ICELAND AIRWAVES: DAGUR 3 Sænsk fjölskylda snýr hausum Á Tunglið er vissara að mæta í léttum klæðnaði sem þolir bleytu í kvöld. Gestir geta nefnilega átt von á þéttri svitakeyrslu fram undir morgun. Hryggjarstykki kvöldsins eru tónleikar sænsku rafpoppsveitarinnar Familjen. Tónlist 17. október 2008 05:00
Sílspikað í Hafnarhúsinu Spikfeitt tónlistarkvöld bíður gesta á Airwaves í kvöld og eflaust verður sílspikaðasta upplifunin á Listasafni Reykjavíkur. Þar spila þrjár áhugaverðar erlendar sveitir í beit. Tónlist 16. október 2008 06:00
Skautalag komið út Hljómsveitin Ghostigital hefur gefið út nýtt lag sem nefnist Hoovering Hoover Skates, eða Svífandi ryksuguskautar. Fjallar textinn um uppfinningamann sem er í skýjunum yfir nýjasta sköpunarverki sínu. Listahópurinn Weird Girls hefur búið til myndband við lagið þar sem hjólaskautar leika stórt hlutverk. Tónlist 16. október 2008 05:00
Reykjavík! í sandpappír Útgáfan Kimi Records frá Akureyri heldur sérstakt Kima-kvöld á Tunglinu (Gauki á Stöng). Boðið er upp á eðaldagskrá. Mexíkóska einmenningssveitin Halo Between hefur leik kl. 19, svo koma Hellvar, Morðingjarnir, Borko, Benni Hemm Hemm, Hjaltalín, Retro Stefson og Reykjavík! Tónlist 15. október 2008 07:00
Klezmer á konsert Það var fullt á sunnudagskvöld í Neskirkju þegar söngsveitin Fílharmónía hélt þar tónleika á sunnudag. Í kvöld gefst öllum þeim sem misstu af sunnudagstónleikunum tækifæri til að mæta og sjá og heyra kórinn flytja þjóðlagatónlist gyðinga frá Austur-Evrópu, klezmer, sem hefur átt sívaxandi vinsældum að fagna hér á landi á liðnum árum. Tónlist 15. október 2008 06:15
Kaótískt ástand í bransanum Anthony Volodkin, stofnandi einnar mikilvægustu tónlistarsíðu internetsins, Hype Machine (hypem.com), er staddur hérlendis til að taka þátt í tónlistarráðstefnunni You Are in Control á vegum Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar. Steinþór Helgi Arnsteinsson ræddi við Anthony um framtíðina í tónlist. Tónlist 15. október 2008 05:45
Gefa út blað um Airwaves Tímaritið Reykjavík Grapevine stendur fyrir daglegri útgáfu tónlistarblaðsins Grapevine Airwaves á meðan tónlistarhátíðin Iceland Airwaves stendur yfir. Tónlist 15. október 2008 05:15
Tónleikar í Hljómalind Fjöldi hljómsveita kemur fram á kaffihúsinu Hljómalind meðan á Iceland Airwaves stendur, dagana 15. til 19. október. Á meðal þeirra verða breska sveitin Florence and the Machine, Jamie de Moon frá Bandaríkjunum, Digital Madness, Sagtmóðigur, Dys og Mai Chi frá Bretlandi. Tónlist 15. október 2008 05:00
Söngkonur í aðalhlutverki „Ég talaði við stelpur sem mig langaði til að sjá spila og við ákváðum að stofna Trúbatrixur sem yrði grundvöllur fyrir okkur allar til að koma okkur á framfæri,“ segir tónlistarkonan Myrra Rós Þrastardóttir um Trúbatrixur sem samanstanda af þjóðþekktum og upprennandi íslenskum söngkonum. Tónlist 15. október 2008 03:30
Hana-nú endurútgefin Viðhafnarútgáfa á sígildri plötu Vilhjálms Vilhjálmssonar, Hana-nú, er nýkomin út. Á plötunni er að finna lagið Tölum saman sem átti að vera á upphaflegu plötunni árið 1977 en heltist úr lestinni. Tónlist 14. október 2008 06:00
Tjáir sig um plötu Radiohead Jane Dyball, sem er háttsett hjá útgáfufyrirtæki Radiohead, Warner Chapell Music, hefur í hyggju að greina frá nýjum upplýsingum um útgáfu plötunnar In Rainbows á ráðstefnunni You Are In Control, sem hefst á Íslandi á morgun. Tónlist 14. október 2008 05:30
Frábærar viðtökur í New York Ólöf Arnalds spilaði nýverið á þrennum tónleikum í New York. Tónlistarsjóðurinn Kraumur og íslenski konsúllinn í New York lögðu Ólöfu lið og ferðin tókst með eindæmum vel. Tónlist 13. október 2008 06:15
Chinese í nóvember Fyrsta plata rokksveitarinnar Guns N"Roses í fimmtán ár, Chinese Democracy, er væntanleg í verslanir 23. nóvember. Tónlist 13. október 2008 03:30
Antony með nýja plötu Stimamjúki risinn Antony hefur loks tilkynnt um næstu plötu. Hún heitir The Crying Light og á að koma út í janúar. Tónlist 13. október 2008 03:00
Lifandi hiphop Tónlistarmaðurinn Jóhannes Birgir Pálmason, sem kallar sig Rain, er að gefa út sína fimmtu sólóplötu, No Strings Attached. Tónlist 13. október 2008 02:30
Spila í Eyjum Hljómsveitin Mezzoforte heldur tónleika í Höllinni í Vestmannaeyjum á fimmtudag. Sveitin ætlar jafnframt að leggja drög að plötu í nýju hljóðveri í Vestmannaeyjum, Island Studios. Tónlist 8. október 2008 08:00
Októberfest í fimmta sinn Októberfest verður haldin í fimmta sinn á lóð Háskóla Íslands frá fimmtudegi til laugardags. Hátíðin hefur aldrei verið stærri og hefur Stúdentaráð fengið viðburðafyrirtækið Am Events sér til aðstoðar við að gera hátíðina sem glæsilegasta þetta árið. Tónlist 8. október 2008 08:00
Spila með hetjunum Aðdáendum The Rolling Stones, Bítlanna, Beach Boys og Pink Floyd gefst í nóvember sjaldgæft tækifæri til að spila með hetjunum sínum á rokknámskeiði á Englandi. Tónlist 8. október 2008 07:00
Mjallhvít og Rúnar á svið Hljómsveitin Hvar er Mjallhvít? heldur útgáfutónleika í Iðnó á fimmtudagskvöld til að kynna sína fyrstu plötu. Ýmsir gestir koma við sögu á tónleikunum, þar á meðal goðsögnin Rúnar Júlíusson, sem mun taka lagið. Tónlist 8. október 2008 05:00
Coldplay sigursæl Hljómsveitin Coldplay vann tvenn verðlaun á Q-hátíðinni í London, þar á meðal fyrir plötu ársins, Viva La Vida or Death And All His Friends. Einnig var Coldplay valin besta hljómsveitin í heiminum í dag og bar þar sigurorð af Metallica, Muse, Kings of Leon og Oasis. Tónlist 8. október 2008 05:00
Vildi gera eitthvað öðruvísi Hljómsveitin The Viking Giant Show, sem er hugarfóstur Heiðars Arnar Kristjánssonar úr Botnleðju, gefur út sína fyrstu plötu um miðjan október. Tónlist 7. október 2008 08:00
Sjarmi við sænskan framburð Yfir eitt hundrað hljómsveitir víðs vegar að úr heiminum hafa lifibrauð sitt af því að spila lög til heiðurs Abba, þar á meðal hin heimsþekkta Björn Again og svo Arrival, sem spilar í Vodafone-höllinni 8. nóvember. Tónlist 7. október 2008 05:00
Elskast í rústunum Elskumst í efnahagsrústunum er yfirskrift tónleikaferðar hljómsveitanna Skáta og Bloodgroup sem hefst á miðvikudag. Tónleikaferðin er hluti af verkefninu Innrásin sem styrktarsjóðurinn Kraumur kom á fót í vor. Tónlist 7. október 2008 04:00
Dansþáttur færður Útvarpsþátturinn Flex á X-inu hefur verið færður af laugardagskvöldum yfir á föstudagskvöld og verður hann í loftinu frá 19 til 22. Ein af ástæðum þess er sú að hinn gamalgróni þáttur, Party Zone, er á dagskrá Rásar 2 á laugardagskvöldum. Tónlist 3. október 2008 10:00
Menn ársins með plötu Poppsveitin Menn ársins er að senda sér sína fyrstu plötu, sem er samnefnd sveitinni. Platan var tekin upp í sveitahljóðveri í Danmörku í nóvember í fyrra. Tónlist 3. október 2008 06:00
Rokk og ról á Selfossi Tónleikar til heiðurs bandarísku rokksveitinni Guns"N Roses verða haldnir í Hvíta húsinu á Selfossi í kvöld. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu skipa sveitina þeir Snorri Snorrason, Gunnar Bjarni, Birgir Nielsen, Herbert Viðarsson og Grétar Bulgretzky. Tónlist 3. október 2008 05:15
Hátt í tvö hundruð flytjendur Hátt í tvö hundruð flytjendur hafa verið bókaðir á Iceland Airwaves-tónlistarhátíðina sem verður haldin í Reykjavík eftir tvær vikur. 117 innlendir flytjendur hafa skráð sig til leiks en 49 erlendir. Tónlist 3. október 2008 04:30
Framverðir enska rappsins Tvær af skærustu stjörnum breska rappsins eru nýbúnar að senda frá sér plötur. Roots Manuva gaf út sína sjöttu plötu, Slime & Reason, í byrjun september og hálfum mánuði seinna sendi Mike Skinner frá sér fjórðu Streets-plötuna Everything Is Borrowed. Trausti Júlíusson lagði við hlustir. Tónlist 3. október 2008 04:00
Breyttur Organ opnar á ný Páll Gunnar Ragnarsson, einn af eigendum skemmtistaðarins 22 við Laugaveg, og Gunnar Már Þráinsson hafa fest kaup á Organ í Hafnarstræti. Tónlist 2. október 2008 07:00
Trúbador opnar viðburðasíðu Ný íslensk heimasíða, Garg.is, verður opnuð í dag. Síðunni er ætlað að veita upplýsingar um tónlistarviðburði á höfuðborgarsvæðinu og eru stofnendur trúbadorinn Hlynur Benediktsson og Atli Hólmgrímsson. Tónlist 2. október 2008 05:00