Báðir þurfa bikar Valur Páll Eiríksson skrifar 22. mars 2026 10:45 Arteta og Guardiola takast á í dag. Michael Regan/Getty Images Fyrrum félagar mætast er Arsenal og Manchester City keppa um enska deildabikartitilinn á Wembley í dag. Bæði Mikel Arteta og Pep Guardiola þurfa á titli að halda.
Mikel Arteta var aðstoðarmaður Guardiola hjá Manchester City árin þrjú ár áður en hann var ráðinn þjálfari Arsenal í desember 2019. Hann gekk í gegnum mikinn skóla hjá Katalóníumanninum og var svo fljótur að láta til sín taka hjá Skyttunum. Liðið vann FA-bikarinn vorið 2020, þegar hann hafði aðeins verið við stjórnvölin í hálft ár og í dag er Arsenal-liðið nær óþekkjanlegt frá því vandræðaliði sem Arteta tók við fyrir rúmum sex árum síðan. Eftir þennan FA-bikar hafa hins vegar engir titlar unnist, ef tveir Samfélagsskildir eru undanskildir, þó Arsenal hafi farið úr því að vera Evrópudeildarlið í baráttu um miðja deild í það að vera fasti í titilbaráttunni á Englandi og í Meistaradeild. Arteta þarf á öðrum bikar að halda og að vinna leikinn við City í dag getur gefið liðinu kraft fyrir komandi átök um hina þrjá titlana sem eftir standa. Guardiola þarf einnig bikar. Hann hefur raðað inn titlum í Manchester-borg en aðeins hefur gefið á bátinn. Sex deildartitlar, þrír bikartitlar, Meistaradeild og enski deildabikarinn fjórum sinnum en City hefur verið skrefi á eftir í ár. Liðið féll úr leik í Meistaradeild Evrópu fyrir Real Madrid í vikunni og enski meistaratitilinn fjarlægist er Arsenal jók forskot sitt á toppnum síðustu helgi í níu stig. Þá eru orðrómar um að Guardiola yfirgefi City í sumar en hann hefur hvorki játað né neitað þeim sögusögnum. Að City vinni í dag gæti gefið liðinu sálfræðilegt forskot fyrir lokasprettinn og þeir bláklæddu geta einblínt á deildina á meðan Arsenal berst áfram í Evrópu. Áhugavert verður að sjá hvor verður ofan á í dag. Úrslitaleikur Arsenal og Manchester City hefst klukkan 16:30 og verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay. Bein útsending og upphitun hefst klukkan 16:00.
Enski boltinn Arsenal FC Manchester City Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira