Úrslit í Popping í Street dans einvíginu í Iðnó

Mikki og Max mættust í lokaumferð Popping battlsins, sá stíll er einhver sá vinsælasti innan Street dansheimsins og verður til á 8. áratugnum í innri borgum í hverfum svartra og latino á vesturströnd Bandaríkjanna. Popping er tæknilega krefjandi en dansarar þurfa að hafa gott vald á vöðvastjórnun, einangrunum ofl. og geta dansað með þessu öllu saman. Allir Street stílarnir eru menningarheimar út af fyrir sig en þegar erlendis er komið eru oft heilu viðburðirnir fyrir hvern stíl, DJ'ar tileinka sér þekkingu fjölbreyttra tónlistarstefna vissra stíla. Popping hentar fönk áhugafólki en í Popping battli mátt þú búast við að heyra diskó vafða fönk tóna, electro, syntha og út í hart Hiphop. Sigurvegari var Max.

18
04:19

Vinsælt í flokknum Lífið