„Við áttum þetta skilið“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 7. maí 2026 22:09 Ágúst Jóhannsson stýrði Valsmönnum að titlinum á sínu fyrsta tímabili. vísir / diego Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals var að vonum mjög ánægður eftir sigur sinna manna í oddaleik gegn FH um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrsta tímabil Ágústs við stjórnvölinn hjá karlaliði Vals verið gjöfult og skilað tveimur titlum, en liðið varð einnig deildarmeistari.
Valsmenn voru frábærir í fyrri hálfleik og náðu mest sex marka forystu. Sú forysta hefði hæglega getað verið meiri, en FH beit frá sér í seinni hálfleik og var leikurinn æsispennandi á lokakaflanum. Valsmenn unnu að lokum með einu marki, 27-26. En hvernig gerir Ágúst leikinn upp? „Mikil spenna í þessu. Við byrjuðum mjög sterkt, helvíti öflugir í fyrri hálfleik. Mér fannst algjör óþarfi að við værum ekki meira yfir í hálfleik. Við vorum sex mörkum yfir og við fáum skrítna tvo tveggja mínútna dóma undir lokin og svo koma þeir með áhlaup. Auðvitað eru þeir bara gríðarlega sterkir, en við sýndum bara mikinn karakter og náðum að loka þessu. Ég er gríðarlega ánægður með strákana.“ Aðspurður hvað það hafi verið sem hafi ráðið úrslitum í leiknum, þá hafði Ágúst þetta að segja. „Orkustigið var mjög hátt hjá okkur. Mér fannst við mjög kraftmiklir í byrjun og varnarleikurinn á köflum mjög sterkur. Við komum aðeins ofar á þá og unnum þá svolítið af ódýrum boltum og náðum að keyra á þá, sérstaklega framan af leik og það var mjög mikilvægt.“ Valur hefur átt frábært tímabil, Íslands- og deildarmeistarar, en hvernig gerir Ágúst upp sitt fyrsta tímabil með karlalið félagsins? „Ég er mjög ánægður. Við erum deildarmeistarar og Íslandsmeistarar, það er bara frábært. Við auðvitað bættum okkur mikið innan tímabilsins, við byrjuðum ekkert rosalega sannfærandi. Við Róbert [Gunnarsson] vorum náttúrlega bara að taka við liðinu og það bara tók tíma að koma okkar áherslum að. Ég er að vinna með frábærum þjálfurum, bæði Róberti og Jóhanni Inga Gunnarssyni. Við erum með góðan styrktarþjálfara, sálfræðing og sjúkraþjálfara. Við erum með frábært teymi og allir að vinna mjög góða vinnu. Ég er mjög heppin að hafa gott fólk í kringum mig.“ Svo sneri Ágúst sér að leikmannahópi sínum og þá sérstaklega að eins efnilegasta leikmanns landsins, Gunnars Róbertssonar. „Svo erum við með frábæran leikmannahóp, bæði mjög unga og efnilega stráka. Oft á tíðum finnst mér sem dæmi Gunnar Róbertsson ekki fá nægilega mikla athygli. Hann er bara 17 ára og talað um hann eins og hann sé 35 ára. Hann er bara búinn að vera einn jafn besti leikmaður deildarinnar, bæði í vörn og sókn. Svo erum við auðvitað með reynslubolta eins og Róbert Aron og Björgvin og fleiri. Bara góð blanda.“ „Við áttum þetta skilið,“ sagði Ágúst að lokum í fagnaðarlátunum að Hlíðarenda.
Olís-deild karla Valur Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira