Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Andri Broddason skrifar 16. september 2026 21:23 Sunderland sótti í langþráðan sigur í Evrópudeildinni. George Wood/Getty Images Fyrsta umferð Evrópudeildarinnar hélt áfram í dag og var dramatík í nokkrum leikjum. Sunderland lék sinn fyrsta Evrópuleik síðan árið 1973 og Benfica lagði AC Milan að velli á Ítalíu.
Sunderland tók á móti AZ Alkmar eftir að stuðningsmenn Sunderland höfðu beðið lengi eftir að spila Evrópuleik. Lið Sunderland stóðst væntingarnar og var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik þar sem liðið fékk fullt af færum. Það gekk þó illa að nýta færin og endaði staðan á því að vera markalaus í hálfleik. Í seinni hálfleik fékk Sunderland svo vítaspyrnu sem Enzo Le Fée tók. Hann nýtti vítaspyrnuna og kom Sunderland yfir. Enska liðið var svo grátlega nálægt því að tvöfalda forystuna en Elijah Dijkstra, varnarmaður AZ Alkmar, var fljótur að koma sér á línuna og bjarga marki. Þrátt fyrir það náði Sunderland í langþráðan sigur í endurkomunni til Evrópu. Skoruðu tvö gegn sterku heimaliði AC Milan tók á móti Benfica í leik þar sem fá færi litu dagsins ljós. Þrátt fyrir það náði Dodi Lukebakio að skora frábært mark á sextándu mínútu með þéttu skoti fyrir utan teig. Mike Maignan í marki AC Milan gat lítið gert til að verjast þessu skoti. Þrátt fyrir að vera undir hélt AC Milan vel í boltann en liðið náði ekki að skapa sér mörg færi. Snemma í seinni hálfleik náði Jakub Kaminski að tvöfalda forystu Benfica gegn gangi leiksins. Souffian El Karouani gaf þá fyrirgjöf á Kaminski sem lagði boltann í markið örugglega. Þetta reyndist lokamark leiksins og vann Benfica tveggja marka sigur. Lyon náði að halda út forystuna Belgíska liðið Anderlecht tók á móti Lyon frá Frakklandi þar sem tvö hörkulið mættust. Lyon byrjaði leikinn betur og komst í forystu strax á áttundu mínútu með marki frá Noah Nartey. Fimmtán mínútum síðar tvöfaldaði Keito Nakamura forystu Lyon og virtist öll von vera úti fyrir Anderlecht. Heimamennirnir ætluðu þó ekki að gefast upp og í seinni hálfleik náði Mihaljo Cvetkovic að minnka muninn fyrir Anderlecht með góðum skalla. Belgíska liðið var búið að vera sterkari aðilinn í leiknum og virtist ætla að sækja jöfnunarmarkið. Það hafðist þó ekki og fékk Lyon öll stigin þrjú á erfiðum útivelli.
Evrópudeild UEFA Sunderland AFC Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Sjá meira