Í beinni: Þrír spennandi leikir í Ljósleiðaradeildinni Fjórðu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike lýkur í kvöld en 3 viðureignir eru á dagskrá. 5.10.2023 18:56
Embiid mun spila fyrir Bandaríkin á Ólympíuleikunum Joel Embiid, miðherji Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta, hefur ákveðið að spila fyrir Bandaríkin á Ólympíuleikunum á næsta ári en hann á rætur að rekja til Frakklands og Kamerún. 5.10.2023 17:45
Glímudeild Njarðvíkur lögð niður eftir áralangar deilur Stjórn Njarðvíkur hefur ákveðið að leggja niður glímudeild félagsins. Áralangar deilur hafa átt sér stað innan félagsins um starfsemi deildarinnar. Svo miklar voru deilurnar að deildin var óstarfhæf. 3.10.2023 07:01
Dagskráin í dag: Meistaradeild Evrópu, Subway-deild kvenna, Lokasóknin og Hliðarlínan Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Segja má að Meistaradeild Evrópu karla í knattspyrnu sé í fyrirrúmi en það er þó margt annað á boðstólnum. 3.10.2023 06:01
Modrić næstur á blaði hjá Beckham og Messi David Beckham horfir áfram hýru auga til bestu leikmanna Spánar undanfarinn áratug þegar kemur að því að sækja leikmenn til Inter Miami. Næstur á blaði er Króatinn Luka Modrić ef marka má orðróma vestanhafs. 2.10.2023 23:31
Aftur vekur Butler athygli fyrir útlit sitt á fjölmiðladegi Jimmy Butler, leikmaður Miami Heat, fer óhefðbundnar leiðir þegar kemur að hárgreiðslum og útliti á fjölmiðladegi NBA-deildarinnar. 2.10.2023 23:00
Fyrirliðinn vonast til að Chelsea byggi ofan á sigrana tvo Chelsea vann Fulham 2-0 á útivelli í eina leik ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Liðið hefur nú unnið tvo leiki í röð í öllum keppnum og vonast Conor Gallagher, fyrirliði liðsins, til að hægt sé að byggja ofan á það eftir erfiða byrjun. 2.10.2023 22:15
Annar sigur Chelsea kom gegn Fulham Chelsea vann í kvöld sinn annan sigur í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið sótti Fulham heim í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur í Kotinu, Craven Cottage, 0-2 og vonast lærisveinar Mauricio Pochettino til þess að hafa snúið blaðinu við. 2.10.2023 21:15
Sjáðu Svein Aron leggja upp og brenna af dauðafæri fyrir opnu marki Sveinn Aron Guðjohnsen kom svo sannarlega við sögu í 2-1 sigri Elfsborg á Varberg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. 2.10.2023 19:45
Andri Lucas með sigurmarkið í Óðinsvé Íslendingalið Lyngby fer frá Óðinsvé með þrjú stig í pokanum eftir 2-1 sigur á OB í dönsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Lyngby er nú ósigrað í síðustu fjórum leikjum sínum. Andri Lucas Guðjohnsne skoraði það sem reyndist sigurmarkið í upphafi síðari hálfleiks. 2.10.2023 19:05