Samherji selur Margréti til Færeyja Uppsjávarskipið Margrét EA-710 hefur verið selt og afhent kaupanda í Færeyjum. Samherji keypti skipið 2023 en það var smíðað 2008. 30.9.2026 10:50
Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti Bilun hefur komið upp í háspennuleiðara við vélaspenni í Fljótsdalsstöð. Talið er að viðgerð taki sex til átta vikur. Aðrar vélar stöðvarinnar verða prófaðar næstu vikur til að tryggja að samskonar bilun komi ekki upp. 30.9.2026 09:39
Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Landsnet hefur ákveðið að fresta opnum haustfundi sem átti að halda á fimmtudag vegna alvarlegs slyss sem átti sér stað í tengivirki í Borgarfirði í gær. 29.9.2026 16:20
Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Karlmaður á fimmtugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um að hafa veist að konu á fertugsaldri í íbúð í Kópavogi. Áverkar konunnar eru sagðir alvarlegir. 29.9.2026 15:37
Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Stýrivextir munu standa í stað næstu mánuði og verða sex prósent undir lok 2028 samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka. Gert er ráð fyrir að kjarasamningar muni halda þrátt fyrir virkt forsenduákvæði. 29.9.2026 14:17
Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Sex hafa verið sendir í leyfi eftir að lúxusíbúð fannst innan veggja fangelsis í Indónesíu. Talið er að fangar hafi búið í íbúðinni. Þar mátti meðal annars finna líkamsrækt og golfhermi. 29.9.2026 13:48
Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent Mikil aukning var í heildarsölu sýklalyfja fyrir dýr árið 2025. Staðan á Íslandi hvað varðar sýklalyfjaónæmi er sögð góð samanborið við stöðuna í öðrum Evrópuríkjum. 29.9.2026 10:18
Verðbólga ekki meiri í tvö ár Verðbólga eykst um 0,3 prósentustig milli mánaða og er nú 5,9 prósent. Verðbólga hefur ekki mælst meiri síðan í ágúst 2024 og þetta er því mesta verðbólgan síðan ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við. 29.9.2026 09:09
Högnuðust um milljarð Laugar ehf., sem á og rekur World Class-líkamsræktarstöðvarnar, hagnaðist um rétt tæpan milljarð króna á síðasta ári. Hagnaðarhlutfall félagsins var 14,6 prósent og greiddu eigendurnir sér 250 milljónir króna í arð. 29.9.2026 06:02
Ný göngubrú vígð Ný göngu- og hjólabrú var formlega opnuð í Elliðaárdal í morgun. Brúin kemur í stað veitustokks sem var nýttur sem göngubrú. Krakkar úr Árbæjarskóla tóku þátt í athöfninni. 28.9.2026 16:43