Versti stjóri Bretlandseyja? Valur Páll Eiríksson skrifar 6. september 2026 23:02 Stjarna Russells Martin hefur skinið skærar en þessi dægrin. EPA/GEORGIA PANAGOPOULOU Enski þjálfarinn Russell Martin er kominn með bakið upp við vegg sem stjóri Leicester City í ensku C-deildinni. Martin hefur hrapað sem þjálfari undanfarin ár og aðeins unnið þrjá deildarleiki á þremur tímabilum. Martin þótti meðal efnilegri þjálfara landsins þegar hann kom Southampton upp í ensku úrvalsdeildina vorið 2024. Southampton vann umspilið eftir að hafa spilað glimrandi sóknarbolta í ensku B-deildinni. Hann hafði áður verið þjálfari MK Dons og Swansea með fínasta árangri og vakið athygli víða. Næst versta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Martin stýrði Southampton áfram þegar enska úrvalsdeildin tók við árið eftir en þar gekk verr að spila boltann sem hann aðhyllist. Southampton hélt gjarnan vel í bolta en varðist agalega og tapaði hverjum leiknum á fætur öðrum. Úrslit í deildarleikjum undir stjórn Martins frá haustinu 2024 Southampton: 1 sigur, 2 jafntefli, 13 töp. Rangers: 1 sigur, 5 jafntefli, 1 tap. Leicester: 1 sigur, 2 jafntefli, 2 töp. Alls: 3 sigrar, 9 jafntefli, 16 töp. Eftir einn sigur, tvö jafntefli og 13 töp í fyrstu 16 deildarleikjunum var Martin rekinn sem þjálfari liðsins 15. desember 2024. Southampton hætti ekki að tapa eftir stjóraskiptin og hrundi aftur niður í B-deildina sem neðsta lið deildarinnar með aðeins 12 stig, einu meira en versta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, Derby County árið 2007-08, sem fékk 11 stig. Entist í sjö leiki í Glasgow Martin þótti þó enn hörkustjóri og fékk tækifæri sumarið eftir þegar skoska stórliðið Glasgow Rangers tók sénsinn á honum. Það var skammvinnt verkefni. Martin hafði unnið einn leik, gert fimm jafntefli og tapað einum leik í fyrstu sjö leikjum skosku deildarinnar þegar hann var rekinn 5. október 2025. Sigrarnir þrír hjá Martin frá sumrinu 2024 1-0 sigur á Everton með Southampton 2. nóvember 2024 2-1 sigur á Livingston með Rangers 28. september 2025 2-0 sigur á Plymouth með Leicester 1. september 2026 Næsta tækifæri var ekki eins stórt, en þó, hjá Leicester City sem er án efa stærsta liðið í ensku C-deildinni, hafandi orðið Englandsmeistarar fyrir tíu árum síðan. Hörmulegt tap um helgina Leicester er í fjárhagsvandræðum og taka þurfti töluvert til eftir óvænt fall liðsins úr B-deildinni síðasta vor. Verkefni Martins er ekki auðvelt en eftir að lærisveinar Aarons Ramsey í Oxford unnu sannfærandi 4-0 sigur á Leicester í gær eru stuðningsmenn Leicester strax farnir að kalla eftir brottvikningu Martins og sungu níðsöngva í átt að honum á leiknum. Sagan er ekki með Martin sem hefur, eftir að hafa stýrt Southampton upp í ensku úrvalsdeildina vorið 2024, aðeins unnið þrjá deildarleiki sem stjóri. Sá þriðji kom með Leicester 1. september gegn Plymouth en Leicester hefur auk þess gert tvö jafntefli og tapað tveimur í fyrstu fimm leikjum tímabilsins. Martin hefur sætt gagnrýni fyrir nálgun sína og að geta ekki breytt út af vananum, þétt raðirnir og varist betur. Matt Piper, fyrrverandi leikmaður Leicester, var ómyrkur í máli eftir 4-0 tapið fyrir Oxford. „Við höfum aðeins séð eina leið frá þessum knattspyrnustjóra. Ég er að benda á hann í dag, jafnvel þótt liðið hafi ekki spilað vel,“ „Ég tel ekki að knattspyrnustjórinn ætti að vera rekinn í kvöld, en það er uppsagnarverð frammistaða,“ segir Piper. Enski boltinn Mest lesið Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli Fótbolti Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Fótbolti Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Fótbolti Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Enski boltinn Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael Fótbolti Lúxemborg á toppi íslenska riðilsins Fótbolti Einkunnir Íslands: Vonbrigðarbyrjun í Þjóðardeildinni Sport Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Formúla 1 „Úrslitin eru vonbrigði og leikurinn vonbrigði“ Fótbolti Sjáðu mörk úr leik Íslands og Eistlands ásamt vítavörslu Hákons Fótbolti Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira
Martin þótti meðal efnilegri þjálfara landsins þegar hann kom Southampton upp í ensku úrvalsdeildina vorið 2024. Southampton vann umspilið eftir að hafa spilað glimrandi sóknarbolta í ensku B-deildinni. Hann hafði áður verið þjálfari MK Dons og Swansea með fínasta árangri og vakið athygli víða. Næst versta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Martin stýrði Southampton áfram þegar enska úrvalsdeildin tók við árið eftir en þar gekk verr að spila boltann sem hann aðhyllist. Southampton hélt gjarnan vel í bolta en varðist agalega og tapaði hverjum leiknum á fætur öðrum. Úrslit í deildarleikjum undir stjórn Martins frá haustinu 2024 Southampton: 1 sigur, 2 jafntefli, 13 töp. Rangers: 1 sigur, 5 jafntefli, 1 tap. Leicester: 1 sigur, 2 jafntefli, 2 töp. Alls: 3 sigrar, 9 jafntefli, 16 töp. Eftir einn sigur, tvö jafntefli og 13 töp í fyrstu 16 deildarleikjunum var Martin rekinn sem þjálfari liðsins 15. desember 2024. Southampton hætti ekki að tapa eftir stjóraskiptin og hrundi aftur niður í B-deildina sem neðsta lið deildarinnar með aðeins 12 stig, einu meira en versta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, Derby County árið 2007-08, sem fékk 11 stig. Entist í sjö leiki í Glasgow Martin þótti þó enn hörkustjóri og fékk tækifæri sumarið eftir þegar skoska stórliðið Glasgow Rangers tók sénsinn á honum. Það var skammvinnt verkefni. Martin hafði unnið einn leik, gert fimm jafntefli og tapað einum leik í fyrstu sjö leikjum skosku deildarinnar þegar hann var rekinn 5. október 2025. Sigrarnir þrír hjá Martin frá sumrinu 2024 1-0 sigur á Everton með Southampton 2. nóvember 2024 2-1 sigur á Livingston með Rangers 28. september 2025 2-0 sigur á Plymouth með Leicester 1. september 2026 Næsta tækifæri var ekki eins stórt, en þó, hjá Leicester City sem er án efa stærsta liðið í ensku C-deildinni, hafandi orðið Englandsmeistarar fyrir tíu árum síðan. Hörmulegt tap um helgina Leicester er í fjárhagsvandræðum og taka þurfti töluvert til eftir óvænt fall liðsins úr B-deildinni síðasta vor. Verkefni Martins er ekki auðvelt en eftir að lærisveinar Aarons Ramsey í Oxford unnu sannfærandi 4-0 sigur á Leicester í gær eru stuðningsmenn Leicester strax farnir að kalla eftir brottvikningu Martins og sungu níðsöngva í átt að honum á leiknum. Sagan er ekki með Martin sem hefur, eftir að hafa stýrt Southampton upp í ensku úrvalsdeildina vorið 2024, aðeins unnið þrjá deildarleiki sem stjóri. Sá þriðji kom með Leicester 1. september gegn Plymouth en Leicester hefur auk þess gert tvö jafntefli og tapað tveimur í fyrstu fimm leikjum tímabilsins. Martin hefur sætt gagnrýni fyrir nálgun sína og að geta ekki breytt út af vananum, þétt raðirnir og varist betur. Matt Piper, fyrrverandi leikmaður Leicester, var ómyrkur í máli eftir 4-0 tapið fyrir Oxford. „Við höfum aðeins séð eina leið frá þessum knattspyrnustjóra. Ég er að benda á hann í dag, jafnvel þótt liðið hafi ekki spilað vel,“ „Ég tel ekki að knattspyrnustjórinn ætti að vera rekinn í kvöld, en það er uppsagnarverð frammistaða,“ segir Piper.
Úrslit í deildarleikjum undir stjórn Martins frá haustinu 2024 Southampton: 1 sigur, 2 jafntefli, 13 töp. Rangers: 1 sigur, 5 jafntefli, 1 tap. Leicester: 1 sigur, 2 jafntefli, 2 töp. Alls: 3 sigrar, 9 jafntefli, 16 töp.
Sigrarnir þrír hjá Martin frá sumrinu 2024 1-0 sigur á Everton með Southampton 2. nóvember 2024 2-1 sigur á Livingston með Rangers 28. september 2025 2-0 sigur á Plymouth með Leicester 1. september 2026
Enski boltinn Mest lesið Umfjöllun: Ísland – Eistland 1-1 Svekkjandi jafntefli á Laugardalsvelli Fótbolti Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Fótbolti Kane klúðraði víti og heimsmeistararnir voru fljótir að refsa Fótbolti Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Enski boltinn Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael Fótbolti Lúxemborg á toppi íslenska riðilsins Fótbolti Einkunnir Íslands: Vonbrigðarbyrjun í Þjóðardeildinni Sport Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Formúla 1 „Úrslitin eru vonbrigði og leikurinn vonbrigði“ Fótbolti Sjáðu mörk úr leik Íslands og Eistlands ásamt vítavörslu Hákons Fótbolti Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira