KFC á Íslandi segir meinta ljósmynd viðskiptavinar „falska“ Ljósmynd sem gefið var í skyn að væri af hráum kjúklingi keyptum á veitingastað KFC í Reykjanesbæ er „fölsk“, að sögn forsvarsmanna KFC á Íslandi. Svo virðist sem ljósmyndin hafi verið tekin erlendis fyrir minnst átta árum síðan. Viðskipti innlent 20. júlí 2024 18:11
Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Á næstu dögum og vikum verður íþróttadrykkurinn Powerade tímabundið seldur með hefðbundnum flötum áföstum töppum, í stað tappa með stút, eða sporttappans svokallaða, sem hefur prýtt flöskuna hingað til. Neytendur 17. júlí 2024 17:12
Þrettán þúsund krónur fyrir nótt í tjaldi Á vefsíðunni Booking.com má finna auglýsingu þar sem boðið er upp á gistingu í Hornafirði í fullútbúnu tjaldi, og er verðið í kringum þrettán þúsund krónur. Gistingin virðist almennt falla vel í kramið á gestum, en umsagnir eru flestar jákvæðar. Innlent 17. júlí 2024 13:40
Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Í gær var vakin athygli á því á Facebook-síðunni „vertu á verði - eftirlit með verðlagi,“ að 400 grömm af klassískum smjörva kostaði 1.245 krónur á N1 á Egilsstöðum. Spurt var hvort þetta væri ekki fullmikið verð, og undirtektir voru miklar. Neytendur 13. júlí 2024 10:24
Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Fyrirtækið Lagsmaður, sem heldur úti vefheildsölunni fiska.is, hefur innkallað Kite-hveiti. Ástæðan er sú að hveiti inniheldur ólöglega aukaefnið benzólý peroxíð. Neytendur 11. júlí 2024 16:03
Hagræðing í rekstri sé bændum og neytendum til heilla Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, segir öllum ljóst að gríðarleg tækifæri séu til hagræðingar í rekstri kjötafurðastöðva. Hagræðingin gangi út á að geta greitt bændum hærra afurðaverð, án þess að það þýði hækkun á verði til neytenda. Hún telur samruna Kaupfélags Skagfirðinga og Kjarnafæðis Norðlenska jákvætt skref í rétta átt. Innlent 9. júlí 2024 22:39
BYKO kærir vegna sniðgöngulímmiða Einstaklingur sem setti límmiða til að hvetja til sniðgöngu ísraelskra vara í Byko hefur verið kærður fyrir eignaspjöll. Sigurður Pálsson forstjóri segir fyrirtækið taka hart á þjófnaði og eignaspjöllum en að það taki ekki afstöðu til skoðana fólks. Innlent 9. júlí 2024 19:39
Mikilvægi samkeppni Virk samkeppni, þegar fyrirtæki keppa innbyrðis á markaði, er ekki lítilvægt orðagjálfur til að hafa uppi á tyllidögum. Hún er ein grunnstoðin í hagkerfi okkar. Jafnframt er hún ein helsta trygging neytenda fyrir úrvali og auknum gæðum, auk þess að vera vörn gegn okri og blekkingu. Það er því miður tilefni til að rifja upp mikilvægi samkeppninnar og hvað hún færir okkur. Skoðun 9. júlí 2024 14:31
Búið að afvopna neytendur Formaður atvinnuveganefndar segir það ekki tortryggilegt að hann eigi hlut í félagi sem keypt var af Kaupfélagi Skagfirðinga á grundvelli nýsamþykktra búvörulaga sem tekin voru fyrir í nefndinni. Þingmaður Viðreisnar segir nefndina hafa tekið gríðarmikilvægt vopn úr höndum neytenda. Neytendur 8. júlí 2024 20:22
Ætlaði með allt of ungt barn í ferð og heimtaði endurgreiðslu Ferðaþjónustufyrirtæki hefur lúffað fyrir kaupanda sem fór fram á endurgreiðslu gjalds fyrir fimm ára gamalt barn og föður þess, eftir að barninu var neitað um aðgang að ferð. Aldurstakmark í ferðina var átta ár en barnið var aðeins fimm ára. Neytendur 3. júlí 2024 11:33
Nova klippir kaffiverðið Nova kynnir til leiks KaffiKlipp, nýjasta klippið í FyrirÞig fríðindaklúbbnum þar sem viðskiptavinir Nova geta fengið kaffibollann hjá Te & Kaffi á nánast hálfvirði. Með kaupum á KaffiKlippinu fást fimm kaffibollar og gildir klippið fyrir alla drykki á matseðli, þar á meðal sumardrykki. Lífið samstarf 3. júlí 2024 08:49
Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Kaupandi pakkaferðar hjá íslenskri ferðaskrifstofu fær ferðina alla endurgreidda þrátt fyrir að hafa afbókað hana með skömmum fyrirvara. Kaupandinn lét ekki bjóða sér venjuleg sæti í flugi og Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa taldi hann mega afpanta vegna þess. Neytendur 3. júlí 2024 08:15
Er paprikan mín kvenkyns? Þegar fréttir bárust af kynjuðum skuldabréfum á dögunum veltu sumir fyrir sér hvað kæmi næst. Og hvað kom næst? Jú, kynjaðar paprikur. Eða hvað? Lífið 2. júlí 2024 21:00
Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Einhver bið er eftir því að Hagkaup hefji netsölu á áfengi. Fyrirhugað var að hægt yrði að panta áfengi og sækja hjá verslunarrisanum í síðasta mánuði. Framkvæmdastjórinn segir undirbúning á síðustu metrunum, en pappírsvinna og sumarfrí verði til þess að ekkert verði af sölunni fyrr en í ágúst. Viðskipti innlent 2. júlí 2024 10:50
Hundruð freista þess að gera góð kaup í Nexus Hundruð manna hafa gert sér ferð í sérvöruverslunina Nexus í morgun þar sem blásið var til hinnar árlegu sumarútsölu verslunarinnar. Myndarleg röð var við inngang verslunarinnar í Glæsibæ þegar hún var opnuð klukkan tíu og yfir tvö hundruð manns komu í verslunina á innan við tuttugu mínútum til að gera góð kaup. Innlent 1. júlí 2024 11:06
Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Fanneyju Friðriksdóttur má með réttu kalla hagsýna húsmóður eftir að hafa helmingað kostnað við matarkaup á einum mánuði. Sjónvarpsþættirnir Viltu finna milljón voru innblástur til Fanneyjar sem notaðist við snjallverslun Krónunnar til að kaupa engan óþarfa. Neytendur 1. júlí 2024 08:14
Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Ódýrasti Hlöllabáturinn kostar nú 2500 krónur og dekk í Costco hækkuðu um rúm tuttugu prósent á fjórum vikum. Neytendur 1. júlí 2024 07:40
Ómögulegt að vita hvað leynist í „brúnku-nefspreyjum“ sem seld eru á samfélagsmiðlum Alvarlegum aukaverkunum hefur verið lýst í kjölfar notkunar á svokölluðum brúnku-nefspreyjum sem fullyrt er í auglýsingum að auki og viðhaldi sólbrúnku. Yfirlögfræðingur hjá Neytendastofu segir skýrt í lögum að auglýsingar megi ekki vera villandi gagnvart neytendum. Innlent 29. júní 2024 21:03
Gamla fólkið þarf að greiða fyrir sundferðina Samkvæmt tillögu menningar,- íþrótta- og tómstundaráðs, sem samþykkt var í morgun og tekin verður fyrir í borgarráði, munu sundgestir sem náð hafa 67 ára aldri greiða stakt gjald fullorðinna og gjaldflokkurinn „eldri borgarar“ verður tekinn úr gjaldskránni. Stakt gjald fullorðinna í sundlaugar Reykjavíkurborgar er 1.330 krónur. Breytingin tekur gildi frá og með 1. ágúst. Innlent 28. júní 2024 14:31
Hækka fargjöld í strætó Ný gjaldskrá tekur gildi hjá Strætó þann fyrsta júlí næstkomandi og nemur hækkunin á stökum fargjöldum 3,2 prósentum og á tímabilskortum 3,85 prósentum. Verð á Klapp plastkortum helst þó óbreytt eða þúsund krónur. Innlent 28. júní 2024 10:02
Ómar fær fyrir ferðina Neytendastofa segir Esju Legal, félag Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, hafa verið með villandi og ranga upplýsingagjöf á vef sínum Flugbaetur.is þar sem ferðalöngum er boðið upp á aðstoð við innheimtu skaðabóta. Neytendur 27. júní 2024 20:24
Verðskrá Lufthansa hækkar vegna nýs umhverfisgjalds Þýska flugsamsteypan Lufthansa, eitt stærsta flugfélag heims, hefur ákveðið að leggja sérstakt umhverfisgjald á selda flugmiða félagsins innan Evrópu. Þetta er gert til að mæta auknum kostnaði sem kemur til vegna umhverfismarkmiða Evrópusambandsins. Neytendur 26. júní 2024 16:59
Sex fyrirtæki sektuð vegna nikotínauglýsinga Neytendastofa hefur sektað sex fyrirtæki fyrir brot gegn auglýsingabanni á nikotínvörum. Fyrirtækin sex eru Djákninn, FVN, Gryfjan, Innflutningur og dreifing, Nicopods og SH Import. Sektirnar eru frá 100 þúsund krónum að 400 þúsund. Neytendur 26. júní 2024 16:09
Senda tækið til útlanda til skoðunar og vilja endurgreiða Steinunni Framkvæmdastjóri Elko segir fyrirtækið líta mál þar sem kolsýrutæki sprakk með þeim afleiðingum að neytandi hlaut skaða á hendi alvarlegum augum. Hann segist hafa ítrekað starfsreglur og sent tækið til útlanda í skoðun hjá sérfræðingum. Neytendur 25. júní 2024 17:16
Gullhúðun gerir óverðtryggð lán með föstum vöxtum dýrari Gullhúðun, sem átti að verja neytendur, gerir það að verkum að óverðtryggð lán með föstum vöxtum eru dýrari en annars væri, segir framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka. Þegar reglur séu settar þurfi að fylgja þeim vel eftir, horfa á stóru myndina og meta heildaráhrifin til lengri tíma. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa sagt að fyrirkomulagið smitist yfir í skuldabréfamarkað því bankar geti fyrir vikið ekki fjármagnað sig með löngum sértryggðum skuldabréfum á móti fastvaxtaíbúðalánum. Innherji 24. júní 2024 18:14
Þrjú þúsund krónur fyrir ferð í parísarhjólið Parísarhjólið sem staðir hefur á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn í slétta viku hefur vakið nokkra athygli enda sést það víða að. Aðgangseyrir í hjólið er 3000 krónur fyrir staka ferð. Neytendur 24. júní 2024 12:34
Selja eintómt brauð á 3.190 krónur Ýmsir ráku upp stór augu í gær og í dag þegar þeir skoðuðu vefsíðu Dominos en þar er ný pítsa á matseðli sem ber heitið „Nakin pizza“. Nýja pítsan er án áleggs, án sósu og án osts. Brauðið kostar 3.190 krónur samkvæmt matseðli. Neytendur 24. júní 2024 10:32
Sodastream-flaskan sem sprakk í frumeindir sínar Steinunn Ólafsdóttir framkvæmdastjóri vill vara fólk við Sodastream-tæki sem keypt var í Elko. Hún hefur staðið í bréfaskriftum við fyrirtækið sem segir engin tæki hættulaus. Mestar líkur séu á því að flaskan hafi verið sett skakkt í tækið, eitthvað sem Steinunn kannast ekkert við. Innlent 23. júní 2024 08:49
Tæknin tekur yfir leigubílamarkaðinn Fyrir aðeins ári síðan hófu Hopp leigubílar starfsemi á Íslandi og hafa á þessum stutta tíma orðið áberandi á leigubílamarkaðnum. Með nýjungum og tækniþróun hefur fyrirtækið breytt því hvernig bæði bílstjórar og farþegar nýta sér leigubílaþjónustu. Samstarf 21. júní 2024 14:05
Fleiri kaupi ódýrar íbúðir án þess að taka lán Leiguverð hækkaði langt umfram verðbólgu og íbúðaverð síðustu tólf mánuði. Fyrstu kaupendum á íbúðamarkaði fer fækkandi en erfiðara er fyrir þá að koma sér inn á markaðinn en áður. Viðskipti innlent 20. júní 2024 13:33