Grínaðist með að hafa misst af módelstörfum eftir að hafa fengið hafnabolta í augað Heppnin var ekki beint í liði með Rachel Balkovec á æfingu hjá hafnaboltaliðinu Tampa Tarpons á dögunum. 30.3.2022 12:00
Lögreglan beitti táragasi á reiða stuðningsmenn Nígeríu sem réðust inn á völlinn Stuðningsmenn nígeríska fótboltalandsliðsins tóku því heldur illa þegar þeirra mönnum mistókst að komast á HM í fyrsta sinn síðan 2006. 30.3.2022 10:31
Grealish bað dómarann um að sleppa því að reka Aurier út af Jack Grealish bað dómarann í vináttulandsleik Englands og Fílabeinsstrandarinnar um að sleppa því að reka Serge Aurier af velli. Hann taldi að Englendingar myndu græða meira á því að spila gegn fullskipuðu liði Fílbeinsstrendinga. 30.3.2022 10:00
Leikmaður Fram fékk far með KA/Þór á Skíðamót Íslands og vann tvenn verðlaun þar Helgin var afar viðburðarík hjá íþróttakonunni fjölhæfu, Hörpu Maríu Friðgeirsdóttur. Á laugardaginn spilaði hún með Fram gegn Íslandsmeisturum KA/Þórs í Olís-deild kvenna. Eftir leikinn fór hún til Dalvíkur þar sem Skíðamót Íslands fór fram og vann þar tvenn verðlaun. 30.3.2022 09:00
Bjartsýnn á að gömlu góðu tímarnir komi aftur á nýja heimavellinum Jón Þórir Sveinsson, þjálfari Fram, kveðst ánægður með að hafa krækt í danska framherjann Jannik Pohl en segir að Frammarar þurfi að styrkja sig frekar fyrir átökin í Bestu deild karla. Þeir leika í fyrsta sinn í efstu deild í sumar eftir tæplega áratugar fjarveru. 29.3.2022 15:45
Þráinn Orri greiddi háan skatt fyrir tækifærið á EM Þráinn Orri Jónsson, leikmaður handboltaliðs Hauka, verður frá keppni næstu mánuðina. Hann sleit krossband í hné í leik Íslands og Noregs um 5. sætið á EM í janúar. 29.3.2022 14:30
Snýr aftur á völlinn sem hann dó næstum því á Í kvöld spilar Christian Eriksen í fyrsta sinn á Parken í Kaupmannahöfn síðan hann fór í hjartastopp á vellinum í leik Danmerkur og Finnlands á EM í fyrra. Hann verður fyrirliði danska liðsins í leiknum gegn Serbíu í dag. 29.3.2022 14:01
Foden spilaði Whitney Houston alltof hátt á Mæðradaginn og fékk kvörtun Kvartað var undan hávaða í húsi Phils Foden, leikmanns Manchester City og enska landsliðsins í fyrradag. 29.3.2022 13:30
Unnu stórsigur en misstu af lokakeppninni á einu marki Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta skipað leikmönnum sautján ára og yngri var aðeins einu marki frá því að komast í lokakeppni Evrópumótsins 2022. 29.3.2022 13:08
Formaður KKÍ verulega ósáttur við ríkisstjórnina: „Ekki lengur nóg að segja einhver falleg orð“ Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, er virkilega ósáttur við að ekki sé gert ráð fyrir byggingu nýs þjóðarleikvangs í fjármálaáætlun fyrir árin 2023-27. Hann kveðst þreyttur á vanefndum loforðum ríkisstjórnarinnar þegar kemur að málefnum nýs þjóðarleikvangs. 29.3.2022 11:49