Björgvin ekki af baki dottinn: „Bara eins lengi og mín er þörf“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. mars 2026 09:02 Björgvin Páll Gústavsson hefur leikið með íslenska landsliðinu á öllum stórmótum sem það hefur keppt á frá Ólympíuleikunum í Peking 2008. vísir/sigurjón Engan billbug er að finna á Björgvini Páli Gústavssyni sem er einn þriggja markvarða í íslenska handboltalandsliðinu sem mætir Svíþjóð í tveimur vináttulandsleikjum hér á landi á næstunni. Í fyrradag tilkynnti landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson íslenska hópinn fyrir leikina gegn Svíþjóð og greindi jafnframt frá því að Ísland myndi mæta Egyptalandi í fjórum leikjum á næstu mánuðum. Liðin eigast í tvígang við í Egyptalandi í maí og mætast svo í tveimur vináttulandsleikjum hér á landi fyrir heimsmeistaramótið í byrjun næsta árs. Hópurinn gegn Svíum: Markmenn: Björgvin Páll Gústavsson, Valur (296/26) Ísak Steinsson, Drammen (3/0) Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (83/2) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (116/121) Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (34/8) Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (73/170) Elvar Örn Jónsson, Magdeburg (96/217) Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (84/205) Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (56/78) Janus Daði Smárason, Pick Szeged (109/206) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (41/142) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (67/213) Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (1/2) Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (86/230) Stiven Tobar Valencia, Benfica (22/27) Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (56/48) Viggó Kristjánsson, Erlangen (82/248) Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (117/48) Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (25/39) Björgvin kom lítið við sögu á EM í janúar og fékk talsverða gagnrýni fyrir frammistöðu sína. Hann segir alltaf kúnst að ná sér niður eftir stórmót. „Fyrstu vikurnar eftir stórmót eru mjög flóknar og svona einkennast af ákveðnum rússíbana, bæði jákvæðum og neikvæðum tilfinningum og sér í lagi eftir svona mót þar sem að þetta var mikill rússíbani. Þetta var frábært og erfitt og leiðinlegt og geggjað til skiptis. Tilfinningarnar koma heim með þér og svo kemurðu heim og áttar þig á því að það eru allir að horfa. Þetta skiptir alla máli þannig að hérna og það er ástæðan fyrir því að maður er í þessu,“ sagði Björgvin. Hann verður 41 árs í maí og þrátt fyrir að vera aldursforseti íslenska hópsins er hann hvergi af baki dottinn. Björgvin segir að árangurinn á Evrópumótinu, þar sem íslenska liðið endaði í 4. sæti, veiti honum hvatningu að halda áfram að vera hluti af landsliðinu. „Bara eins lengi og mín er þörf. Svo sérðu hérna á þessum blaðamannafundi að það er búið að teikna upp fram að næsta janúar. Þetta eru einhverjir sex leikir og það er svo stutt í næsta mót, þótt það sé alveg heilt ár næstum því, er það samt einhvern veginn bara innan seilingar. Það er alltaf þannig. Þú hefur aldrei tíma til að pæla í því hvað þú ert gamall eða hvað er búið að gerast,“ sagði Björgvin. „Það eru bara næstu verkefni og næstu verkefni eru stór. Að spila hérna heima gegn Svíum, fyrir framan okkar fólk og svo eru það Egyptar í æfingaleikjum. Þeir eru frábært lið. Þetta er bara koll af kolli og maður hefur varla tíma til að melta það sem er að gerast. En maður meltir þetta og nýtur þessa tíma þegar hann er búinn. Þangað til er maður bara allur í þessu, slekkur á hausnum og spilar fyrir þjóðina og það er geggjað, sérstaklega á heimavelli.“ Björgvin vantar aðeins fjóra landsleiki í viðbót til að komast í hóp þeirra sem hafa spilað þrjú hundruð A-landsleiki eða fleiri fyrir Íslands hönd. Í þeim hópi eru Guðmundur Hrafnkelsson (407 landsleikir), Guðjón Valur Sigurðsson (365), Geir Sveinsson (340) og Ólafur Stefánsson (330). Landslið karla í handbolta Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport Fleiri fréttir Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Sjá meira
Í fyrradag tilkynnti landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson íslenska hópinn fyrir leikina gegn Svíþjóð og greindi jafnframt frá því að Ísland myndi mæta Egyptalandi í fjórum leikjum á næstu mánuðum. Liðin eigast í tvígang við í Egyptalandi í maí og mætast svo í tveimur vináttulandsleikjum hér á landi fyrir heimsmeistaramótið í byrjun næsta árs. Hópurinn gegn Svíum: Markmenn: Björgvin Páll Gústavsson, Valur (296/26) Ísak Steinsson, Drammen (3/0) Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (83/2) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (116/121) Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (34/8) Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (73/170) Elvar Örn Jónsson, Magdeburg (96/217) Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (84/205) Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (56/78) Janus Daði Smárason, Pick Szeged (109/206) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (41/142) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (67/213) Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (1/2) Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (86/230) Stiven Tobar Valencia, Benfica (22/27) Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (56/48) Viggó Kristjánsson, Erlangen (82/248) Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (117/48) Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (25/39) Björgvin kom lítið við sögu á EM í janúar og fékk talsverða gagnrýni fyrir frammistöðu sína. Hann segir alltaf kúnst að ná sér niður eftir stórmót. „Fyrstu vikurnar eftir stórmót eru mjög flóknar og svona einkennast af ákveðnum rússíbana, bæði jákvæðum og neikvæðum tilfinningum og sér í lagi eftir svona mót þar sem að þetta var mikill rússíbani. Þetta var frábært og erfitt og leiðinlegt og geggjað til skiptis. Tilfinningarnar koma heim með þér og svo kemurðu heim og áttar þig á því að það eru allir að horfa. Þetta skiptir alla máli þannig að hérna og það er ástæðan fyrir því að maður er í þessu,“ sagði Björgvin. Hann verður 41 árs í maí og þrátt fyrir að vera aldursforseti íslenska hópsins er hann hvergi af baki dottinn. Björgvin segir að árangurinn á Evrópumótinu, þar sem íslenska liðið endaði í 4. sæti, veiti honum hvatningu að halda áfram að vera hluti af landsliðinu. „Bara eins lengi og mín er þörf. Svo sérðu hérna á þessum blaðamannafundi að það er búið að teikna upp fram að næsta janúar. Þetta eru einhverjir sex leikir og það er svo stutt í næsta mót, þótt það sé alveg heilt ár næstum því, er það samt einhvern veginn bara innan seilingar. Það er alltaf þannig. Þú hefur aldrei tíma til að pæla í því hvað þú ert gamall eða hvað er búið að gerast,“ sagði Björgvin. „Það eru bara næstu verkefni og næstu verkefni eru stór. Að spila hérna heima gegn Svíum, fyrir framan okkar fólk og svo eru það Egyptar í æfingaleikjum. Þeir eru frábært lið. Þetta er bara koll af kolli og maður hefur varla tíma til að melta það sem er að gerast. En maður meltir þetta og nýtur þessa tíma þegar hann er búinn. Þangað til er maður bara allur í þessu, slekkur á hausnum og spilar fyrir þjóðina og það er geggjað, sérstaklega á heimavelli.“ Björgvin vantar aðeins fjóra landsleiki í viðbót til að komast í hóp þeirra sem hafa spilað þrjú hundruð A-landsleiki eða fleiri fyrir Íslands hönd. Í þeim hópi eru Guðmundur Hrafnkelsson (407 landsleikir), Guðjón Valur Sigurðsson (365), Geir Sveinsson (340) og Ólafur Stefánsson (330).
Hópurinn gegn Svíum: Markmenn: Björgvin Páll Gústavsson, Valur (296/26) Ísak Steinsson, Drammen (3/0) Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (83/2) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (116/121) Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (34/8) Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (73/170) Elvar Örn Jónsson, Magdeburg (96/217) Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (84/205) Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (56/78) Janus Daði Smárason, Pick Szeged (109/206) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (41/142) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (67/213) Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (1/2) Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (86/230) Stiven Tobar Valencia, Benfica (22/27) Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (56/48) Viggó Kristjánsson, Erlangen (82/248) Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (117/48) Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (25/39)
Landslið karla í handbolta Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Bakgarður í rigningu og roki: „Stjórna ekki veðrinu en get búið mig undir það“ Sport Fleiri fréttir Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Sjá meira