Upp­gjör: Svartfjallaland - Ís­land 33-24 | Hér varð hrun

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Elín Klara Þorkelsdóttir varð markahæst í íslenska liðinu með sjö mörk en hún tapaði líka átta boltum.
Elín Klara Þorkelsdóttir varð markahæst í íslenska liðinu með sjö mörk en hún tapaði líka átta boltum. Vísir/Hulda Margrét

Íslenska landsliðið í handbolta mátti þola níu marka tap gegn Svartfjallalandi ytra í dag. Eftir mjög góðar 40 mínútur, þar sem íslenska liðið leiddi leikinn með tveimur mörkum, þá hrundi leikur liðsins algjörlega og skoruðu þær Svartfellsku 15 mörk gegn fjórum síðustu tuttugu mínútur leiksins. Lokatölur 33-24.

Á miðvikudaginn síðastliðinn sigraði Ísland Svartfjallaland hér á heimavelli með einu marki. Því mátti búast við spennandi leik í dag.

Fyrstu tíu mínútur leiksins einkenndust af mörgum töpuðum boltum á báða bóga, en á þeim tímapunkti voru komnir hátt í tíu tapaðir boltar sem dreifðust á bæði lið. Því ber þó að hrósa að sterkur varnarleikur, þá sérstaklega hjá Andreu Jacobsen, var helsti valdur þess að heimakonur í Svartfjallalandi töpuðu boltanum.

Á næsta tíu mínútna kafla tókst heimakonum að byggja upp forystu. Kom það til meðal annars að tvö vítaskot fóru forgörðum hjá Íslandi á þeim kafla ásamt því að töpuðu boltunum fækkaði hjá heimakonum á meðan okkar konur voru í sama farinu í þeim efnum.

Arnar Pétursson tók því leikhlé á 20. mínútu leiksins og fór yfir hvað mætti gera betur, staðan 10-7 fyrir Svartfjallalandi. Hann virtist koma þeim skilaboðum vel frá sér því á næstu mínútum jöfnuðu okkar konur leikinn. Þar kom Díana Dögg Magnúsdóttir vel inn í leikinn og hjó á hnútinn sóknarlega í tvígang með góðum mörkum utan af velli. Allt jafnt í hálfleik, 13-13, í hörkuleik.

Okkar konur létu kné fylgja kviði í upphafi síðari hálfleiks og áttu frábæran kafla þar sem liðinu tókst að komast í tveggja marka forystu, sem mögulega hefði getað verið meiri. Staðan 18-20 fyrir Íslandi og tuttugu mínútur eftir.

Þá varð hrun. Svartfjallaland skoraði næstu níu mörk á meðan okkar konur glutruðu boltanum í gríð og erg ásamt því að fara illa með þau fáu færi sem þeim tókst að skapa á þeim kafla. Staðan 27-20 fyrir heimakonum.

Þrátt fyrir að Arnar Pétursson hafi tekið í tvígang leikhlé breyttist lítið sem ekki neitt. Kórónaðist þessi slaka frammistaða Íslands í lokaskoti leiksins, sem var vítakast eftir að leiktíminn rann út, þar sem Elín Klara lét verja frá sér. Lokatölur 33-24 í Svartfjallalandi.

Atvik leiksins

Á 41. mínútu leiksins fór allt í vaskinn. Katrín Anna var þá nýbúin að skora mark þar sem íslenska liðið var í yfirtölu og staðan orðin 18-20 og allt lék í lyndi. Eftir það gerðust eiginlega ólýsanlegir hlutir á vellinum. Íslenska liðið koðnaði algjörlega niður og því fór sem fór. Agaleg frammistaða var á síðustu tuttugu mínútum leiksins.

Stjörnur og skúrkar

Bestu leikmenn Íslands í þessum leik voru þær Sara Sif Helgadóttir markvörður og Katrín Anna Ásmundsdóttir hornamaður. Sara Sif varði 12 skot í leiknum og var stór þáttur í því að íslenska liðið leiddi leikinn um stund. Katrín Anna nýtti sín færi mjög vel og var áræðin í öllum sínum leik. Sex mörk úr sjö skotum hjá henni.

Skúrkurinn er spilamennska Íslands síðustu tuttugu mínúturnar. Það stóð ekki steinn yfir steini í leik liðsins. Tölfræði sem lýsir því hvað best er að Ísland tapaði boltanum 22 sinnum í leiknum, þar sem meirihlutinn tapaðist á þessum lokakafla, sem er hreinlega óboðlegt.

Dómarar

Rúmenska dómaraparið var kannski ekki upp á sitt besta. Þær Svartfellsku plötuðu dómarana oft í að dæma ruðning á íslenska liðið fyrir litlar sakir. Ekkert þó stórvægilegt sem hægt er að benda á í þeirra starfi.

Stemning og umgjörð

Fór leikurinn fram í Bemax Arena í Podgorica í Svartfjallalandi. Ekki má segja að það hafi verið margt um manninn í höllinni og því lítil stemning. Maður hefði haldið að íslenska liðið hefði getað nýtt sér þær vinalegu aðstæður betur gegn jafn sterkum andstæðingi og Svartfjallaland er, en svo var ekki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira