Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Sindri Sverrisson skrifar 30. september 2026 13:17 Pep Guardiola er einn sigursælasti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en naut góðs af víðtæku svindli Manchester City. Visionhaus/Getty Images Pep Guardiola, einn þeirra sem nutu góðs af umfangsmiklu svindli Manchester City í ensku úrvalsdeildinni, hvetur City-fólk til að standa saman í þeim stormi sem félagið er nú í.
Enska úrvalsdeildin staðfesti í gær að Manchester City hefði gerst brotlegt í yfir hundrað tilvikum sem sneru að því að fegra bókhald félagsins og neita að afhenda upplýsingar við rannsókn málsins. „Ég vil að hver einasti stuðningsmaður Manchester City um allan heim viti að ég er hér til staðar, meira en nokkru sinni fyrr. Ég stend, hef alltaf staðið og mun alltaf standa með félaginu mínu, eiganda mínum, stjórnarformanni mínum, Ferran [Soriano, framkvæmdastjóri Man. City], leikmönnunum, starfsfólkinu, Enzo [Maresca, knattspyrnustjóra] og ykkur, okkar einstöku stuðningsmönnum. Ég vil taka það skýrt fram: við komumst í gegnum þetta saman. Ég elska ykkur öll,“ skrifaði Guardiola í færslu á Instagram sem Manchester City hefur jafnframt deilt. View this post on Instagram A post shared by PepTeam (@pepteam) Samkvæmt niðurstöðu óháðrar nefndar úrvalsdeildarinnar gerðu City-menn sýndarsamninga til að fela það að raunverulegar tekjur streymdu til félagsins úr vösum eigenda auk þess sem kostnaður var falinn með því að greiða laun í gegnum þriðja aðila. Þannig var bókhaldið fegrað um samtals meira en 900 milljónir punda, eða 144 milljarða króna, á árunum 2009-18 sem veitti félaginu gríðarlegt forskot í samkeppni við önnur félög sem bundin voru af reglum um fjárhagslegt aðhald. Guardiola stýrði City frá 2016 og þar til hann hætti með liðið í vor, ári áður en samningur hans átti að renna út. Undir hans stjórn vann City sex Englandsmeistaratitla, þrjá bikarmeistaratitla, fimm deildabikarmeistaratitla, Evrópumeistaratitil og heimsmeistaratitil.
Enski boltinn Manchester City Tengdar fréttir Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Micah Richards, fyrrverandi leikmaður Manchester City, segist niðurbrotinn eftir að hafa lesið fordæmandi sektardóm ensku úrvalsdeildarinnar yfir uppeldisfélagi hans. 30. september 2026 12:01 Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Nick Harris, fréttamaður hjá Sky News í Bretlandi, reyndi að taka Ferran Soriano, framkvæmdastjóra Manchester City, tali á fundi stjórnarmanna Evrópufélaga í Kaupmannahöfn. Úr urðu heldur vandræðaleg samskipti. 29. september 2026 18:00 Harðorð yfirlýsing Manchester City Forráðamenn Manchester City hafa gefið út yfirlýsingu þar sem að þeir lýsa vonbrigðum sínum og undrun á yfirlýsingu ensku úrvalsdeildarinnar eftir að sekt félagsins í umfangsmiklu máli var í dag staðfest. 29. september 2026 16:55 Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna og fyrrverandi þjálfari Southampton, Tottenham og Chelsea á Englandi, segir dóm Manchester City í 114 kæruliðum fyrir fjárlagabrot sjokkerandi. Ómögulegt sé að segja til um hvernig eigi að refsa félaginu. 29. september 2026 16:45 City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enska úrvalsdeildin sendi síðdegis frá sér yfirlýsingu þar sem sekt Manchester City í máli sem viðkemur brotum á fjármálareglum er staðfest. Málið hafði lekið út á föstudaginn var. Yfirlýsingin er harðorð í garð félagsins. 29. september 2026 16:19 Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira
Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Micah Richards, fyrrverandi leikmaður Manchester City, segist niðurbrotinn eftir að hafa lesið fordæmandi sektardóm ensku úrvalsdeildarinnar yfir uppeldisfélagi hans. 30. september 2026 12:01
Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Nick Harris, fréttamaður hjá Sky News í Bretlandi, reyndi að taka Ferran Soriano, framkvæmdastjóra Manchester City, tali á fundi stjórnarmanna Evrópufélaga í Kaupmannahöfn. Úr urðu heldur vandræðaleg samskipti. 29. september 2026 18:00
Harðorð yfirlýsing Manchester City Forráðamenn Manchester City hafa gefið út yfirlýsingu þar sem að þeir lýsa vonbrigðum sínum og undrun á yfirlýsingu ensku úrvalsdeildarinnar eftir að sekt félagsins í umfangsmiklu máli var í dag staðfest. 29. september 2026 16:55
Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna og fyrrverandi þjálfari Southampton, Tottenham og Chelsea á Englandi, segir dóm Manchester City í 114 kæruliðum fyrir fjárlagabrot sjokkerandi. Ómögulegt sé að segja til um hvernig eigi að refsa félaginu. 29. september 2026 16:45
City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enska úrvalsdeildin sendi síðdegis frá sér yfirlýsingu þar sem sekt Manchester City í máli sem viðkemur brotum á fjármálareglum er staðfest. Málið hafði lekið út á föstudaginn var. Yfirlýsingin er harðorð í garð félagsins. 29. september 2026 16:19