

Samfylkingin telur að kennaraverkfallið sé í mjög illleysanlegum hnút sem ekki sé hægt að höggva á nema ríkisvaldið komi að málunum.
Tónlistarskólakennarar hafa lýst yfir stuðningi við kjarabaráttu grunnskólakennara. Á svæðisþingi tónlistarskóla á Suðurlandi, Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu, sem haldið var í Reykjavík 24. september sl., var eindregnum stuðningi við launakröfur grunnskólakennara lýst yfir.
Kennarar telja að sveitarstjórnarmenn geri sér ekki alveg grein fyrir kröfum grunnskólakennara og skýli sér um of á bak við samninganefnd sveitarfélaganna. Þeir telja að sveitarstjórnarmenn gætu liðkað fyrir lausn verkfallsins.
Heimili og skóli – landssamtök foreldra, hafa sent frá sér ályktun, þar sem segir að staðan í kjaraviðræðum Kennarasambands Íslands og launanefndar sveitarfélaga sé með öllu óviðunandi. Þar segir jafnframt að Alþingi setji lög um grunnskóla og stjórnvöldum beri því að fylgjast með því að sveitarfélög uppfylli skyldur sínar um að halda úti skóla fyrir öll börn.
Grunnskólakennarar í Kópavogi fjölmenntu á fund forseta bæjarstjórnar í dag til að skora á hann að beita sér fyrir lausn kjaradeilunnar við kennara. Að því loknu flykktust kennarar á bæjarstjórnarfund.
Þremur nýjum umsóknum til undanþágunefndar kennara og sveitarfélaganna var hafnað í gær. Sjö öðrum beiðnum var frestað af mismunandi ástæðum, segir Sigurður Óli Kolbeinsson lögfræðingur sem situr í nefndinni fyrir sveitarfélögin.