„Þeir refsa fyrir öll mistök og þeir refsuðu vel í dag“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 6. apríl 2026 20:43 Andri Snær Stefánsson hefur eflaust margt að segja við sína menn eftir leik kvöldsins. vísir/Diego „Þetta var virkilega vont. Við bara grófum okkar eigin gröf með því að byrja leikinn afleitlega sóknarlega og komast ekki í takt í sókn,“ sagði Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA í handbolta, eftir risatap gegn Val í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi þeirra á milli. Lokatölur 39-21 fyrir Val. „
Við vorum ekkert almennilega í þessum leik og erum að fara með mikið af dauðafærum og glötuðum boltum sem er auðvitað rándýrt á móti liði eins og Val. Þeir refsa fyrir öll mistök og þeir refsuðu vel í dag,“ sagði Andri Snær um spilamennsku sinna manna og hélt áfram. „Þetta var skrítið. Við byrjuðum leikinn varnarlega að mörgu leyti mjög vel, en þetta lá í sóknarleiknum. Við vorum bara afleitir þar og við vorum að reyna að finna lausnirnar saman og til að byrja með var flæðið ekki gott, en svo fáum við stöðurnar sem við vildum en við vorum bara að brenna. Björgvin var að verja eins og brjálæðingur, ég hef ekki séð hann svona góðan í mörg ár held ég. Valsmenn bara hlupu yfir okkur í dag.“ Staðan í hálfleik var 17-9 fyrir Val og tókst heimamönnum að skora fyrstu þrjú mörk síðari hálfleiksins. Við það virtust leikmenn KA algjörlega gefast upp. Aðspurður út í þá uppgjöf hafði Andri Snær þetta að segja. „Ég er ósáttur við það að við fórum svona mikið niður á hælanna. Það var rosalega mikil tími eftir í seinni hálfleik og við áttum einfaldlega að gera betur. Þá jókst munurinn ansi hratt áfram og ég er ósáttur við það.“ En hvað þarf Andri Snær og KA-liðið hans að laga fyrir næsta leik einvígisins? „Við ætlum ekki að fara að mikla þetta mikið fyrir okkur, stundum er þetta svona í úrslitakeppninni og við bara hittum alls ekki á þetta í dag á meðan Valsmenn voru svo sannarlega á deginum sínum. Við þurfum bara að laga spennustigið okkar, fyrst og fremst, og mæta með sjálfstraustið í lagi í okkar sóknarleik. Það er það sem ég horfi í núna,“ sagði Andri Snær að lokum.
KA Olís-deild karla Valur Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport Fleiri fréttir Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Sjá meira