„Aðeins eitt lið sem reyndi að spila fótbolta í dag“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2026 12:03 Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, fagnar sigri á Brighton & Hove Albion en fyrir aftan hann Bukayo Saka er sem skoraði sigurmarkið. Getty/David Price Þetta var gott gærkvöld fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni því liðið vann sinn leik á meðan Manchester City tapaði tveimur stigum á heimavelli. Arsenal er því komið með sjö stiga forskot á toppnum en gagnrýni á spilmennsku liðsins minnkar ekkert eftir frammistöðuna í 1-0 sigri á Brighton.
Þetta var svo sannarlega ekki fagurt á að horfa fyrir Fabian Hurzeler, knattspyrnustjóra Brighton, sem var nánast allan leikinn ævareiður yfir leikaðferð Arsenal og því sem hann þurfti að horfa upp á hjá toppliði deildarinnar. Hurzeler, sem hafði fyrir leikinn vakið athygli á því sem hann taldi augljóslega vera tímasóun af hálfu Arsenal, skipti ekki um skoðun eftir það sem hann sá í gærkvöldi. „Ég held að það hafi aðeins verið eitt lið sem reyndi að spila fótbolta í dag,“ sagði Hurzeler, „og þess vegna er ég stoltur af því hvernig þeir gerðu það.“ „Ég mun aldrei verða þannig stjóri“ Hurzeler bætti við: „Ég mun aldrei verða þannig stjóri sem reynir að vinna á þennan hátt. Ég vil gera vel. Ég vil að leikmenn mínir haldi áfram að bæta sig og haldi áfram að spila fótbolta á vellinum,“ sagði Hurzeler. Hann vill aðgerðir hjá sjálfri deildinni gegn taktík Arsenal-manna. „Að lokum munu auðvitað öll lið stjórna leiknum og tefja en ég held að það þurfi að vera takmörk og þau takmörk þarf enska úrvalsdeildin að setja. Dómararnir þurfa að setja þau takmörk, í augnablikinu gera þeir bara það sem þeir vilja,“ sagði Hurzeler. Kannski einn myndi rétta upp hönd Stjóri Brighton hélt áfram: „Ef ég myndi nú spyrja alla í herberginu hvort þeir hefðu virkilega notið þessa fótboltaleiks er ég viss um að kannski einn myndi rétta upp höndina af því að hann er mikill Arsenal-aðdáandi, en fyrir utan það, ekki séns,“ sagði Hurzeler. Mikael Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, varði sína menn, tók gagnrýni Hurzelers með kaldhæðnislegu „þvílíkt óvænt“ áður en hann sagði: „Þú þarft bara að fara aftur í fyrri leiki og þú munt finna fullt af svona athugasemdum,“ sagði Arteta. „Ég elska leikmennina mína“ „Ég elska leikmennina mína. Það er aðalatriðið. Ég elska leikmennina mína, við elskum leikmennina okkar og ég elska hvernig við keppum,“ sagði Arteta. Um gagnrýni á liðið sitt að utan svaraði Arteta: „Ég held að þeir elski leikmennina okkar. Ég meina, í hvert skipti sem þeir tala um leikmennina okkar, þá held ég að þeir séu þeir ástsælustu í landinu,“ sagði Arteta. Hann bætti við: „Við hugsum um okkar eigin garð.“
Enski boltinn Arsenal FC Brighton & Hove Albion Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Körfubolti Fleiri fréttir „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Sjá meira