Hagnaður Nova tók stökk Nova Klúbburinn hf. hagnaðist um 729 milljónir á síðasta ári og var það aukning um 35 prósent milli ára. Tekjur fyrirtækisins á síðasta ári voru tæpir þrettán milljarðar og jukust um þær um 2,8 prósent frá 2023. 27.2.2024 18:57
Einn helsti mannréttindafrömuður Rússlands dæmdur í fangelsi Oleg Orlov, einn fremsti mannréttindafrömuður Rússlands, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi af dómstóli í Moskvu. Hinn sjötugi Orlov var dæmdur fyrir að „vanvirða“ rússneska hersins ítrekað með því að lýsa yfir andstöðu við innrásina í Úkraínu. 27.2.2024 18:06
Rannsaka aftöku á minnst sjö stríðsföngum Yfirvöld í Úkraínu hafa til rannsóknar myndband sem virðist sýna rússneska hermenn taka minnst sjö úkraínska hermenn sem hafa gefist upp af lífi. Atvikið var fangað á myndband með dróna sem var yfir svæðinu. 26.2.2024 22:46
Eldur logar í Elliðaárdalnum Eldur kviknaði nú í kvöld í gömlu húsi við Stekkjarbakka í Elliðaárdalnum. Slökkviliðsmenn reyna nú að ráða niðurlögum eldsins. 26.2.2024 21:33
Ferðamanni bjargað af flæðiskeri Björgunarsveitarmenn frá Lífsbjörg í Snæfellsbæ björguðu undir kvöld ferðamanni af flæðiskeri á sunnaverðu Snæfellsnesi. Maðurinn var fastur á skeri undan ströndum Ytri Tungu og var honum bjargað á síðustu stundu. 26.2.2024 20:33
Skjálfti við Kleifarvatn Tiltölulega stór jarðskjálfti mældist við Kleifarvatn um klukkan hálf sjö í kvöld. Skjálftinn, sem var 3,4 stig og mældist um tvo kílómetra austur af vatninu, fannst í byggð og fylgdu honum nokkrir eftirskjálftar. 26.2.2024 20:05
GameTíví: Dreifa lýðræði og kíkja í hrylling Strákarnir í GameTíví ætla að dreifa stýrðu lýðræði um Vetrarbrautinga í leiknum Helldivers 2 í kvöld. Þeir munu einnig dýfa tánum í smá hrylling. 26.2.2024 19:31
Fyrsta Abrams skriðdrekanum grandað nærri Avdívka Úkraínskir hermenn hafa hörfað frá þorpi í austurhluta Úkraínu, skammt vestur af borginni Avdívka, sem féll nýverið í hendur Rússa eftir gífurlega harða bardaga frá því í október. Þaðan hörfuðu hermenn til þorpsins Lastochkyne og hafa þeir nú hörfað lengra til vesturs. 26.2.2024 18:42
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Auknar líkur eru taldar á gosi og kvikumagnið undir Svarstengi mun líklega á morgun ná neðri mörkum þess sem hefur safnast þar saman fyrir síðustu eldgos. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Kristínu Jónsdóttur á Veðurstofunni um stöðuna og við verðum í beinni frá fundi almannavarna í Laugardalshöll. 26.2.2024 18:00
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Úkraínumenn í slæmri stöðu eftir tveggja ára átök Eftir tveggja ára stríðsrekstur hefur Rússum vaxið ásmegin í átökunum í Úkraínu. Þeir hafa sótt fram í austurhluta landsins og eru byrjaðir á umfangsmiklum árásum í suðri. Ólíklegt er þó að þeir hafi burði til að leggja umfangsmikil landsvæði undir sig, að svo stöddu. 24.2.2024 08:01