Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Aron Guðmundsson skrifar 10. september 2026 11:00 Stuðningsmenn Manchester City með skýr skilaboð til dómstóla á sínum tíma. Vísir/Getty Sérfræðingur í fótboltafjármálum segir mögulegt að búið sé að fella dóm í máli Manchester City á bak við luktar dyr. Fordæmi séu fyrir því að slíkt hafi verið gert án vitundar almennings.
Um tvö ár eru liðin síðan að réttarhöld vegna 115 kæra ensku úrvalsdeildarinnar á hendur Manchester City hófust vegna meintra fjármálabrota félagsins. City er sakað um að hafa brotið reglur um útgjöld. Félagið hafi ekki veitt nákvæmar upplýsingar á níu ára tímabili, auk þess að hnekkja reglum UEFA um fjárhagslega háttvísi. Að svona löngum tíma liðnum veltir fólk því fyrir sér hvort ekki fari að styttast í dóm í málinu. Kieran Maguire, sérfræðingur í fótboltafjármálum, var gestur í hlaðvarpinu The Rest Is Football þar sem að hann fór yfir flækjustig málsins. „Ef það eru 115 kærur, þá eru 115 varnir sem þarf að taka til greina. Það er aðal flækjustigið í þessu.“ Í sínu máli tók Kieran nokkrum sinnum dæmi um mál sem höfðað var gegn Chelsea vegna brota félagsins undir eignarhaldi Roman Abramovich og gætu þar falist fordæmi fyrir málaferlinum sem Manchester City stendur nú í. „Í máli Chelsea, þar sem að kærur voru 74 talsins, var dómur kveðinn upp. Chelsea áfrýjaði þeim dómi og við bættust þrír til fjórir mánuðir í lengd málsins. Við gætum því vel verið í þeirri stöðu, og ég tek það fram að ég hef engar sannanir fyrir þessu, að dómur hafi verið kveðinn upp í máli Manchester City og að annað hvort enska úrvalsdeildin eða Manchester City hafi áfrýjað þeim úrskurði og að nú sé áfrýjunarferlið farið af stað.“ „Myndum við ekki vita af því?“ spurði Gary Lineker, stjórnandi The Rest is Football þá. Kieran sagði það ekki hafa verið stöðuna í máli Chelsea og því væri það ekki öruggt. Fordæmið sé hins vegar til staðar.
Enski boltinn Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Sjá meira