Innherji

AGS varar við aukinni hættu á að hag­vöxtur reynist minni en verð­bólga meiri

Hörður Ægisson skrifar
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. Í árlegri úttekt AGS beinir sjóðurinn meðal annars sjónum sínum að vinnumarkaðinum og segir að þótt hann hafi kólnað þá eru launahækkanir – launavísitalan er upp um meira en sjö prósent síðustu tólf mánuði – áfram meiri en framleiðnivöxtur sem eykur verðbólguþrýsting og áhyggjur af samkeppnishæfni.
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. Í árlegri úttekt AGS beinir sjóðurinn meðal annars sjónum sínum að vinnumarkaðinum og segir að þótt hann hafi kólnað þá eru launahækkanir – launavísitalan er upp um meira en sjö prósent síðustu tólf mánuði – áfram meiri en framleiðnivöxtur sem eykur verðbólguþrýsting og áhyggjur af samkeppnishæfni. Vísir/Vilhelm

Taumhald peningastefnu Seðlabankans þarf áfram að vera „nægjanlega þétt um nokkurt skeið“ eigi að tryggja varanlega og sjálfbæra hjöðnun verðbólgu, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en sendinefnd sjóðsins varar einnig við því að vegna átakanna við Persaflóa sé aukinn áhætta á að hagvöxtur muni reynast minni en verðbólga meiri. Þá leggur sjóðurinn til að opinberir starfsmenn taki þátt í kjaraviðræðum samhliða einkageiranum þannig að samningalotur séu betur samstilltar, sem myndi þá stuðla að launaþróun í samræmi við framleiðnivöxt og verðbólgu.


Tengdar fréttir

„Ekki tíma­bært“ að rýmka reglur um af­leiðu­við­skipti með krónuna

Seðlabankinn telur rétt að fara „varlega“ í að létta á þeim takmörkunum sem gilda um afleiðuviðskipti bankanna með íslensku krónuna gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Ekki sé tímabært að rýmka þær reglur, eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur nýlega lagt til, enda gæti það opnað á aukna stöðutöku með gjaldmiðilinn nú þegar vaxtamunur við útlönd fer hækkandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×