Handbolti

Stjörnukonur jöfnuðu metin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Færeyingurinn Natasja Hammer skoraði níu mörk fyrir Stjörnuna í dag.
Færeyingurinn Natasja Hammer skoraði níu mörk fyrir Stjörnuna í dag. Vísir/Vilhelm

Það stefnir í svakalegt úrslitaeinvígi í umspilinu um sæti í Olísdeild kvenna í handbolta eftir að Stjörnukonur jöfnuðu í dag.

Stjarnan mætti út á Seltjarnarnes og vann fjögurra marka sigur, 26-22.

Gróttukonur höfðu komið mörk á óvart með því að vinna útisigur í fyrsta leiknum í Garðabæ en nú er allt jafnt á nýjan leik.

Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki tryggir sér sæti í Olísdeild kvenna 2026-27.

Hin færeyska Natasja Hammer átti stórleik og skoraði níu mörk fyrir Stjörnuna en reynsluboltinn Eva Björk Davíðsdóttir bætti við sex mörkum og Færeyingurinn Inga Maria Roysdóttir skoraði fimm mörk. Margrét Einarsdóttir varði vel í markinu eða sautján skot.

Ída Margrét Stefánsdóttir og Þóra María Sigurjónsdóttir voru markahæstar hjá Gróttu með fimm mörk hvor. Katrín S Scheving Thorsteinsson og Lilja Hrund Stefánsdóttir skoruðu þrjú mörk.

Grótta var 8-6 yfir í fyrri hálfleik en Stjarnan endaði hálfleikinn á 7-2 spretti og var 13-10 yfir í hálfleik. Stjörnukonur gáfu forystuna ekki eftir það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×