„Mæli með því að finna leiðir til að bæði gefa af sér og reyna að gera heiminn aðeins betri á hverjum degi“ Kristján Sturla Bjarnason er mikill lífskúnstner sem sér meðal annars um tónlistarklasann Tónhyl og hefur gríðarlega ástríðu fyrir tónlist. Í starfi sínu miðlar hann þekkingu og leggur sig fram við að gefa af sér og reyna að gera heiminn aðeins betri. Kristján Sturla er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum. 21.5.2022 11:31
„Höfðum feimið fólk í huga þegar við vorum að semja sýninguna“ Fimmtudaginn 26. maí frumsýnir leikhópurinn Slembilukka leiksýninguna „Sjáið mig“ í Miðbæjarskólanum. Höfundarnir eru þær Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir og Laufey Haraldsdóttir en Eygló Höskuldsdóttir Viborg er tónskáld sýningarinnar ásamt því að koma fram í verkinu. Blaðamaður tók á þeim púlsinn og fékk að heyra nánar frá sýningunni. 21.5.2022 09:00
Alsæla mætir stanslausri truflun og blætismenning finnur tengingu við garðyrkju Ásmundarsalur verður með opnun á tveimur listasýningum í dag klukkan 14:00. Frítt er inn og öll eru velkomin. 21.5.2022 07:31
KUSK og Óviti gefa út lagið Elsku vinur: „Samið í einu góðu útrásarkasti í stúdíóinu“ Tónlistarfólkið Kolbrún og Hrannar, jafnan þekkt sem KUSK og Óviti, sendu frá sér lagið Elsku vinur í dag. Þetta er í annað sinn sem þau sameina krafta sína en áður hafa þau gefið út lagið Flugvélar. Blaðamaður hafði samband við þau og fékk að forvitnast um nýja lagið. 20.5.2022 11:31
„Ég vil sýna að það sé í lagi að tala um geðræn vandamál og það má vera skemmtilegt“ Listakonan Hildur Hermannsdóttir opnar sýninguna Guð minn góður! í Núllinu, Bankastræti 0, klukkan 18:00 í dag. Blaðamaður tók púlsinn á henni rétt fyrir opnun og fékk að heyra nánar frá sýningunni. 19.5.2022 12:00
„Að búa til eitthvað fallegt úr einhverju ljótu“ Annalísa Hermannsdóttir starfar sem sviðshöfundur, leikstjóri og tónlistarkona. Hún vann tónlistarmyndband ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrr á árinu fyrir myndband við lagið „Ég er bara að ljúga er það ekki?“ og vinnur nú að því að setja upp sýninguna Stelpur og Strákar, sem er frumsýnd 25. maí næstkomandi. Blaðamaður tók púlsinn á Önnulísu. 18.5.2022 20:01
Fossar og furðuverk sameinast í sendiráðinu Listamaðurinn Jón Sæmundur stendur fyrir málverkasýningunni Fossar og Furðuverur í íslenska sendiráðinu í Bretlandi um þessar mundir. Á sýningunni blandar Jón saman seríum sem hann hefur verið að vinna að undanfarið en viðfangsefnið er fossar og önnur furðuverk, sem hafa lengi verið Jóni hugleikin. Blaðamaður heyrði í Jóni og fékk nánari innsýn í innblástur hans. 17.5.2022 15:31
Júrógarðurinn: Súrsætur endir á stórkostlegu ævintýri Þá er komið að lokum hér í Eurovision heiminum í Tórínó og Júrógarðurinn lítur yfir farinn veg í uppgjörs þætti beint úr blaðamannahöllinni. 15.5.2022 01:09
Systur voru í tíunda sæti á þriðjudaginn Nú hefur verið opinberað hvernig kosningin var í undankeppnum Eurovision. Systur, sem fluttu framlag Íslands í ár, voru í tíunda sæti á þriðjudag. Tíu lönd komust áfram. 14.5.2022 23:21
Úkraína er sigurvegari Eurovision 2022 Nú liggur fyrir hver hlaut glerstyttuna eftirsóttu í Eurovision þetta árið. Veðbankarnir höfðu rétt fyrir sér og Úkraína sigraði Eurovision. 14.5.2022 23:01