Starfsfólkinu boðin lakari kjör Hádegisfréttir á Bylgjunni eru á sínum stað og eru sagðar klukkan tólf. Þar ber hæst að búist er við því að fyrstu tölur í þjóðaratkvæðagreiðslunni verði birtar í Suðurkjördæmi um klukkan hálf ellefu á laugardagskvöld. Rætt verður við formann yfirkjörstjórnar í Reykjavík norður, sem segir forvinnu fyrir talningu þegar hafna. 26.8.2026 11:32
Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Líklegt er að fyrstu tölur sem birtar verða úr þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn muni sýna fleiri nei. Tölurnar munu líklega fyrst koma af landsbyggðinni þar sem fleiri ætla að segja nei, samkvæmt könnunum. Reykvíkingar eru líklegastir til að segja já. 26.8.2026 08:54
Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Rúm sextán þúsund hafa greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram þann 29 ágúst. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðsluna ganga vel. Það sé mikill áhugi. 17.8.2026 13:36
Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Tilkynnt var um eina líkamsárás og eitt kynferðisbrot á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal í nótt. Að öðru leyti var nóttin ágæt, að sögn lögreglu á svæðinu. Hvassviðri er á Norðurlandi vestra og gul viðvörun tekur gildi í fyrramálið. Varað er við því að fólk sé á ferðinni á ökutækjum eða með eftirvagna. Telma Tómasson fréttamaður er á Hólum og hefur fylgst með gangi mála. 11.7.2026 12:22
„Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Landsmót hestamanna, sem að þessu sinni er haldið á Hólum í Hjaltadal, stendur nú sem hæst. Fjöldi gesta er nálægt sex þúsund og von á fleiri áhorfendum í kvöld, sem vilja sjálfsagt ekki missa af hápunktum helgarinnar. „Mótið stendur fyllilega undir væntingum,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri LM 2026. „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi, allt er eins og það á að vera. Bara gaman.“ 9.7.2026 16:31
Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Undirbúningur Landsmóts hestamanna er á lokametrunum, en búist er við allt að átta þúsund gestum, þar á meðal fjölda útlendra áhugamanna um íslenska hestinn. Mótssvæðið er sagt tilbúið fyrir þá hundruð hesta sem koma fram í keppni og sýningu, en samningaviðræður við veðurguðina standa enn yfir, að sögn framkvæmdastjóra mótsins. 28.6.2026 21:02
„Best að taka menn og sekta duglega“ Vegurinn sem erlendir ferðamenn fóru um og ollu síðan spjöllum utanvegar við Einhyrning, Kötlujökul og á Emstruleið, var lokaður og merktur með skiltum. Hlið á veginum á að koma í veg fyrir umferð, en þó bregður við að ökumenn, ekki síst Íslendingar, fari þar um og aki spottakorn, og snúi við, en loki ekki hliðinu á eftir sér. 22.6.2026 17:07
Óvissa með haustið en sér nú vonarglætu Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað eftir að Bandaríkjamenn og klerkastjórnin í Íran náðu saman um frið og opnun Hormússunds. Til stendur að undirrita samkomulagið á föstudag og hafa stjórnvöld í báðum ríkjum lýst því sem miklum sigri. Hér á landi eru kjarasamningar áfram í hættu en hagfræðingur segist nú sjá vonarglætu. 15.6.2026 20:25
Ari Edwald enn undir feldi Ari Edwald oddviti Miðflokksins í borginni hefur ekki enn gert upp hug sinn varðandi tillögu Hildar Björnsdóttur, verðandi borgarstjóra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um að hann taki að sér stjórnarformennsku í Orkuveitunni. 29.5.2026 15:56
Býr sig undir það versta en vonar það besta Bændur á Austurlandi og Norðurlandi hafa verið hvattir til að huga að lömbum sínum næstu daga vegna norðaustanhrets sem væntanlegt er á morgun. Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir Norðurland eystra, Austfirði, Miðhálendi og Austurland að Glettingi og þá hefur lögreglan á Norðurlandi vestra beðið bændur um að huga að lambfé. 27.5.2026 16:43