Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði Regnbogafáninn verður málaður aftur á tröppur Grafarvogskirkju þegar veður leyfir segir sóknarprestur kirkjunnar. Sóknarnefnd tók ákvörðun um það á fundi í dag að tröppurnar verði málaðar á ný, en með breyttu sniði. Skemmdarverk á tröppunum í byrjun júlí hafi reynst kirkjunni afar dýrkeypt en það hafi verið í þriðja skiptið sem skemmdarverk hafi verið unnin á lóð kirkjunnar. 21.7.2026 22:37
Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Skipið Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, stefnir í átt að Íslandi á ný. Skipið er statt „djúpt“ suðaustur af landinu en Landhelgisgæslan áætlar komu þess í íslenska efnahagslögsögu klukkan ellefu í kvöld. 21.7.2026 21:15
Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Mikil fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins stafar líklega af fylgistreymi frá Miðflokknum að sögn stjórmálafræðings. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna annars vegar og stjórnarandstöðu hins vegar hafi haldist heldur stöðugt en miklar hreyfingar séu á fylgi innan stjórnarandstöðunnar. 21.7.2026 20:45
Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Minnst tólf létust í þremur árásum Ísraelshers á Gasa í gærnótt og dag, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Vopnahlé milli Ísraels og Hamas er enn í gildi en rúmlega þúsund Palestínumenn hafa látist í árásum Ísraelshers frá því það var undirritað í október síðastliðnum. 21.7.2026 18:52
Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Landris og kvikusöfnun við Svartsengi mælast áfram hæg en stöðug. Líklegasta sviðsmyndin er enn sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnjúksgígaröðinasem gæti leitt til eldgoss en jarðskjálftavirkni á svæðinu mælist áfram lítil. 21.7.2026 17:54
„Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Líffræðingur segir Ísland enn frekar fátækt af stunguskordýrum þó nýjar tegundir skordýra séu stöðugt að nema hér land. Unnið er að því að útýma annarri tveggja tegunda moskítóflugu sem fannst hér á landi í fyrra en enn er óljóst hvort það muni ganga upp enda sé lítið vitað um lífsferil flugunnar hér á landi. 21.7.2026 00:22
Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Hinn tuttugu og átta ára Joshua Kerry hefur verið ákærður fyrir morðið á Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra og þingmanni Íhaldsflokksins. Kerry var fyrst handtekinn þann 11. júlí í tengslum við málið en fer fyrir Westminster-héraðsdóm í Bretlandi á þriðjudaginn. 20.7.2026 23:23
Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun um að leggja fimmtíu prósenta toll á ýmsar innfluttar vörur frá Kanada. Hann sakar Kanada um „ósanngjarna“ verðlagningu bandarískra vara þar í landi. 20.7.2026 22:56
„Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Leigusali segir farir sínar ekki sléttar af viðskiptum við óprúttið par sem vildi fá gistinótt endurgreidda en reyndist svo hafa notað aðstöðu íbúðarinnar og lagt hana í rúst. Málið sé hrein svik en „leiðinlegast er hvernig er farið með eigur manns.“ 20.7.2026 22:18
Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Lögreglan á Suðurlandi hefur hætt rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum en rannsókn lögreglu hófst í janúar á þessu ári. Krufningarskýrsla hafi leitt í ljós að ekki sé grundvöllur fyrir því að halda rannsókn áfram. 20.7.2026 22:13