Kópavogur

Kópavogur

Mannfjöldi: 40.041 (2025). Flatarmál: 110 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Eldri borgarar verið í lífs­hættu vegna ábyrgðar­leysis fram­kvæmda­aðila

Íbúi í Fannborg í Kópavogi segir stórhættu hafa verið á ferðum í dag þegar þungar bárujárnsplötur fuku af vinnusvæði á nærliggjandi byggingar. Plöturnar hafi brotið rúðu og valdið öðrum skemmdum á íbúðabyggingu. Hann gagnrýnir verktaka og lóðarhafa harðlega fyrir að hafa ekki búið betur um svæðið fyrir óveðrið í dag.

Innlent
Fréttamynd

Stjórn­stöð í Kópa­vogi sem líkist geimferðamiðstöð

Í skrifstofubyggingu í Smárahverfi í Kópavogi er stjórnstöð þakin svo mörgum tölvuskjám að minnir á geimferðamiðstöð. Stöðin á það sammerkt með NASA að þar sitja einnig sérfræðingar við skjái að fylgjast með að allt gangi vel í ferðum á fjarlægum slóðum.

Innlent
Fréttamynd

Neitar að hafa myrt mann á Kársnesi

Grískur karlmaður á fertugsaldri, sem ákærður hefur verið fyrir að stinga annan mann til bana í íbúð við Skjólbraut í Kópavogi í nóvember, neitar sök í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Amma er farin í „sveitina”…

Þegar ég var barn þá voru gæludýrin send í sveitina þegar þau voru orðin gömul og veik. Ég man að ég ímyndaði mér sveitabæ fullan af gömlum og veikum gæludýrum og lét mig dreyma um að gera mér ferð á þennan tiltekna sveitabæ. Hins vegar var „sveitin” lengra í burtu en sunnudags bítúrarnir leyfðu og sá ég því þessi gæludýr aldrei framar.

Skoðun
Fréttamynd

Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lög­reglu

Einn var handtekinn í hverfi 108 í gærkvöldi eða í nótt fyrir brot á lögreglusamþykkt. Í dagbók lögreglu kemur fram að hann hafi neitað að segja til nafns og hafi svo hótað lögreglu með ofbeldi. Fram kemur í dagbók að fjórir hafi gist í fangageymslu eftir nóttina.

Innlent
Fréttamynd

Læra nem­endur meira ef skóla­dögum fjölgar?

Í fréttunum á föstudag voru bornir saman fjöldi skóladaga í grunnskólum á Íslandi miðað við Norðurlöndin. Upplýsingarnar komu frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Samkvæmt ráðuneytinu eru 170 skóladagar á Íslandi, þar sem aðrir dagar, svo sem þemadagar, skólaslit og jólaskemmtanir, eru ekki taldir með.

Skoðun
Fréttamynd

Blóð úr hinum grunaða á hnífi á vett­vangi

Lögregla telur framburð mannsins, sem grunaður er um að hafa stungið annan mann til bana í íbúð við Skjólbraut í Kópavogi í nóvember, ótrúverðugan en rökstuddur grunur er um að hann hafi veitt hinum látna áverka sem leiddu til dauða hans. Blóðug skóför og DNA hins grunaða á hnífum sem fundust á vettvangi auk lokaniðurstöðu krufningar eru meðal gagna sem benda til sektar hins grunaða.

Innlent
Fréttamynd

Ó­lína löðrunguð þrisvar á sviðinu

Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, er nú á fullu við að undirbúa sérstaka Njálusýningu og hann kann að lýsa því en auk hans verða þau Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir rektor og Gissur Páll Gissurarson tenór sem flytja textann.

Lífið
Fréttamynd

Nýtt Eden í Kópa­vogi?

Ég man…Þegar ég var barn sóttu afi og amma mig stundum í skólann og saman fórum við í garðyrkjustöðina EDEN í Hveragerði.

Skoðun
Fréttamynd

Spekileki og ást­ríða í Kópa­vogi

Það er spekileki í bæjarstjórn Kópavogs. Mögulega er ég að nota orðið í aðeins óvenjulegu samhengi. En mér finnst það viðeigandi. Þar sem allir bæjarfulltrúar sem setið hafa í minnihluta á þessu kjörtímabili eru að hætta.

Skoðun
Fréttamynd

„Ó­vægið“ að vitna í lög?

Oddviti Framsóknar í Kópavogi hreykir sér í grein á Vísi af aðgerðum meirihlutans í menningarmálum og segir að uppstokkun á rekstri menningarhúsa í miðbæ Kópavogs hafi tekist afar vel. Hann telur jafnframt að gagnrýni minnihlutans á gerræðisleg vinnubrögð bæjarstjóra hafi verið óvægin og ekki elst vel.

Skoðun
Fréttamynd

Þegar lög­bundin þjónusta bíður en milljarðar fara í „chillout“

Sem íbúi og starfsmaður í Kópavogi er ég hugsi yfir forgangsröðun fjármuna pólitíkunnar í Kópavogi. Nú hefur verið í umræðunni menningarmiðstöð sem á að rísa í Smáralind. Ekki misskilja mig en ég tel að menning og bókasöfn séu mikilvægur þáttur í okkar samfélagi. Meðal annars eigum við þetta dásamlega bókasafn í Hamraborg sem er eitt það flottasta á landinu.

Skoðun
Fréttamynd

Grikkinn verður á­kærður fyrir mann­dráp

Ákæra verður gefin út í dag á hendur grískum karlmanni, sem sætt hefur grun um að hafa orðið portúgölskum manni að bana í Kópavogi í nóvember síðastliðnum. Hann verður ákærður fyrir manndráp.

Innlent
Fréttamynd

Kópa­vogur tekur for­ystu í menningar­málum

Á sama tíma og Hagstofa Íslands greinir frá þeirri miklu áskorun sem menningargeirinn og hinar skapandi greinar standa frammi fyrir með ört fækkandi stöðugildum, eða um 19,4% samdrætti á síðasta áratug, berast fagnaðarfréttir úr Kópavogi sem boða stórsókn í uppbyggingu menningarinnviða.

Skoðun
Fréttamynd

Menningin á heima í Kórnum

Efri byggðir Kópavogs hafa á undanförnum árum þróast hratt og orðið eitt öflugasta og fjölskylduvænsta hverfi bæjarins. Þar hefur myndast sterkt samfélag þar sem íþróttir, skólastarf og fjölbreytt þjónusta mynda grunn að góðum lífsgæðum íbúa.

Skoðun
Fréttamynd

Til­finninga­rík kveðju­stund eftir þriggja ára bar­áttu

„Þetta er búin að vera mjög tilfinningarík vika,“ segir Sólveig Jóhannesdóttir Larsen sem tilkynnti í vikunni að hún væri hætt í fótbolta 25 ára gömul eftir þriggja ára baráttu við meiðsli sem há henni mikið í daglegu lífi. Hún einblínir á litla sigra og vonast til að geta hlaupið aftur.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Skerðing í Kópa­vogi

Niðurrif er hafið á Fannborgarreit í Kópavogi. Áformunum hefur verið mótmælt í mörg ár því ekki sé gert ráð fyrir því að hreyfihamlaðir íbúar á reitnum geti með góðu móti komist til og frá heimili meðan á framkvæmdunum stendur. Samkvæmt áætlunum standa þær yfir í 5 ár en líklegt er að þar sé byggt á bjartsýnum vonum.

Skoðun
Fréttamynd

Allt sem í­búar og tón­leika­gestir þurfa að vita

Íbúar í Kórahverfi í Kópavogi munu þurfa að nýta sér hjáleiðir vegna götulokana í kringum Kórinn í Kópavogi um helgina þar sem fram fara stórtónleikar Laufeyjar. Lokanirnar eru í gildi átta og hálfa klukkustund á laugardag og sunnudag. Þá geta langflestir tónleikagestir ekki mætt á bíl á tónleikana, heldur er þeim gert að mæta í Smáralind. Afkastagetu fyrir 4G og 5G á svæðinu hefur verið aukið.

Innlent