Boðar breytt fyrirkomulag samræmdra prófa á næsta ári Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir að fjölbreytt, stutt og hnitmiðuð rafræn próf og verkefni verði notuð til að kanna stöðu nemenda og bera saman frá og með næsta ári. Hún segir mjög mikilvægt að fram fari samræmt mat svo hver og einn nemandi viti hvar hann standi. 9.3.2021 10:53
Fánaberi Íslands í Ríó ákærður fyrir líkamsárás Þormóður Jónsson, þrefaldur Ólympíufari og fánaberi Íslands á leikunum í Ríó 2016, hefur verið ákærður fyrir að ráðast á dyravörð á Lewboski bar aðfaranótt Þorláksmessu 2018. Þormóður segist í stuttu samtali við Vísi ekki hafa ráðist á neinn. Um vitleysu sé að ræða. 9.3.2021 07:01
Fresta samræmdu prófunum og breyta fyrirkomulagi Ákveðið hefur verið að fresta samræmdum prófum hjá nemendum í 9. bekk grunnskóla sem fara áttu fram fyrri hluta þessarar viku. Próftaka hefst mánudaginn 15. mars og þá hafa grunnskólarnir tveggja vikna glugga til að stilla upp prófunum hjá sér í íslensku, stærðfræði og ensku. 8.3.2021 15:34
„Með ólíkindum að þetta skyldi geta gerst“ Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir ótrúlegt hvernig fólksbíll hafi getað runnið mannlaus langan spöl áður en hann fór niður brekku og hafnaði á rólu hvar barn á þriðja ári var að leika sér. Barnið dvaldi á Landspítalanum í nótt en varðstjórinn segir afleiðingarnar ekki hafa virkað alvarlegar í gær. 8.3.2021 15:15
Óvænt uppsögn eftir 26 ára starf reyndist ólögmæt Björn Gunnarsson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun til 26 ára, segir skrýtið ef forstjóri stofnunarinnar komist upp með ólögmætar uppsagnir án þess að sæta einhverjum viðurlögum. Ríkislögmaður samdi við Björn og annan starfsmann til lengri tíma um greiðslu bóta upp á milljónir króna vegna uppsagnanna. 8.3.2021 15:00
Fögnuðu Fjöruverðlaunum í Höfða Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi, voru afhent við hátíðlega athöfn í dag á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. 8.3.2021 14:56
„Flaututrúður óvandaðs fólks, sem sumt á byssu“ Eiríkur Hjálmarsson, sérfræðingur í samfélagsábyrgð hjá Orkuveitu Reykjavíkur, telur ástæðu til að þakka Degi B. Eggertssyni borgarstjóra fyrir heilindi í starfi og hollustu við almenning. 8.3.2021 13:18
„Algjörlega ófullnægjandi prófakerfi“ en ekki á dagskrá að kaupa nýtt Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar, segir stofnunin endurtekið hafa bent menntamálaráðuneytinu á þörfina fyrir betra prófakerfi. Það hafi verið gert þegar kerfið hrundi árið 2018. Óvissa um framtíð samræmdra prófa geri að verkum að tregða sé til að fjárfesta í nýjum og dýrum kerfum. 8.3.2021 11:39
Fjögur svæði líklegust og öll fjarri íbúabyggð Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands greinir frá því að eftir síðasta sólarhring hafi elduppkomunæmissvæði breyst nokkuð. Nú séu fjögur meginsvæði. Frá vestri til austurs eru þau Eldvörp, Sýlingafell, Fagradalsfjallssvæðið og Móhálsadalur, milli Djúpavatns og Trölladyngju. 8.3.2021 10:58
Enn á ný vandræði með samræmdu prófin Nemendur í 9. bekk víða um land eiga í erfiðleikum með að þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku. Forstjóri Menntamálastofnunar sem sér um framkvæmd prófsins segir málið í skoðun. Það tengist þjónustuaðila erlendis. Svo virðist sem vandamálið sé í sumum skólum en öðrum ekki. 8.3.2021 10:27