Enski boltinn

„Við verðum að líta í eigin barm“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Harry Maguire gengur af velli eftir tapið á Old Trafford í dag. Annar skellur liðsins á nokkrum dögum.
Harry Maguire gengur af velli eftir tapið á Old Trafford í dag. Annar skellur liðsins á nokkrum dögum. Getty/Ash Donelon

Harry Maguire var fyrirliði Manchester United í dag eftir að Bruno Fernandes var settur á bekkinn en United liðið steinlá þá 3-0 á heimavelli á móti Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni. Hann ræddi málin við fjölmiðla eftir leikinn.

„Ég er mjög vonsvikinn. Við komum í leikinn til að ná í sigur fyrir stuðningsmennina okkar og að fá aftur á okkur mark úr föstu leikatriði í fyrsta markinu er ekki nógu gott,“ sagði Harry Maguire við BBC MOTD.

„Við verðum að halda einbeitingu og þegar hlutirnir ganga ekki upp má maður ekki vera að gefa föst leikatriði. Annað markið eru mistök og svo erum við 2-0 undir í hálfleik og náum ekki að bregðast við,“ sagði Maguire.

„Það vantar sjálfstraust eins og er – úrslitin, frammistaðan, við verðum að líta í eigin barm og finna eitthvað innra með okkur til að leggja meira af mörkum til liðsins,“ sagði Maguire.

„Það á við um hvern einasta leikmann. Þegar hlutirnir ganga ekki upp verður maður að gera grunnatriðin vel og að fá á sig mark úr föstu leikatriði, einföldu föstu leikatriði, er hvergi nærri nógu gott,“ sagði Maguire.

„Þetta snýst um hvern og einn – við verðum að standa saman sem lið. Það er svo snemma á tímabilinu – við getum enn átt gott tímabil en eitthvað verður að breytast fljótt. Þetta hafa verið vonbrigði, það verður að breytast,“ sagði Maguire.

Maguire var spurður út í stuðning leikmanna við knattspyrnustjórann:

„Við stöndum heils hugar á bak við Michael [Carrick], hann kom inn í liðið á síðasta tímabili, sneri genginu við og kom okkur í Meistaradeildina á þessu tímabili. Sem einstaklingar erum við ekki að spila nógu vel,“ sagði Maguire sem var einnig spurður út í bekkjarsetu hans sjálfs á síðustu leiktíð.

„Þegar maður spilar fyrir þetta félag veit maður að maður er tveimur eða þremur leikjum frá því að slíkt gerist. Maður verður að finna eitthvað innra með sér til að hjálpa félaginu, hjálpa liðinu og koma okkur út úr þessu. Við munum fara að vinna fótboltaleiki en við verðum að gera það fljótt,“ sagði Maguire.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×