Gordon: „Sunderland ekkert sérstaklega góðir miðað við Newcastle“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. mars 2026 16:45 Þrátt fyrir að Sunderland hafi unnið Newcastle United tvisvar sinnum á tímabilinu segir Anthony Gordon þá ekki vera með neitt sérstaklega gott lið. getty/Mark Cosgrove Anthony Gordon, leikmaður Newcastle United, segir ótækt fyrir liðið að tapa fyrir erkifjendunum í Sunderland sem honum finnst ekkert sérstakir í samanburði við eigið lið.
Sunderland vann Newcastle á St James' Park á sunnudaginn, 1-2. Brian Brobbey skoraði sigurmark Svörtu kattanna á lokamínútu leiksins. Sunderland vann báða leikina gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og hefur ekki tapað fyrir erkifjendunum í síðustu ellefu deildarleikjum. Gordon, sem skoraði mark Newcastle á sunnudaginn, segir tapið fyrir Sunderland svíða enn meira þar sem honum finnst lítið til andstæðingsins koma. „Það sem er pirrandi er að þeir eru ekki með mjög gott lið samanborið við okkur. Við eigum ekki að tapa fyrir þeim,“ sagði Gordon. „Augljóslega er þetta erfiðara á útivelli þar sem þeir hafa stuðningsmennina og andrúmsloftið með sér en við ættum ekki tapa þessum leik á heimavelli. Ekki miðað við fyrri hálfleikinn sem við áttum en við höfum ekki byrjað seinni hálfleikina nógu vel og það er viðvarandi vandamál.“ Með sigrinum á sunnudaginn komst Sunderland upp fyrir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni. Svörtu kettirnir eru með 43 stig í 11. sætinu en Skjórarnir í því tólfta með 42 stig. Síðustu dagar hafa ekki verið góðir fyrir Newcastle en á miðvikudaginn tapaði liðið 7-2 fyrir Barcelona í seinni leiknum í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Börsungar unnu einvígið, 8-3 samanlagt.
Enski boltinn Newcastle United Sunderland AFC Tengdar fréttir Brobbey braut hjörtu svarthvítra Hollendingurinn Brian Brobbey var hetja Sunderland í 2-1 sigri á Newcastle í grannaslagnum í norðrinu á Englandi í dag. 22. mars 2026 13:57 Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Fleiri fréttir Man. City - Coventry | Lampard á kunnuglegum slóðum Nott. Forest - Tottenham | Er lífsmark í Spurs? Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Sjá meira
Brobbey braut hjörtu svarthvítra Hollendingurinn Brian Brobbey var hetja Sunderland í 2-1 sigri á Newcastle í grannaslagnum í norðrinu á Englandi í dag. 22. mars 2026 13:57