Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Sindri Sverrisson skrifar 12. október 2026 19:45 Erling Haaland og félagar unnu 3-0 sigur á Anfield í fyrsta leik eftir að Manchester City var dæmt sekt um yfir hundrað brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. Getty/Robbie Jay Barratt Flottur sigur Manchester City á Anfield í gær og önnur afrek liðsins falla nú í skuggann á umræðunni um afar umfangsmikil brot félagsins á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. En hvaða áhrif hefur umræðan á þjálfara og leikmenn liðsins?
Þetta var til umræðu í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport í gærkvöld eftir 3-0 útisigur City í gær. Fyrsta spurning á þjálfarann Enzo Maresca fyrir og eftir leik var um fjármálabrot félagsins og á leiknum sjálfum var mikið um skilaboð frá stuðningsmönnum Liverpool sem bauluðu á City-liðið í þessum fyrsta leik eftir að félagið var dæmt sekt. „Það er auðvitað mjög einbeittur brotavilji sem liggur þarna að baki og maður skilur að það sé reiði mjög víða. En svo ertu auðvitað með leikmenn sem eru í raun saklausir af öllu svindli, bara mættir til að spila fótbolta, og þetta er auðvitað mikið högg og mikil óvissa fyrir hópinn. Þeir virðast hafa náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu. Það er spurning hvað það mun ganga lengi en það gæti hjálpað þeim tímabundið þangað til meira kemur í ljós,“ sagði Halldór Árnason í Sunnudagsmessunni en brot úr henni má sjá hér að neðan. Klippa: Sunnudagsmessan - Dómur Manchester City Maresca tók við City-liðinu af Pep Guardiola í sumar og fékk því í fangið risavaxið verkefni. „Þetta er mjög skrýtið því hann virðist ekki vita hvað var að fara að gerast. Hann var ekki atvinnulaus þjálfari sem var pikkaður upp heldur hafði fyrir því að fara úr stóru starfi hjá Chelsea til að taka við þessu City-giggi. Þetta eru mjög sérstakar aðstæður fyrir bæði hann og leikmenn,“ sagði Halldór. Leikmenn á borð við Antoine Semeny, Marc Guehi og Elliot Anderson hafa gengið til liðs við City á þessu ári. „Þetta hlýtur að vera eitthvað sem leikmenn spurðu út í og þeir hafa fengið einhverja fullvissu um að félagið yrði ekki dæmt sekt. Þetta er fyrir þá mikið áhyggjuefni,“ sagði Albert Brynjar Ingason. „Við vitum ekki hvenær niðurstaða kemur. Verður það eftir tímabilið? Við gætum verið að horfa á að City vinni í vor og það verður allt tryllt ef það gerist. Maður skilur reiðina alveg hundrað prósent. Enski boltinn er heilagur. Sagan skiptir máli,“ sagði Albert en umræðuna má sjá hér að ofan.
Enski boltinn Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Bein útsending: Arnar kynnir landsliðshópinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira