Gróttukonur sóttu dýrmætan sigur í Mýrina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2026 20:30 Gróttukonur eru einu skrefi nær Olísdeild kvenna eftir flottan sigur í kvöld. @grotta_handbolti/Eyjólfur Garðarsson Grótta er komið í 1-0 í úrslitaeinvígi um laust sæti í Olísdeild kvenna í handbolta næsta vetur eftir tveggja marka sigur á Stjörnunni í Heklu Höllinni í Mýrinni í Garðabæ í kvöld.
Grótta vann leikinn 23-21 eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik. Næsti leikur er á Seltjarnarnesi en þrjá sigra þarf til að tryggja sér farseðilinn upp í Olísdeildina. Ída Margrét Stefánsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Gróttu og Andrea Gunnlaugsdóttir varði 17 skot í markinu. Elísabet Ása Einarsdóttir og Katrín Scheving Thorsteinsson skoruðu síðan báðar fjögur mörk. Vigdís Arna Hjartardóttir var markahæst hjá Stjörnunni með fimm mörk en Eva Björk Davíðsdóttir var með fjögur mörk og fjórar stoðsendingar. Stjarnan spilaði í Olísdeildinni í vetur þar sem liðið endaði í næstneðsta sæti en Grótta í Grill 66-deild kvenna þar sem liðið varð í öðru sæti á eftir HK. Í stöðunni 8-8 náðu Gróttukonur frábærum endakafla fyrir hálfleik. Þær unnu hann 4-1 og leiddu 12-9 eftir fyrri hálfleikinn. Ída Margrét Stefánsdóttir var komin með sex mörk og þrjár stoðsendingar í hálfleik og Andrea Gunnlaugsdóttir varði 53 prósent skotanna (10 af 19) sem komu á hana í hálfleiknum. Stjörnukonum tókst að jafna metin snemma í seinni hálfleik en þær komust ekki yfir og Gróttuliðið landaði síðan mikilvægum sigri á lokamínútunum.
Olís-deild kvenna Grótta Stjarnan Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Körfubolti Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Fótbolti Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Fótbolti Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Fótbolti Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Sjá meira