Dæmdur fyrir hatursorðræðu gegn Samtökunum '78 Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir hatursorðræðu gagnvart Samtökunum '78 og félagsmönnum þeirra. „HENGJUM OG AFHAUSUM ALLA SEM STYÐJA SAMTÖKIN 78 OG LGBQT,“ er meðal þess sem hann sagði. 25.10.2024 14:29
Ragna fær annað sætið í Reykjavík suður Ragna Sigurðardóttir, læknir og varaþingmaður, hefur verið tilnefnd af uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar í annað sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Kosið verður um lista Samfylkingarinnar á morgun. 25.10.2024 13:46
Skoðaði hvað fólk gerði á Facebook án samþykkis Samfylkingin skar sig úr í frumkvæðisathugun Persónuverndar á notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum fyrir kosningar til Alþingis 2021, með víðtækri notkun persónusniða á grundvelli skráningar Facebook á áhugamálum notenda. Viðreisn nýtti sér upplýsingar um þá sem líkað höfðu við flokkinn á Facebook og Instagram og heimsótt vefsíðu hans. Þó var ekki talið tilefni til að beita valdheimildum Persónuverndar. 25.10.2024 11:31
Geir Örn lést á Stuðlum Geir Örn Jacobsen lést í eldsvoðanum á meðferðarheimilinu Stuðlum aðfaranótt laugardags í síðustu viku. Hann var sautján ára. Tveimur dögum áður en hann lést spurði hann í viðtali á Stöð 2 hvers vegna ætti ekki að bjarga börnunum á Stuðlum. 25.10.2024 10:59
Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Flugfélagið Play hagnaðist um hálfan milljarð króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Á sama tíma í fyrra hagnaðist félagið um 724 milljónir króna. Félagið skoðar nú að ráðast í hlutafjáraukningu og eftir atvikum sækja fjármögnun í tengslum við nýtt flugrekstrarleyfi. 24.10.2024 16:32
Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Flugfélagið Play boðar til fundar í Sykursalnum í Vatnsmýrinni þar sem afkoma þriðja ársfjórðungs verður kynnt. Þá verður farið nánar yfir þegar tilkynntar grundvallarbreytingar sem til stendur að gera á rekstrarmódeli félagsins. Sýnt verður frá fundinum hér á Vísi. 24.10.2024 15:34
Segir kennara fagna hugmyndinni Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir umdeildri hugmynd hennar um móttökuskóla fyrir erlend börn hafa verið tekið vel af kennurum og skólastjórnendum. Ráðherra og frambjóðandi til Alþingis hafa sagt hugmynd hennar hættulega og í anda aðskilnaðarstefnu. 24.10.2024 14:54
Varaþingmaður hættur í flokknum og úthúðar Ásthildi Lóu Georg Eiður Arnarson, varaþingmaður Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, hefur sagt sig úr flokknum. Hann segir Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingmann flokksins í kjördæminu, hafa sagst ekki hafa tíma fyrir kjördæmið og ekki efni á að kalla inn varaþingmann. 24.10.2024 11:59
Ugla og Eldur mætast í Norðvestur Áhugaverður slagur er að teiknast upp í Norðvesturkjördæmi, þar sem oddviti eins flokks er trans kona og oddviti annars er yfirlýstur baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks, en hefur mótmælt réttindabaráttu trans fólks ötullega. 24.10.2024 10:48
Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2024. Hagnaðurinn á sama tímabili í fyrra var sex milljarðar króna. Hreinar vaxtatekjur námu 11,8 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2024 og lækkuðu um 69 milljónir króna frá fyrra ári. 23.10.2024 16:29