Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Andoni Iraola, þjálfari Liverpool, er ekki nógu sáttur við líkamlegt ástand sinna leikmanna en það er ljóst að hann gerir miklu meiri kröfur á því sviði en forveri hans í stjórastólnum á Anfield. 10.8.2026 22:02
Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Sara Björk Gunnarsdóttir hefur ekki enn kynnst sigurtilfinningunni eftir að hún gekk til liðs við Hauka í Lengjudeild kvenna í fótbolta. Haukakonur töpuðu á móti Selfossi í kvöld. 10.8.2026 21:47
Guðrún Karítas í úrslit og Elísabet nálægt því Ísland átti tvo keppendur í undankeppni sleggjukasts kvenna á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum í Birmingham í Englandi í kvöld en aðeins önnur þeirra komst í úrslit. 10.8.2026 20:40
„Ég er bara ógeðslega sáttur með þetta“ Einar Margeir Ágústsson náði bestum árangri íslenska sundfólksins á fyrsta degi Evrópumeistaramótsins í 50 metra laug í París þegar hann bætti sinn besta tíma í 100 metra bringusundi. Átta Íslendingar kepptu á fyrsta degi mótsins. 10.8.2026 20:32
Strákarnir hans Sigga Ragga skóluðu Skála og eru áfram á toppnum Sigurður Ragnar Eyjólfsson og lærisveinar hans í NSÍ Runavík unnu flottan sigur í færeysku deildinni í kvöld. 10.8.2026 19:51
Sögulegur samningur fyrir kvennaknattspyrnuna í Noregi Norðmenn eru að taka risastórt skref í kvennafótboltanum sínum því þeir hafa fengið aðalstyrktaraðila fyrir 1. deild kvenna sem er B-deildin þar í landi. 10.8.2026 19:31
Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Evangelos Marinakis, eigandi Nottingham Forest, hefur ákveðið að lögsækja Crystal Palace vegna borða sem stuðningsmenn þeirra afhjúpuðu og sýndi eiganda Nottingham Forest halda byssu að höfði miðjumannsins Morgan Gibbs-White. 10.8.2026 19:20
Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson kláraði ekki fyrsta hring á bandaríska áhugamannamótinu, U.S. Amateur Championship, í dag og er hættur keppni á mótinu. 10.8.2026 19:01
UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Mikil alvara virðist vera komin í samtal nokkurra álfusambanda í fótboltaheiminum um hvernig framtíðin muni líta út ef þau ákveða að sniðganga keppnir Alþjóðaknattspyrnusambandsins. 10.8.2026 18:02
Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Liverpool hefur staðfest að miðvörðurinn Ronald Araujo sé kominn til enska úrvalsdeildarfélagsins á lánssamningi út tímabilið en hann kemur frá Spánarmeisturum Barcelona. 10.8.2026 17:46