Hátískuhönnuður yfir í hraðtískuheiminn Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 18. mars 2026 13:00 John Galliano fyrrverandi listræni stjórnandi tískuhúsana Dior og Maison Margiela, er að fara að hanna nýja samstarfslínu með tískurisanum Zöru. Swan Gallet/WWD via Getty Images Það er gömul saga og ný að hátískuhönnuðir fari í samstarf við risastór hraðtískufyrirtæki og njóta slíkar línur gjarnan mikilla vinsælda. John Galliano, fyrrum listræni stjórnandi Dior og Maison Margiela, og risafyrirtækið Zara eru nýjasta dæmið um slíkt.
Galliano er með frægari listrænu stjórnendum samtímans og fatalínur hans fyrir Dior eru enn með eftirsóknaverðustu hátískuflíkum í heimi. Hann hefur komið víða við í tískuheiminum en síðastliðin tvö ár látið lítið fyrir sér fara. Nú er hann með endurkomu og ætlar sér að endurgera og breyta gömlum arkíf-línum Zöru. „Ég er ótrúlega spenntur, sérstaklega því þetta er eitthvað sem ég hef aldrei gert áður og það kitlar mig, nýjungin, tilhlökkunin og ferli sjálft. Það er búið að vera skemmtilegt og mér finnst við vera að gera jákvæða hluti þar sem sjálfbærni er í forgangi út frá skapandi sjónarhorni,“ sagði Galliano í viðtali við Vogue á dögunum. View this post on Instagram A post shared by ZARA (@zara) Línan verður í verslunum í tvö ár en fyrsta línan kemur í verslanir í september. Tilkynning um samstarfið hefur fengið misjöfn viðbrögð og umhverfissinnar eru ekki hrifnir af ákvörðun Galliano. View this post on Instagram A post shared by Diet Prada ™ (@diet_prada) „Arkíf-línur hjá Zöru er frumleg leið til þess að tala um landfyllingu,“ skrifar einn notandi á Instagram og gagnrýnir fjöldaframleiðslu fyrirtækisins á meðan annar segir að fólk sé reitt yfir því að nú verði loksins aðgengilegt fyrir almúgann að festa kaup á flíkum eftir ástsæla hönnuðinn. Þá gagnrýna aðrir samstarfið og segja að Zara hafi gerst sek um að stela af minni tískuhúsum og ungum hönnuðum.
Tíska og hönnun Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira