„Við vorum skilvirkir og við vorum þolinmóðir“ Pep Guardiola var himinlifandi með 3-1 sigur Englandsmeistara Manchester City á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Meistararnir lentu undir en komu til baka og var Pep mjög sáttur með sigurinn enda Man City áfram með fullt hús stiga. 16.9.2023 23:30
Nærri allt liðið missti af fluginu vegna kaffibolla Leikur Sevilla og Las Palmas í La Liga, efstu deild karla í knattspyrnu á Spáni, var tímabundið í hættu eftir að nærri allt lið Las Palmas ákvað að fá sér kaffibolla á flugvellinum áður en flogið var til Andalúsíu. 16.9.2023 23:01
Haukur Þrastarson sneri aftur á völlinn Haukur Þrastarson sneri aftur á völlinn í mögnuðum 21. marks sigri Kielce á Unia Tarnow í pólsku úrvalsdeildinni í handbolta. Haukur skoraði fjögur mörk í leiknum. 16.9.2023 22:15
Sif Atladóttir leggur skóna á hilluna Landsliðskonan fyrrverandi Sif Atladóttir hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir farsælan feril. Hún hefur undanfarin ár spilað með Selfossi í Bestu deild kvenna en liðið er fallið niður í Lengjudeildina. 16.9.2023 21:31
Barcelona á toppinn eftir stórsigur Spánarmeistarar Barcelona unnu 5-0 sigur á Real Betis í síðasta leik dagsins í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Fyrr í kvöld hafði Valencia unnið 3-0 sigur á Atlético Madríd. 16.9.2023 21:00
Ten Hag ekki sáttur með tapið en sá þó margt jákvætt Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, var heldur súr þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir tap sinna manna gegn Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni í dag. Liðið hafði leikið 31 leik í röð án þess að tapa á Old Trafford fyrir daginn í dag. Hann telur lið sitt geta komist aftur í hæstu hæðir. 16.9.2023 20:00
Viggó með enn einn stórleikinn Viggó Kristjánsson átti frábæran leik þegar Leipzig tapaði naumlega gegn HSV í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, lokatölur 35-34. 16.9.2023 19:05
Newcastle marði Brentford Newcastle United vann 1-0 sigur á Brentford í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 16.9.2023 18:40
Afturelding vann Stjörnuna með minnsta mun Afturelding vann Stjörnuna með eins marks mun í Olís-deild kvenna í handbolta í dag, lokatölur 29-28. 16.9.2023 18:35
Inter pakkaði nágrönnum sínum í AC Milan saman Inter vann ótrúlegan 5-1 sigur á AC Milan í stórleik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. 16.9.2023 18:15