Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Sindri Sverrisson skrifar 22. maí 2026 09:23 Arne Slot vildi ekki upplýsa um það hvort Mohamed Salah fengi að spila sinn síðasta leik fyrir Liverpool á sunnudaginn eða hvort hann hefði þegar spilað sinn kveðjuleik í tapinu gegn Aston Villa. Getty/Robbie Jay Barratt Arne Slot neitaði að gefa það upp á blaðamannafundi í dag hvort að hann myndi velja Mohamed Salah í lið sitt gegn Brentford á sunnudaginn, í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar, eftir harkaleg skrif Salah sem beindust að stjóranum.
Salah hefur fengið sinn skerf af gagnrýni í vikunni eftir skrif sín á Instagram um síðustu helgi þar sem hann talaði um að Liverpool þyrfti að byrja að spila aftur „þungarokks sóknarbolta“ og átti þá við það hvernig liðið spilaði undir stjórn Jurgen Klopp, áður en Slot tók við. Salah sagði að allir sem kæmu til félagsins ættu að aðlagast þess konar fótbolta. Egyptinn hefur verið sagður sjálfselskur og Wayne Rooney sagði að hann ætti ekki að fá að vera nálægt Anfield á sunnudaginn í lokaumferðinni. „Ég segi aldrei neitt um liðsvalið mitt,“ sagði Slot þegar hann var spurður hvort Salah yrði með á sunnudaginn. Liverpool gæti þurft stig í leiknum til að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu. Aðspurður hvað honum þætti um skrif Salah, sem fyrr á leiktíðinni lét einnig í sér heyra og var þá skilinn eftir utan hóps í leik við Inter í Meistaradeild Evrópu, svaraði Slot: „Ég held að það skipti ekki svo miklu máli hvað mér finnst um það. Það sem skiptir máli er að við tryggjum okkur sæti í Meistaradeildinni á sunnudaginn og ég undirbý Mo og allt liðið á besta mögulega hátt fyrir leikinn,“ sagði Slot en brot af fundinum má sjá hér að neðan. Slot útilokaði ekki að Salah yrði með á sunnudaginn og sagði þá báða vilja það væri Liverpool fyrir bestu. „Ég varð fyrir miklum vonbrigðum eftir tapið gegn Villa því sigur hefði tryggt okkur sæti í Meistaradeildinni, sem við fengum ekki. Nú er einn leikur eftir sem er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur sem félag. Við viljum báðir það sem er best fyrir félagið, við viljum báðir að félaginu gangi vel og það er aðalmarkmiðið. Ég þarf að finna leið til að þróa þetta lið núna og svo sannarlega í sumar og á komandi tímabili til að ná aftur árangri og spila þann fótbolta sem mér líkar. Og ef mér líkar hann þá munu stuðningsmennirnir líka gera það, því mér hefur ekki líkað mikið við spilamennskuna okkar á þessu tímabili. En við reynum að þróa liðið á þann hátt að við getum keppt en líka spilað þann fótbolta, með þeim leikstíl sem stuðningsmönnunum, mér og vonandi Mo, ef hann verður annars staðar á þeim tímapunkti, mun líka við,“ sagði Slot.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira