Einstæðum mæðrum og öldruðum fjölgar hratt í hópi fátækra
Fátækir eru farnir að leita fyrr til hjálparsamtaka, sem er til marks um að róður þeirra sé að þyngjast að mati talsmanns slíkra samtaka. Einstæðum mæðrum á örorku og öldruðum hafi fjölgað hratt í hópi fátækra, sem þurfi að kyngja stoltinu til að leita sér aðstoðar. Oft hafi því verið þörf til að grípa til aðgerða, en nú sé nauðsyn.