Saka Rússa um að myrða særða stríðsfanga í Avdívka Rússneskir hermenn hafa verið sakaðir um að taka særða úkraínska hermenn af lífi í borginni Avdívka í austurhluta Úkraínu. Mennirnir voru skildir eftir þegar úkraínski herinn yfirgaf borgina en forsvarsmenn hersins segja að samið hafi verið við Rússa um að hlúa að mönnunum, þar sem ekki var hægt að flytja þá á brott vegna meiðsla þeirra. 20.2.2024 17:02
Hættir við málsókn gegn ríkinu vegna aðgengi að Grindavík Maður sem höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna lokunar Grindavíkur hefur hætt við. Stefán Kristjánsson, forstjóri og eigandi fiskvinnslufyrirtækisins, hætti við þar sem búið er að opna á aðgengi fólks að bænum. 20.2.2024 15:12
Heiðraði fangelsismálastjóra Rússlands Vladimír Pútín, forseti Rússlands, heiðraði í gær Valerí Bojarínev, fangelsismálastjóra Rússlands, með því að hækka hann í tign. Bojarínev er nú undirherforingi en Pútín skrifaði undir stöðuhækkunina þann 19. febrúar, þremur dögum eftir að Alexei Navalní dó í fanganýlendu í Síberíu. 20.2.2024 14:13
Rússneskur „svikari“ myrtur á Spáni Rússneskur flugmaður sem lenti herþyrlu sinni í Úkraínu og gafst upp fyrir úkraínskum hermönnum, var myrtur á Spáni í síðustu viku. Maxim Kusmínóv var skotinn að minnsta kosti sex sinnum og síðan var ekið yfir hann. 20.2.2024 12:34
Mannskæðar skotárásir í Bandaríkjunum Þó nokkrar mannskæðar skotárásir hafa átt sér stað víðsvegar um Bandaríkin á undanförnum dögum. Að minnsta kosti þrír lögregluþjónar og einn sjúkraflutningamaður hafa verið skotnir til bana í tveimur mismunandi atvikum, auk þess sem ein kona lét lífið og fimm særðust eftir að rifrildi á Waffle House veitingastað varð að skotbardaga. 20.2.2024 11:41
GameTíví: Dreifa lýðræði um Vetrarbrautina Strákarnir í GameTíví ætla að verja kvöldinu í að dreifa stýrðu lýðræði um vetrarbrautina, eina kúlu í senn. Leikurinn Helldivers 2 slær í gegn um allan heim þessa dagana og strákarnir ætla að kíkja á hann. 19.2.2024 19:30
Rússar náðu yfirráðum í lofti yfir Avdívka Útlit er fyrir að hersveitum Rússa hafi tekist að ná yfirráðum í háloftunum yfir borginni Avdívka í austurhluta Úkraínu. Er það líklega í fyrsta sinn sem slíkt gerist frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022. 18.2.2024 17:05
Féll í gjá í Heiðmörk Kona féll í sprungu í Heiðmörk í dag. Hún mun hafa verið á Búrfellsgjár gönguleiðinni þegar hún féll og voru björgunarsveitir frá Garðabæ og Hafnarfirði sendar á vettvang. 18.2.2024 15:58
Sagði marbletti benda til að Navalní hefði verið haldið niðri Marblettir sem sagðir eru vera á líki Alexei Navalní benda til þess að hann hafi fengið einhvers konar flog þegar hann lést í fangelsi í norðarnverðri Síberíu á dögunum. Líkið var ekki flutt á þann stað sem lík fanga í fanganýlendunni IK-3 eru send. 18.2.2024 14:32
„Ég er bara með opin augu gagnvart því sem er að gerast í samfélaginu“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir innflytjendum hafa fjölgað of hratt hér á Íslandi. Hún segir umræðuna ekki eiga að snúast um það hvort fólk væri með eða á móti útlendingum. 18.2.2024 13:22