Thea fer í rúmenskt félag með íslenska tengingu Sindri Sverrisson skrifar 4. maí 2026 10:31 Thea Imani Sturludóttir er á leið út í atvinnumennsku til Rúmeníu. Vísir/Anton Brink Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir heldur út í atvinnumennsku í sumar, að afloknu úrslitaeinvíginu með Val gegn ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn.
Thea hefur verið einn allra besti leikmaður Olís-deildarinnar um árabil en hún kom til Vals árið 2021 frá Aarhus United í Danmörku eftir að hafa einnig spilað í Noregi. Hún er hins vegar uppalin hjá Fylki. Nú er orðið ljóst að hún mun halda ferlinum áfram ytra eftir þetta tímabil, nánar tiltekið með SCM Craiova í Rúmeníu. Þetta tilkynnti Valur í dag, á milli leiks eitt og tvö við ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn en Valskonur unnu fyrsta leik á laugardaginn. Lið Craiova er með ákveðna Íslandstengingu því aðstoðarþjálfari liðsins er Florentina Stanciu, fyrrverandi markvörður bæði rúmenska og íslenska landsliðsins, sem um árabil varði mark Stjörnunnar og einnig ÍBV hér á landi. Í tilkynningu Vals er Theu þakkað fyrir hennar frábæra framlag og eftirminnilegar stundir, þar sem Evrópubikarmeistaratitillinn í fyrra stendur eflaust upp úr, og henni óskað alls hins besta í Rúmeníu. Craiova er sem stendur í 9. sæti af 12 liðum í rúmensku úrvalsdeildinni, þegar tvær umferðir eru eftir, og á ekki á hættu að falla. Þá er liðið komið í undanúrslit rúmensku bikarkeppninnar og spilar þar 9. maí.
Olís-deild kvenna Valur Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Víkingur R. - Keflavík | Er aftur Evrópuþynnka? Íslenski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira