Kauphöllin
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 79 ›
Seldi í Hampiðjunni á níu prósenta „afslætti“ skömmu eftir að sölubann rann út Aðeins rétt ríflega tveimur mánuðum eftir að sölubann á liðlega sjö prósenta hlut FSN Capital í Hampiðjunni rann út, sem það fékk sem greiðslu fyrir sölu á Mørenot fyrr á árinu, hefur norski fjárfestingasjóðurinn selt um tvo þriðju af stöðu sinni til hóps íslenskra fjárfesta fyrir vel á fjórða milljarð. Væntingar um að sjóðurinn sé enn með talsvert framboð af bréfum til sölu gæti haldi niðri gengi bréfa Hampiðjunnar. Innherji 23.10.2023 12:37
Útlit fyrir að EBIT-hlutfall Marels verði undir tíu prósent á krefjandi fjórðungi Gangi spár greinenda eftir verður samdráttur á flestum sviðum Marels á milli ára þegar félagið birtir uppgjör sitt fyrir þriðja fjórðung eftir lokun markaða í dag og að framlegðarhlutfallið muni vera um rétt tæplega tíu prósent. Hlutabréfaverð Marels hefur fallið um liðlega fjórðung á innan við tveimur mánuðum og ekki verið lægra frá því snemma árs 2018. Innherji 23.10.2023 09:49
Síldarvinnslan betur í stakk búin fyrir loðnubrest en drekkri horfur eru í útgerð Engin loðnuúthlutun hefði haft mun verri afleiðingar fyrir Síldarvinnsluna fyrir tveimur til þremur árum. Útgerðin hefur dreift áhættu í rekstrinum með því að auka bolfiskveiðar, segir í hlutabréfagreiningu. Innherji 20.10.2023 15:27
Greinandi Citi hækkar verðmat sitt á Alvotech um hundrað prósent Greinandi bandaríska fjárfestingabankans Citi, sem hefur mælt með sölu á bréfum í Alvotech frá því um haustið 2022, hefur nú uppfært verðmat sitt á íslenska líftæknilyfjafélaginu um hundrað prósent og ráðleggur fjárfestum að halda í bréfin. Hann er vongóður um að Alvotech verði fyrsta fyrirtækið til að komast inn á Bandaríkjamarkað með hliðstæðu við Humira, mesta selda lyf í heimi, í háum styrk og með útskiptileika. Innherji 20.10.2023 11:59
Heildartekjur Icelandair aldrei verið meiri á einum ársfjórðungi Heildartekjur Icelandair voru 74,7 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi. Í tilkynningu frá félaginu segir að það sé það séu mestu heildartekjur félagsins frá upphafi, en þær jukust um sautján prósent frá því í fyrra. Viðskipti innlent 19.10.2023 17:39
Forstjóri Haga hefur áhyggjur af „sterkum hækkunartakti“ á innlendri framleiðslu Teikn eru á lofti um að hægt hefur á verðhækkunum á innfluttri dagvöru, segir forstjóri Haga, en hann hefur áhyggjur af „sterkum hækkunartakti“ á innlendri framleiðsluvöru. Innherji 19.10.2023 15:01
Þurfum að læra af vandræðum Breta sem kæfðu hlutabréfamarkaðinn Við þurfum að læra af vandræðum Breta sem gengur illa að fjármagn vöxt fyrirtækja þar í landi því það er búið að kæfa innlenda hlutabréfamarkaðinn. Í draumaheimi gætu íslenskir lífeyrissjóðir eflaust fjárfest meira og minna erlendis og á móti flæddi erlent fjármagn inn í íslenskt atvinnulíf. Því miður er það ekki þannig. Litla Ísland lendir yfirleitt neðarlega á forgangslista erlendra fjárfesta þótt það séu vissulega jákvæð teikn á lofti í þeim efnum, segir framkvæmdastjóri hjá Kauphöllinni. Innherji 18.10.2023 17:33
Skuldabréfamarkaðurinn verið að dýpka og veltuhlutfallið ekki hærra um árabil Framkvæmdastjóri eins af stærstu lífeyrissjóðum landsins furðar sig á umræðu um grunnan skuldabréfamarkað hérlendis, sem veltutölur sýni að hafi í reynd verið að dýpka fremur en hitt að undanförnu, en stjórnendur Seðlabankans hafa sagt ekki hægt að draga of miklar ályktanir til skemmri tíma um verðbólguálagið byggt á viðskipum á þeim markaði. „Hvenær var það þá síðast hægt?“, spyr hann og segir mikilvægt að bæta upplýsingamiðlun þegar rætt sé um skilvirkni markaða. Innherji 17.10.2023 10:51
Verðmat Brims lækkar um fimmtung og horfurnar sagðar „ekki sérlega bjartar“ Fátt fellur með sjávarútvegsfélögunum um þessar mundir, meðal annars hækkandi olíuverð, sterkt gengi krónunnar og enginn loðnukvóti, sem þýðir að verðmat Brims hefur verið lækkað um tæplega fimmtung. Hlutabréfagreinandi Jakobsson Capital gagnrýnir Samkeppniseftirlitið fyrir að hafa ætlað að taka að sér verktöku fyrir matvælaráðuneytið, sem eðlilegra væri að ráðgjafafyrirtæki myndi gera, og þannig fara í „samkeppni við lítilmagnann.“ Innherji 16.10.2023 12:23
Ölgerðin hefur „vaxandi áhyggjur“ af erfiðleikum veitingahúsa Farið er að bera á erfiðleikum í rekstri veitingahúsa. „Við höfum vaxandi áhyggjur af því,“ sagði forstjóri Ölgerðarinnar á fundi með fjárfestum. Hann nefndi að það hefði ekki í för með sér „stór fjárhagsleg áföll“ fyrir fyrirtækið og fjárhagur Ölgerðarinnar réði vel við slík vandræði. Einnig var rætt um að vatn væri gullnáma og koffíndrykkir seljist í fyrsta skipti betur en kóladrykkir í stórmörkuðum. Innherji 13.10.2023 13:49
Útlit fyrir stórbætta afkomu Arion þótt virði lánasafnsins verði fært niður Væntingar eru um að hagnaður Arion banka eigi eftir að aukast um nærri helming milli ára, einkum vegna meiri vaxtatekna og viðsnúnings í fjármunatekjum, enda þótt virðisbreyting útlána verði neikvæð um rúmlega hálfan milljarð samhliða versnandi efnahagshorfum. Þrátt fyrir að afkoma Íslandsbanka, hinn stóri bankinn sem er skráður á markað, muni versna nokkuð vegna meðal annars aukins rekstrarkostnaðar þá verður arðsemin í samræmi við markmið, gangi spár hlutabréfagreinenda eftir. Innherji 13.10.2023 11:25
Gengi Amaroq rýkur upp eftir „ótrúlegar“ niðurstöður úr borunum eftir gulli Hlutabréfaverð auðlindafyrirtækisins Amaroq Minerals hefur hækkað skarpt eftir að tilraunaboranir leiddu í ljós hæsta gullmagn í sögu félagsins, meðal annars uppgötvun á nýrri gullæð, en niðurstöðurnar voru umfram væntingar að sögn forstjórans og eykur vissu um að áætlanir þess muni standast. Nokkrum dögum áður en þær niðurstöður lágu fyrir hafði breskur fjárfestingabanki hækkað verðmat sitt á Amaroq upp í tæplega 50 milljarða króna, liðlega 85 prósent yfir núverandi markaðsgengi. Innherji 11.10.2023 10:27
Marel réttir út kútnum vegna væntinga um minni söluþrýsting erlendra sjóða Hlutabréfaverð Marels, sem hefur verið undir stöðugum þrýstingi til lækkunar um nokkurt skeið, hækkaði skarpt við opnun Kauphallarinnar í morgun – heldur dró úr þeim verðhækkunum er leið á daginn – þegar fjárfestar vörpuðu öndinni léttar um að framboð á bréfum til sölu hjá erlendum sjóðum væri búið að klárast í bili. Hlutabréfamarkaðurinn snérist við fljótlega eftir óvænta afsögn Bjarna Benediktssonar sem fjármálaráðherra vegna aukinnar pólitískrar óvissu í augum fjárfesta. Innherji 10.10.2023 17:07
Það sé hluthöfum Kviku til hagsbóta að selja TM úr samstæðunni Eftir mikla lækkun á hlutabréfaverði Kviku að undanförnu er ljóst að TM er orðið verulega undirverðlagt innan samstæðu bankans og því eru það hagsmunir hluthafa að selja eininguna frá sér, að sögn greinanda á markaði, en líklegustu kaupendurnir verða að teljast Íslandsbanki og Landsbankinn. Sé litið á efnislegt eigið fé TM er markaðsvirði félagsins, miðað verðlagningu hinna tryggingafélaganna á markaði, líklega nokkuð vel undir 30 milljörðum um þessar mundir. Innherji 5.10.2023 14:36
Kaup Sýnar á Já fá grænt ljós Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Sýnar á Eignarhaldsfélaginu Njálu ehf., móðurfélagi Já hf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýn. Í sáttinni felst að síðasta fyrirvara í samningi um kaup Sýnar er aflétt. Viðskipti innlent 5.10.2023 11:28
Ásmundur Tryggvason ráðinn forstjóri Styrkáss Ásmundur Tryggvason hefur verið ráðinn forstjóri Styrkáss, nýs þjónustufyrirtækis sem samanstendur af Skeljungi og Kletti. Skrá á félagið í Kauphöll á Íslandi fyrir árslok 2027 og mun Ásmundur leiða þá vinnu. Innherji 4.10.2023 13:02
Kvika boðar sölu á TM og vill styrkja „verulega“ bankastarfsemina Aðeins 30 mánuðum eftir að Kvika og TM sameinuðust formlega hefur stjórn bankans ákveðið að hefja undirbúning að sölu eða skráningu á tryggingafélaginu, sem hefur verið sagt líklega hið „ódýrasta“ á markaði, en tekjusamlegð af bankastarfsemi og tryggingarrekstri hefur reynst „takmörkuð.“ Horft er til þess að greiða út stóran hluta söluandvirðis til hluthafa en bæði greinendur og stórir hluthafar höfðu hvatt Kviku til að skoða sölu eigna með hliðsjón af því að markaðsgengi bankans væri undir upplausnarvirði. Innherji 3.10.2023 21:06
Kvika stefnir á sölu eða skráningu TM Í framhaldi af stefnumótunarvinnu Kviku banka hefur stjórn Kviku tekið ákvörðun um að hefja undirbúning að sölu eða skráningu TM trygginga hf.. Viðskipti innlent 3.10.2023 19:23
Skráning Arnarlax „skref í að ná meiri samfélagslegri sátt“ um laxeldi Það er ekki á hverjum degi sem fyrirtæki á Bíldudal er skráð á hlutabréfamarkað, sagði forstjóri Arnarlax við skráningu laxeldsins á markað. „Þetta er skref í að ná meiri samfélagslegri sátt um það sem við erum að gera.“ Innherji 3.10.2023 16:00
Hvernig fylgist ég með hlutabréfamarkaðnum? Almenningshlutabréfamarkaðir byggja á gagnsæi. Fjárfestar hafa aðgang að aragrúa upplýsinga um skráð félög, hlutabréfaverð, viðskipti, hagtölur og margt fleira. Skráðu félögin þurfa samkvæmt lögum og reglum að birta alls konar upplýsingar opinberlega. Skoðun 3.10.2023 13:30
Verðlagning hlutabréfa lækkaði á ný Í september lækkaði svonefndur hagsveifluleiðréttur hagnaður (CAPE) sem hlutfall af virði Úrvalsvísitölunnar í Kauphöllinni, eða úr 29,4 í 26,6, sem má rekja til liðlega níu prósenta lækkunar á hlutabréfaverði félaganna að baki vísitölunni. Umræðan 2.10.2023 09:47
Samrunaviðræður Eikar og Reita í strand Fasteignafélögin Eik og Reitir hafa hætt viðræðum um mögulegan samruna fasteignafélaganna tveggja. Viðskipti innlent 1.10.2023 19:21
Móðurfélag Arnarlax mætt First North-markaðinn Icelandic Salmon AS, móðurfélag laxeldisfyrirtækisins Arnarlax, var skráð á Nasdaq First North vaxtarmarkaðinn á Íslandi. Félagið verður með auðkennið ISLAX. Viðskipti innlent 29.9.2023 14:56
Guðmundur hættir aftur hjá Bónus Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, hefur óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu frá og með áramótum. Hann hefur gegnt starfinu síðan árið 1998, 25 ár. Björgvin Víkingsson, aðstoðarframkvæmdastjóri og innkaupastjóri Bónus hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra og tekur við um áramótin. Viðskipti innlent 27.9.2023 16:29
Lífeyrissjóðir vilja bíða með aukið valfrelsi og starfshópur rýni málið Landssamtök lífeyrissjóða og Frjálsi lífeyrissjóðurinn leggja til að beðið verði með að leggja frumvarp um aukið valfrelsi til fjárfestinga í viðbótarsparnaði og að hópur sem vinnur að gerð grænbókar um lífeyriskerfið rýni í málið fyrst. Grænbókin er undanfari hvítbókar með tillögum um lagabreytingar. Innherji 27.9.2023 07:31
Ísfélagið setur stefnuna á risaskráningu á markað undir lok ársins Sjávarútvegsrisinn Ísfélagið, nýlega sameinað fyrirtæki Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma á Siglufirði, hefur gengið frá ráðningum á helstu fjármálaráðgjöfum vegna undirbúnings að skráningu og frumútboði félagsins í Kauphöllina. Gangi núverandi áætlanir Ísfélagsins eftir verður fyrirtækið eitt hið stærsta að markaðsvirði á íslenskum hlutabréfamarkaði áður en árið er liðið. Innherji 26.9.2023 17:04
Ódýrasta tryggingafélagið á hlutabréfamarkaði sé „líklega“ TM Markaðsvirði Sjóvár og VÍS er næstum tvöfalt á við bókfært virði eigin fjár á meðan fjárfestar verðleggja Kviku, sem á TM, á tæplega bókfært eigið fé. „Þetta er sérstaklega athyglisvert því að rekstur TM er stór hluti“ í rekstri bankans, segir í hlutabréfagreiningu, og TM sé því „líklega“ ódýrasta tryggingafélagið á markaðinum. Innherji 26.9.2023 13:01
Bandaríski risinn Capital Group stækkar enn stöðu sína í Íslandsbanka Sjóðastýringarfélagið Capital Group, stærsti erlendi fjárfestirinn í hlutahafahópi Íslandsbanka, jók nokkuð við eignarhlut sinn fyrr í þessum mánuði eftir að hlutabréfaverð bankans hafði fallið skarpt síðustu vikur. Erlendir fjárfestar hafa ekki átt stærri samanlagðan hlut í bankanum frá skráningu hans sumarið 2021. Innherji 26.9.2023 10:42
Kaup Brims á hlut í Iceland Seafood „skref í að vinna með öðrum í sölu“ Forstjóri Brims segir um kaup á ellefu prósenta hlut í Iceland Seafood International að lengi hafi staðið til að styrkja sölukerfi útgerðarinnar á fiskafurðum. „Þetta er eitt skref í að vinna með öðrum í sölu.“ Innherji 25.9.2023 16:38
Hagnaður Kviku eignastýringar minnkaði um nærri tvo þriðju milli ára Afkoma Kviku eignastýringar, sem er í eigu samnefnds banka, versnaði verulega á fyrstu sex mánuðum ársins frá fyrra ári samhliða erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum. Samanlagður hagnaður fjögurra stærstu sjóðastýringarfélaga landsins minnkaði um liðlega tíu prósent á tímabilinu. Innherji 24.9.2023 17:48