„Auðvitað bara dugar þetta ekki“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 14. apríl 2026 22:16 Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka. Vísir/Anton Brink Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, var niðurlútur eftir tap sinna manna gegn FH í þriðja leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld, 27-23. „
Það er auðvitað bara svekkjandi að tapa þessu. Fyrri hálfleikur var ekki nógu góður af okkar hálfu, varnarlega erum við of soft og ólíkir sjálfum okkur að mínu mati. Við gerðum of mikið af mistökum og sóknarlega bara skorum við einfaldlega ekki nógu mikið,“ sagði Gunnar. „Við þurfum bara að skora meira. Það er bara sóknarleikurinn sem við þurfum að laga, en við fáum líka fullt af færum sem við þurfum að nýta. Þeir að mínu mati gefa okkur fullt af tækifærum í seinni hálfleik til að koma okkur inn í þetta, en við bara nýtum það illa.“ Gunnar hefur áður talað um það í þessu einvígi að hann þurfi framlag frá fleiri leikmönnum. Í kvöld fékk hann samalagt 13 mörk frá Skarphéðni Ívari Einarssyni og Frey Aronssyni, en aðrir leikmenn skoruðu tvö mörk eða minna. „Þú getur bara spilað aftur viðtalið við mig frá því eftir leik eitt. Auðvitað bara dugar þetta ekki, það bara segir sig sjálft. Við erum í undanúrslitum. Það verða fleiri að stíga upp því við erum alveg með menn sem hafa getuna í það.“ „Margir af þeim stigu upp í síðasta leik, en horfu bara á tölfræðina í kvöld. Það eru fáir með meira en eitt mark og þá er þetta bara erfitt. Við þurfum meira og við getum meira. Við eigum helling inni, alveg klárlega.“ En hvað þurfa Haukar að gera til að virkja þetta sem Gunnar segir að þeir eigi inni? „Við þurfum að ná að spila af okkar getu og nýta núna þessa daga vel. Safna kröftum og svara fyrir þetta á föstudaginn. Þetta eru tvö hörkulið og lítið á milli þeirra, en við getum betur en þetta og eigum inni. Við eigum góða leikmenn sem geta miklu meira og við þurfum að stíga upp saman.“ Að lokum var Gunnar spurður út í atvikin tvö í leiknum þar sem dómararnir fóru í skjáinn til að skoða brot hans manna. Freyr Aronsson slapp með tvær mínútur, en Ólafur Ægir Ólafsson fékk að líta beint rautt spjald. „Ég sé þetta svo illa. Ég þarf bara að sjá þetta í sjónvarpinu, en ef þeir fara í skjáinn þá getur þetta ekki verið annað en rétt. Ég sé þetta engan veginn þarna á vellinum. Þetta eru einhver högg þarna og lítið við þessu að segja. Ég held að hvorugt af þessu hafi verið viljandi en þegar maður fer í andlitið eins og Óli gerir þá er það bara rautt held ég,“ sagði Gunnar að lokum.
Olís-deild karla Haukar FH Mest lesið Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Freyr ekki lengi án starfs? Fótbolti „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ Fótbolti Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Körfubolti Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Viktor tekur við Haukum Körfubolti Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Körfubolti Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Fótbolti Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira