Búið að opna veginn undir Hafnarfjalli eftir alvarlegt bílslys Þyrla Landhelgisgæslu Íslands lenti um klukkan fimm undir Hafnarfjalli eftir að hafa verið kölluð til á hæsta forgangi vegna bílslyss sem hefur verið lýst sem alvarlegu. Tveir eru slasaðir og þar af einn alvarlega. 17.12.2021 17:15
Skutu niður fyrsta skotmarkið í fjörutíu ár Flugmaður orrustuþotu breska flughersins skaut nýverið niður dróna sem verið var að fljúga nærri herstöð í Sýrlandi. Þetta var í fyrsta sinn sem bresk orrustuþota skýtur niður skotmark frá því í Falklandseyjastríðinu fyrir tæpum fjörutíu árum. 16.12.2021 23:46
Jón skipti um skoðun og heldur ráðuneytisstjóranum Jón Gunnarsson, innanríkisráðherra, hefur skipt um skoðun varðandi það að auglýsa stöðu ráðuneytisstjóra innanríkisráðuneytisins í vor. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra, hafði komist að þeirri niðurstöðu að auglýsa ætti stöðuna og Jón var sömuleiðis þeirrar skoðunar í síðustu viku. 16.12.2021 22:31
Bein útsending: Steindi og félagar spila inn í nóttina Þátturinn Rauðvín og klakar snýr aftur á Stöð 2 Esport klukkan 21 í kvöld en þar spilar Steinþór Hróar Steinþórsson tölvuleiki með góðum vinum sínum. 16.12.2021 20:30
Hreinn hættur eftir aðeins tvær vikur með Jóni Hreinn Loftsson hefur ákveðið að hætta sem aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar, innanríkisráðherra. Í færslu á Facebook segir Hreinn ekki frá því af hverju hann tók þá ákvörðun að hætta en ráðning hans var tilkynnt þann fyrsta desember. 16.12.2021 20:19
Þrumur og eldingar á Vestfjörðum Þrumur og eldingar heyrðust og sáust víða á Vestfjörðum í dag. Vestfirðingar hafa deilt myndum og myndböndum af látunum og virðast sammála um að þetta sé sjaldgæf sjón. 16.12.2021 19:36
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá því að sveitarfélagið Vogar er eina sveitarfélagið á Reykjanesi sem stendur í vegi fyrir lagningu Suðurlínu 2 í loftlínu. Hafin er undirbúningur á aðalskipulagi þar sem gert er ráð fyrir að línan verði lögð í jörð. 16.12.2021 18:01
Tvöföld Covid-bylgja í Bandaríkjunum Tvöföld Covid-bylgja gengur nú yfir Bandaríkin en bæði delta- og ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar eru í mikilli dreifingu þar. Áhyggjur eru uppi um að slæmt ástand muni versna vestanhafs á næstu vikum og það sama á við um Bretland þar sem ráðamenn óttast áhrif afbrigðisins. 15.12.2021 23:09
„Eru ekki allir í stuði?“ Tómas Tómasson, þingmaður Flokks fólksins, sem er ef til vill betur þekktur sem Tommi á Búllunni, hélt jómfrúarræðu sína á Alþingi í dag. Þar ræddi hann um það að öryrkjar fá ekki 50 þúsund króna eingreiðslu frá ríkinu til viðbótar við desemberuppbót sína eins og á síðasta ári. 15.12.2021 21:28
Babe Patrol: Gestagangur á Caldera Stelpurnar í Babe Patrol fá til sín góðan gest fyrir heimsókn til Caldera í kvöld. MV Pete fer til eyjunnar nýju með þeim í kvöld og þar munu berjast við aðra spilara um sigur. 15.12.2021 20:30