Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Ekki gott að horfa upp á að fólk sofi í gjótum“

Félagsmálaráðherra telur ljóst að sveitarfélögin verði að grípa umsækjendur um alþjóðlega vernd sem hafa tapað allri þjónustu eftir að hafa fengið endanlega synjun um vernd. Verkefnið núna sé að tryggja fólkinu stjórnarskrárbundna lágmarksþjónustu.

Skoða mögu­leg tengsl haturs­glæpa á Hin­segin dögum

Lögreglan rannsakar mögulegt tengsl ellefu tilvika hatursgæpa á Hinsegin dögum en regnbogafánar voru víða skornir niður. Á laugardag voru þrír menn handteknir í nasistaklæðnaði. Í fórum þeirra fundust niðurskornir fánar. 

Gagn­rýnir úr­ræði dóms­mála­ráð­herra: „Þetta er ný tegund af fangelsi“

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra vill opna nýtt búsetuúrræði með takmörkunum fyrir flóttafólk sem ekki sýnir samstarfsvilja. Óeining er á milli ráðherra ríkisstjórnarinnar um hvort að sveitarfélögum beri að þjónusta hópinn. Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar kallar hugmynd Guðrúnar nýja tegund af fangelsi.

Vill opna „bú­setúr­ræði með tak­mörkunum“ fyrir flótta­fólk

Dómsmálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, skoðar nú þann möguleika að koma upp nýju búsetuúrræði með takmörkunum fyrir fólk sem hefur fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd og misst rétt á húsnæði eða þjónustu. Hún segir sveitarfélögum ekki bera skylda til að taka við fólki sem sýnir ekki samstarfsvilja og hefur ekki rétt á þjónustu lengur.

Heyrir af fíkniefnatengdu andláti í hverri viku

Kona sem nýtti neyslurými Ylju reglulega segist heyra af fíkniefnatengdu andláti í hverri viku. Það sé mikil synd að ekki takist að opna nýtt úrræði. Ekkert neyslurými hefur verið rekið í um hálft ár og ráðherra segir einungis vanta húsnæði.

Sjá meira