Mikill meirihluti íbúa vildi 300 milljóna framkvæmdina Mjög mikill meirihluti íbúa í Asparfelli 2 til 12 greiddi atkvæði með því á húsfundi í gær að 300 milljóna króna framkvæmdir við húsið verði kláraðar. Sonur íbúðareiganda hélt því fram í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í gær að mikil óánægja væri vegna framkvæmdanna og að ráðist hafi verið í þær eftir ólöglegan húsfund. 17.2.2023 13:59
Hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkana Seðlabankans Íslandsbanki hefur tekið af skarið og hækkað vexti í samræmi við stýrivaxtahækkun Seðlabankans, sem var kynnt 8. febrúar síðastliðinn. Yfirdráttarvextir, breytilegir vextir óverðryggða húsnæðislána, breytilegir óverðtryggðir kjörvextir og fleiri tegundir vaxta hækka um 0,5 prósentustig í byrjun næstu viku. 17.2.2023 11:23
Ólafur Gottskálksson dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás Ólafur Gottskálksson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa ráðist á fyrrverandi tengdaföður sinn á heimili hans fyrir ári síðan. Fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjaness að Ólafur hafi grunað tengdaföðurinn um áfengisneyslu en börn Ólafs og fyrrverandi konu hans voru á heimili tengdaföðurins. 17.2.2023 11:14
Eldræða um forstjóralaun: „Ekki grundvöllur til að tala um sammannleg gildi eða siðferði“ „Þetta eru orðin svo ofboðslega bjöguð viðmið í samfélaginu í dag. Ef við erum að normalísera þessar tölur, að þetta sé möguleiki, þá erum við ekki með grundvöll til að tala um sammannleg gildi eða siðferði. Að mínu mati.“ 17.2.2023 10:17
Segjast hafa fundið kínverskan belg í Taívan Varnarmálaráðuneyti Taívan hefur tilkynnt það að kínverskur veðurbelgur hafi fundist á einni af smærri eyjum klasans í gær. Bandaríkjamenn hafa undanfarnar tvær vikur haldið því fram að þar í landi hafi fundist kínverskur njósnabelgur. 17.2.2023 08:26
Bílstjórar þyrftu að vinna í 42 mánuði til að ná mánaðarlaunum forstjóra Bílstjórar hjá Skeljungi þyrftu að vinna í 42 mánuði á grunnlaunum til að ná upp í mánaðarlaun forstjóra SKEL. Grunnlaun bílstjóra eru um og yfir fjögur hundruð þúsund á mánuði en nýr forstjóri SKEL fékk að meðaltali 19 milljónir á mánuði í fyrra. 16.2.2023 17:03
Vildu að öðru lögregluembætti yrði falin rannsókn Óshlíðarmálsins Ríkissaksóknari hefur gert lögreglunni á Vestfjörðum að taka ný gögn, sem komið hafa fram um dauða ungs manns í Óshlíð árið 1973, til skoðunar. Rannsókn málsins var látin niður falla í október en fjölskylda mannsins sem lést kærði ákvörðun lögreglunnar til saksóknara og vildi að öðru embættið yrði falin rannsókn málsins. 16.2.2023 15:25
Vísa ásökunum um græsku vegna 300 milljóna verks á bug Framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Verksýnar vísar ásökunum um græsku, vegna 300 milljóna króna framkvæmda í Asparfelli, á bug. Framkvæmdastjóri Eignaumsjónar tekur undir þetta og segir úrskurð kærunefndar húsamála í deilunni stangast á við nýlegan dóm Landsréttar. 16.2.2023 14:26
Ráðist í 300 milljóna verk eftir ólöglegan fund Mikil óánægja er meðal íbúa í Asparfelli 2 til 12 í Breiðholti vegna 300 milljóna króna framkvæmda sem var ráðist í eftir húsfund sem kærunefnd húsamála hefur dæmt ólöglegan. Íbúar eru margir hverjir með lágar tekjur en vegna framkvæmdanna þarf hver og ein íbúð að greiða 60 þúsund krónur aukalega á mánuði næstu tvö árin. 16.2.2023 10:41
Trúir því ekki að verkfallið dragist á langinn Forstjóri Icelandair segist ekki hafa trú á því að verkfall olíuflutningabílstjóra dragist á langinn. Þetta sagði hann ítrekað í viðtali við fréttastofu nú síðdegis. Að óbreyttu hefst ótímabundið verkfall olíuflutningabílstjóra í Eflingu klukkan tólf á hádegi á morgun. 14.2.2023 16:40