portsmouth og Blackburn Staðan í leik Portsmouth og Blackburn í ensku úrvalsdeildinni er jöfn 1-1 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Craig Bellamy kom gestunum yfir á 32. mínútu, Lua-Lua jafnaði metin fyrir heimamenn á þeirri 41. Þá er markalaust í leik Charlton og Everton. Sport 8.4.2006 15:07
Leikur Sunderland og Fulham flautaður af Leik Sunderland og Fulham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu var frestað vegna snjókomu. Heiðar Helguson var í byrjunarliði Fulham, sem hafði náð forystu áður en Mike Riley dómari flautaði leikinn af eftir 21 mínútu. Þá var engu líkara en að jólin væru komin í Sunderland og völlurinn orðinn skjannahvítur. Sport 8.4.2006 15:01
Dallas setur pressu á San Antonio Dallas Mavericks setti mikla pressu á meistara San Antonio Spurs í nótt þegar liðið hafði betur 92-86 í leik liðanna í San Antonio. Það var Þjóðverjinn Dirk Nowitzki sem gerði gæfumuninn hjá Dallas og skoraði 19 af 30 stigum sínum í síðari hálfleik. Nú hefur San Antonio því aðeins eins leiks forystu á Dallas á toppi Vesturdeildarinnar, en baráttan um efsta sætið verður gríðarlega hörð á lokasprettinum. Sport 8.4.2006 14:18
Tottenham lagði Manchester City Tottenham heldur sínu striki í baráttunni um Meistaradeildarsætið eftir góðan sigur á Manchester City á heimavelli sínum White Hart Lane í dag 2-1. Mörk heimamanna skoruðu Paul Stalteri og Michael Carrick, en Georgios Samaras minnkaði muninn fyrir Manchester City. Tottenham situr því enn í fjórða sæti deildarinnar, en grannar þeirra í Arsenal eru í fimmta sætinu og geta enn komist ofar í töfluna ef þeir vinna leikina tvo sem þeir eiga til góða. Sport 8.4.2006 14:07
Nýhestamót Sörla Nýhestmót Sörla verður haldið á morgun, sunnudaginn 9.apríl að Sörlastöðum og hefst keppnin klukkan 15:00 Skráning hefst kl. 14:00 í dómpallinum. Eins og nafnið gefur til kynna þá mega bara hestar keppa sem ekki hafa unnið til verðlauna (sama hvar á landinu) en að sjálfsögðu er í lagi ef hesturinn hefur unnið á þessu ári. (2006). Sport 8.4.2006 12:01
Kvennatölt Gusts og Landsbankans Um er að ræða stærsta opna töltmót landsins sem haldið verður í reiðhöll Gusts í Kópavogi í dag, en skráningar eru um 120 sem er met. Konur víðsvegar af landinu munu etja kappi saman á gæðingum sínum og eru margar fremstu reiðkonur landsins skráðar til leiks. Sport 8.4.2006 11:14
Orlando - Detroit í beinni Leikur Orlando Magic og Detroit Pistons verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV rásinni á Digital Ísland og hefst útsending um klukkan 23 í kvöld. Detroit er enn með bestan árangur allra liða í deildinni og er í góðri aðstöðu til að tryggja sér heimavallarréttinn í úrslitakeppninni. Sport 7.4.2006 21:52
Fylkir valtaði yfir Þór Einn leikur fór fram í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Fylkir valtaði yfir Þór á heimavelli sínum í Árbænum 39-26, eftir að hafa verið yfir 19-11 í hálfleik. Arnar Sæþórsson og Agnar Agnarsson skoruðu 8 mörk hvor fyrir Árbæinga, en Arnór Gunnarsson var markahæstur í liði norðanmanna með 9 mörk. Fylkir er í fjórða sæti deildarinnar með 32 stig en Þór í því tólfta með aðeins 13 stig. Sport 7.4.2006 20:54
Haukar Íslandsmeistarar Haukastúlkur tryggðu sér í kvöld sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í körfuknattleik kvenna þegar liðið lagði Keflavík 81-77 í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu. Haukar unnu því samtals 3-0 og eru vel að titlinum komnir eftir frábæran árangur í vetur. Sport 7.4.2006 20:48
Hrósar Arsenal í hástert Landsliðsþjálfari Ítala, Marcello Lippi, á var til orð til að lýsa hrifningu sinni á framgöngu Arsenal í Meistaradeildinni eftir að liðið sló Juventus úr keppni á dögunum. Lippi segir að ítölsku liðin geti lært mikið af Arsenal og dirfsku Arsene Wenger, sem hefur þorað að treysta á unga leikmenn liðsins í vetur. Sport 7.4.2006 19:41