Fréttir af flugi
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 147 ›
Fatlaður maður þurfti að skríða út úr flugvélinni Maður sem notar hjólastól þurfti að toga sig áfram á höndunum út úr flugvél Air Canada þar sem flugfélagið útvegaði honum ekki hjólastól. Hann var á leið til Las Vegas ásamt konu sinni til að fagna brúðkaupsafmæli. Hjónin héldu að flugþjónar væru að grínast. Erlent 30.10.2023 21:57
Þekktur fluggreinandi lofar „kraftaverk“ Play Norski fluggreinandinn Hans Jørgen Elnæs segir flugfélagið Play hafa gert „kraftaverk“ með því að hafa skilað hagnaði upp á 5,2 milljónir bandaríkjadala á þriðja ársfjórðungi. Viðskipti innlent 28.10.2023 21:14
Neyðarsendir fór í gang við flutninga Starfsmenn Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitarmenn og lögregluþjónar voru með mikinn viðbúnað í dag þegar neyðarboð barst frá eins hreyfils flugvél í Fljótavík. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út og Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð virkjuð. Innlent 28.10.2023 16:26
Segir hátterni Play svartan blett á sögu kjarasamningsgerðar „Hátterni flugfélagsins Play í tengslum við hina meintu „kjarasamningagerð“ og sniðganga þeirra á eina frjálsa stéttarfélagi flugfreyja á Íslandi er svartur blettur á sögu kjarasamningagerðar á Íslandi,“ segir Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ. Innlent 27.10.2023 10:49
Play skilar hagnaði eftir skatt í fyrsta sinn Flugfélagið Play skilaði hagnaði upp á 5,2 milljónir bandaríkjadala, eða því sem nemur 724 milljónum íslenskra króna á þariðja ársfjórðungi 2023. Í samanburði tapaði félagið 2,9 milljónum bandaríkjadala, 404 milljónum króna á sama tímabili í fyrra. Forstjóri félagsins segist stoltur af árangrinum en um sé að ræða fyrsta skiptið sem félagið skili hagnaði eftir skatt. Viðskipti innlent 26.10.2023 20:51
Flugfreyjur segja Birgi vita vel að fullyrðingar hans hafi verið rangar Stjórn Flugfreyjufélags Íslands segir fullyrðingar Birgis Jónssonar, forstjóra Play, í Silfrinu á RÚV síðastliðinn mánudag um að félagið væri undir hatti Icelandair og semdi aðeins við það rangar. Birgir eigi að sögn félagsins að vita að þessar fullyrðingar hafi verið rangar. Innlent 26.10.2023 14:51
Krefjast svara um eftirlit og viðurlög vegna vildarpunktanotkunar Félag atvinnurekenda hefur óskað eftir svörum frá fjármálaráðherra um það hvernig eftirliti með ráðstöfun vildarkjara vegna greiðslu farmiða fyrir ríkisstarfsmenn er háttað og hver viðurlögin séu ef starfsmaður verður uppvís að því að nota vildarpunkta í eigin þágu. Innlent 26.10.2023 10:20
Telja líklegt að nasistar hafi haft eitthvað stærra í bígerð Gamlir svifflugmenn telja líkur á því að nasistar hafi nýtt þýskan svifflugleiðangur til Íslands skömmu fyrir stríð til að undirbúa mögulega innrás. Breski herinn taldi hættuna það mikla að hann gerði Sandskeið ónothæft sem flugvallarstæði með því að þekja það sprengigígum. Innlent 24.10.2023 22:22
Flugmaður ákærður fyrir að reyna að brotlenda farþegaþotu Bandarískur flugmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa freistað þess að valda vélarbilun farþegaþotu. Ákæran er í 83 liðum, sem endurspeglar fjölda farþega um borð. Erlent 24.10.2023 08:57
Telur nasista hafa myrt þýskan flugkennara á Íslandi árið 1938 Þýskur flugkennari sem kom til Íslands að kenna Íslendingum svifflug í aðdraganda síðari heimsstyrjaldar var myrtur í Reykjavík af útsendara nasista. Þetta er ályktun höfundar nýútkominnar bókar um njósnara nasista og SS-menn á Íslandi á valdatíma Adolfs Hitlers. Innlent 22.10.2023 19:48
Þrennir tónleikar í súginn eftir óveður og bilun Tónlistarkonan Hafdís Huld og aðdáendur hennar sitja eftir með sárt ennið eftir að flugferð hennar var frestað ítrekað og loks aflýst. Hún hefur þurft að aflýsa þrennum tónleikum á Bretlandseyjum vegna þessa. Lífið 22.10.2023 14:55
Biðja starfsfólk að láta yfirmenn vita Icelandair og Play styðja starfsfólk sem hyggst leggja niður störf vegna kvenna- og kváraverkfalls á þriðjudag. Isavia sem meðal annars rekur Keflavíkurflugvöll gerir slíkt hið sama. Fólk er beðið um að láta yfirmann vita ef það ætlar að taka þátt. Vonir eru bundnar við að ekki verði tafir á flugsamgöngum. Innlent 22.10.2023 10:50
Forstjóri Ríkiskaupa segir að persónulegur ávinningur megi ekki ráða för Forstjóri Ríkiskaupa segir að persónulegur ávinningur ríkisstarfsmanna, þar með talið alþingismanna, þegar hið opinbera kaupir flugferðir fyrir starfsfólk, megi ekki ráða för. Hún segir að rammasamningur um flugfargjöld sé í endurskoðun. Innlent 21.10.2023 12:06
Heildartekjur Icelandair aldrei verið meiri á einum ársfjórðungi Heildartekjur Icelandair voru 74,7 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi. Í tilkynningu frá félaginu segir að það sé það séu mestu heildartekjur félagsins frá upphafi, en þær jukust um sautján prósent frá því í fyrra. Viðskipti innlent 19.10.2023 17:39
Næstfjölmennasta ferðamannasumarið í ár Fjöldi ferðamanna var næstum sá sami í sumar og metsumarið 2018. Flestir voru Bandaríkjamenn, Þjóðverjar og Pólverjar. Ferðamenn dvöldu að jafnaði í um 6,8 nætur en Frakkar og Þjóðverjar dvöldu lengst, eða í um 10,9 nætur. Viðskipti innlent 19.10.2023 11:10
Gul viðvörun og flugferðum aflýst fram yfir hádegi Gul veðurviðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa, Suðvesturlandi og Miðhálendinu vegna suðaustan storms. Búast má við vind á bilinu fimmtán til 23 metrum á sekúndu og hviðum allt að 35 metra á sekúndu, sér í lagi undir fjallshlíðum. Veður 19.10.2023 06:25
Hrósar Íslendingum fyrir frábæra 75 ára þjónustu við alþjóðaflugið Þetta hefur verið kallað minnst þekkti útflutningsatvinnuvegur Íslands, hann skapar þó níu milljarða króna gjaldeyristekjur á þessu ári og yfir þrjúhundruð hálaunastörf. Þetta er flugumferðarþjónusta Íslendinga fyrir alþjóðaflugið en 75 ára afmæli hennar var fagnað í dag. Innlent 18.10.2023 21:45
Nær öllu flugi aflýst vegna óveðursins Nær öllum flugferðum frá Keflavíkurflugvelli í nótt og fram að hádegi á morgun hefur verið aflýst. Þá hefur einhverjum flugferðum verið frestað. Gul viðvörum tekur gildi á Suðurlandi og Faxaflóa klukkan tíu í kvöld og mun standa yfir í tæpan sólarhring. Innlent 18.10.2023 18:57
Kattakona nefndi nasista í kröfu sinni um bætur frá Icelandair Viðskiptavinur Icelandair sem ætlaði að ferðast með kött yfir Atlantshafið fær engar skaðabætur eftir að hafa verið hafnað að ferðast með dýrið. Viðskiptavinurinn ávarpaði fulltrúa Samgöngustofu sem nasista. Neytendur 18.10.2023 15:36
Vill að flugminjasafnið fái sína reisn á safnasvæðinu á Hnjóti Bútur úr fyrstu flugvél Íslendinga, elsta flugskýlið og gamall Varnarliðsþristur eru meðal gripa sem varðveittir eru á flugminjasafni lengst vestur á Vestfjörðum, á bænum Hnjóti í Örlygshöfn, dalkvos inn af Patreksfirði. Innlent 17.10.2023 21:21
Dularfullur maður í læknaslopp með fulla tösku af kannabis Erlendur karlmaður hefur hlotið fimmtán mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness, þar af verða tólf mánuðir skilorðsbundnir, fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Innlent 17.10.2023 09:01
Ný flugbraut kallaði á stærstu sprengingu í sögu Grænlands Gerð nýs aðalflugvallar fyrir Suður-Grænland virðist loksins komin á beinu brautina eftir langvarandi óvissu. Við flugbrautargerðina var hleypt af stærstu sprengingu í sögu Grænlands. Erlent 16.10.2023 22:11
Norðurljósaþota Icelandair í óvenjulegri ferð vegna bilunar Hekla Aurora, norðurljósavél Icelandair, var notuð í flugferðum innanlands til og frá Akureyri vegna bilunar í Q400-flugvél fyrirtækisins. Innlent 15.10.2023 19:44
Fuerteventura komin á fluglista PLAY Ómótstæðileg náttúrufegurð, gylltar strendur, kristaltær sjór og botnlaust úrval af útivist og afþreyingu gera eyjuna Fuerteventura að fullkomnum áfangastað fyrir þau sem þyrstir í sólarfrí.PLAY flýgur nú til þessarar sólarperlu. Lífið samstarf 12.10.2023 08:47
Ekkert flug til og frá Luton vegna mikils eldsvoða Búið er að loka Luton-flugvelli á Englandi vegna eldsvoða sem breiddist hratt út um bílageymslu á vellinum. Byggingin virðist hrunin að hluta og öll starfsemi vallarins liggur niðri. Erlent 11.10.2023 08:48
Nýjasta þota Airbus í krefjandi prófunum í hvassviðri í Keflavík Flugvélaframleiðandinn Airbus nýtti sér hvassviðrið á Íslandi í dag til flugprófana á nýjustu farþegaþotu sinni með því að lenda henni margsinnis í stífum hliðarvindi. Þetta er samskonar þota og ráðamenn Icelandair veðja á sem sína framtíðarvél. Innlent 10.10.2023 20:40
Slógu upp veislu því áhöfnin var valin sú besta Starfsfólk PLAY fjölmennti í Gamla Bíó síðastliðið föstudagskvöld til að fagna því að áhöfn flugfélagsins var valin sú besta af lesendum bandaríska fjölmiðilsins USA Today á dögunum. Lífið 10.10.2023 11:01
Fleiri með Play í september en á sama tíma í fyrra Aukning varð á fjölda farþega sem ferðuðust með flugfélaginu Play í september í samanburði við sama mánuð í fyrra. Félagið flutti 163,784 farþega í september, sem er 77 prósenta aukning frá september 2022 þegar PLAY flutti 92.181 farþega. Viðskipti innlent 9.10.2023 13:34
Flytja hópinn til Jórdaníu og flogið þaðan til Íslands Um 120 manna hópur Íslendinga sem nú er staddur í Ísrael mun halda til Jórdaníu í dag og verður flogið með hópinn frá höfuðborginni Amman til Íslands í kvöld. Innlent 9.10.2023 08:11
Fleiri farþegar í september en á sama tíma í fyrra Icelandair flutti 416 þúsund farþega í september. Þeir voru átta prósentum fleiri en í sama mánuði í fyrra. Það sem af er ári hefur félagið flutt um 3,4 milljónir farþega, nítján prósentum fleiri en yfir sama tímabil í fyrra. Viðskipti innlent 6.10.2023 09:49