Næsta mál sé að ráðast í útboð, úthluta lóðinni og sjá bygginguna rísa Undirritun samkomulags um stofnun félags um uppbyggingu Þjóðarhallar í Laugardal er risastórt hagsmunamál að sögn borgarstjóra Reykjavíkur, enda verði höllin lykilinnviður fyrir íþróttir. Næsta mál sé að ráðast í úrboð og úthluta lóðinni. 11.1.2024 12:01
Breytt pokastefna Sorpu umdeild: „Þetta er rugl“ Formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl segir breytta pokastefnu hjá Sorpu kalla á sérstakar bílferðir og finnst miður að þróunin sé á þá leið að skerða þjónustu í nærumhverfinu. Viðmælendur fréttastofu segjast flestir óánægðir með breytingarnar 10.1.2024 21:31
Þátttakan skapi gríðarleg tækifæri til fjárfestingar í nýsköpun Þátttaka Íslands í InvestEU áætluninni mun skapa gríðarleg tækifæri til fjárfestingar í nýsköpun með áherslu á stafræna þróun og grænar lausnir. Þetta segir nýsköpunarráðherra sem kynnti verkefnið í morgun. 10.1.2024 14:00
Meirihluti þjóðarinnar ósáttur við afstöðu Íslands varðandi Gasa Meirihluti þjóðarinnar er ósáttur við opinbera afstöðu Íslands almennt varðandi Gasa samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem gerð var rétt fyrir áramót eða 50,5 prósent. 7.1.2024 22:00
Segir heiminn blindan þegar kemur að ástandinu á Gasa Heimurinn er blindur þegar kemur að ástandinu á Gasa segir fréttaritari, sem er búsettur þar og missti son sinn í loftárás sem gerð var á svæðið í dag. Forstjóri spítala á Gasasvæðinu kallar eftir aukinni vernd alþjóðasamfélagsins. 7.1.2024 19:03
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Prófessor í stjórnmálafræði telur ekki að ríkisstjórnin springi vegna álits Umboðsmanns Alþingis í hvalveiðamálinu og Sjálfstæðismenn myndu verja Svandísi mögulegu vantrausti með óbragð í munni. 7.1.2024 18:01
Ósammála um útgangspunkt Umboðsmanns Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks segir álit umboðsmanns um hvalveiðar annars vegar og Íslandsbankasöluna hins vegar ólík enda hafi matvælaráðherra brotið gegn reglum stjórnskipunarréttar og að öllum líkindum bakað ríkinu skaðabótaskyldu sem fyrrverandi fjármálaráðherra hafi ekki gert. Málið verði að taka alvarlega. 7.1.2024 13:38
Meirihluti þjóðarinnar ósáttur með framgöngu Svandísar Meirihluti þjóðarinnar segist ósáttur með framgöngu Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra í hvalveiðimálinu, eða tæp fimmtíu og tvö prósent samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem framkvæmd var rétt fyrir áramót. 6.1.2024 21:01
Enn mælist landris við Svartsengi Enn mælist landris við Svartsengi með svipuðum hraða og undanfarna daga samkvæmt GPS gögnum Veðurstofunnar. 6.1.2024 18:49
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forsætisráðherra telur ekki ástæðu fyrir matvælaráðherra til að segja af sér í ljósi álits Umboðsmanns alþingis um hvalveiðibann í sumar. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir afsögn Bjarna Benediktssonar hafa skapað fordæmi og Svandís eigi að víkja. 6.1.2024 18:00