Sigrún segir ástandið innan FÍ í tíð Önnu Dóru hafa verið orðið óbærilegt Sigrún Valbergsdóttir, nýr forseti Ferðafélags Íslands, hefur sent frá sér tilkynningu sem hún stílar á félaga í FÍ. Þar kemur meðal annars fram að vegna ólýðræðislegra vinnubragða Önnu Dóru Sæþórsdóttur hafi öll stjórnun verið komin í óefni. 28.9.2022 13:45
Segir grátlegt að hafa verið dregin á asnaeyrum í átta ár af kvikmyndasjóði Ingibjörg Reynisdóttir, rithöfundur og leikkona með meiru, birtir mikla grein á Vísi þar sem hún lýsir sannkallaðri píslargöngu sinni með handrit sem stöðugt var vísað frá af Kvikmyndasjóði Íslands. 28.9.2022 12:52
Dularfullt lambsdráp í Skorradal Refaskytta í Borgarnesi birti myndskeið af sundurskotinni kind á Facebooksíðu sinni. Fyrir liggur að einhver hefur beint riffli sínum að kindinni og skotið hana. 28.9.2022 11:46
Afgreiðsla forsætisnefndar á máli Sigurðar Inga sögð skrípaleikur Þingmenn stjórnarandstöðunnar sóttu hart að stjórnarliðum vegna afgreiðslu forsætisnefndar á siðanefndakæru á hendur Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra á Alþingi í dag. 27.9.2022 14:29
Tómas vísar ásökunum Önnu Dóru á bug og segir öllu á haus snúið Tómas Guðbjartsson, læknir og útivistarmaður, stjórnarmaður í Ferðafélagi Íslands, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann mótmælir harðlega því sem hann vill meina að séu alvarlegar ásakanir í sinn garð af hálfu fráfarandi forseta FÍ; Önnu Dóru Sæþórsdóttur. 27.9.2022 13:23
Vélsmiðja og myndlist í mögnuðum samruna Nokkrar af helstu perlum íslenskrar myndlistar verða sýndar á afar sérstæðri sýningu laugardaginn 1. október. Hún stendur aðeins yfir í fjórar klukkustundir og er í vélasölum Héðins í Helluhverfinu í Hafnarfirði. 26.9.2022 15:48
Veislugestir í sendiráðinu í Vín steinhissa á píanóspili Snorra Myndlistarmaðurinn og stjórnmálamaðurinn Snorri Ásmundsson kom virðulegum menningarvitum í Austurríki í opna skjöldu með Vínartónleikum sínum. 26.9.2022 10:23
Óþolandi refhvörf í laxeldinu Fyrirtækjunum Norðanfiski og Fisherman hefur, samkvæmt úrskurði Neytendastofu, verið bannað að nota villandi fullyrðingar í markaðssetningu á vöru sinni þess efnis að um sé að ræða vistvæna framleiðslu. Þau geti ekki sýnt fram á neitt slíkt. 23.9.2022 16:24
Margréti Friðriks vísað úr flugvél Icelandair Margrét Friðriksdóttir, sem er ritstjóri vefsins Frettin.is, var á leið til Rússlands í morgun en var vísað úr flugvélinni, er strandaglópur á Íslandi og getur því ekki fjallað af eigin raun um ástandið á herteknu svæðunum í Úkraínu. 23.9.2022 15:33
Sigurður Ingi braut engar siðareglur að sögn forsætisnefndar Forsætisnefnd Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra, hafi engar siðareglur brotið þegar hann lét umdeild ummæli falla um Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. 23.9.2022 13:44
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent